Leita í fréttum mbl.is

Erfðablöndun á laxi

er í tísku að tala um í sambandi við laxeldi í sjó. Tveir laxar mega ekki ganga í hjónaband í förnum sjó, þá getur afkvæmið ekki talist ættgöfugt.

Þar gegnir öðru máli en um aðra Íslendinga. Hvað þá holdanaut, gæsir og helsingja,grænlenskar rjúpur og norðlenskar.

Elli á Kvíum, sá margvísi veiðivörður, sagði mér sögu uppi í Kjarrá:

"Í þá daga voru laxarnir stórir skal ég segja þér. Hann setti í hann uppi í Kodda og missti hann svo loks niður frá þar sem  síðan heitir Wilson eftir veiðimanninum"

Þetta er löng leið og ekkert sérlega greiðfær.

Það erorðið nokkuð langt síðan að menn voru að veiða stóra laxa. Hafbeitarlaxarnir eru flestir bara puttar af sömu pönnustærðinni. Sést stórlax yfirleitt mikið lengur.

 

Ég hef heyrt fróða menn halda því fram, að

Laxeldisstöðin í Kollafirði sem ríkið átti hafi ræktað smálaxakyn meðskipulögðum hætti. Stórlaxinn sem veiddist í Andakílnum í gildrur um miðja síðustu öld dróst með hausinn í jörð þegar hann var bundinn á sporðinum við aktygjabogann á Molda gamla sem var afrenndur vagnhestur af stærri gerð. Hvar  er slíka laxa að finna nú til dags?

Hvað er verið að tala um þegar talað er um erfðablöndun laxa? Er eitthvað sérstakt laxakyn til lengur á Íslandi? Ég dreg það í efa. Er eitthvað íslenskt þorskakyn til? Humar, steinbíts eða ýsukyn?

Er ekki nær að efla framleiðsluna á eldislaxi og drepa frekar fiskinn en fólkið eins og hann Bjarni sagði? Hætta hysteríunni og hugsa fremur um að verjast fjölónæmum bakteríum, mislingum, berklum, og retrovírusum  með innflutningi sýktra erlendra landbúnaðarafurða og karakúlfjár svo og að líða fólki að sniðganga bólusetningar?

Annað  en erfðablöndun á laxi er líklegra til að verða hættulegra íslensku lífríki. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þessi erfablöndunar-umræða er stormur í vatnsglasi.

1.Gefum okkur að nokkrir norsk-ættaðir laxar sleppi úr einhverri kví hér við land að þá eru innan við 1% líkur á að þeir rati upp í laxveiðiár til að hrygna.

2.Rati þeir upp í einhverjar íslenskar ár að þá eru þeir kominir í samkeppni við villta laxa sem að eru þar fyrir og myndu sjálfsagt síður vinna þá samkeppni.

3.Gefum okkur  að  norskættaður eldis-lax næði að fjölga sér með villtum íslenskum laxi að þá er öllum stofnum lífs-nauðsynlegt að fá stundum ný gen í sína stofna  /hópa.

=Það gildir alveg sama lögmál um lax, mannfólk kýr og hunda.

Hvað myndi t.d. gerast ef að það kæmu engir nýjir makar

með ný gen út í Grímsey í 300 ár ?

Þá væri væntanlega hætta á innræktun og úrkynjun.-----------------------------------------------------------------------------------

Þetta er það sem að er að gerast í mörgum lokuðum stöðuvötnum hér á landi þar sem að enginn ný genablöndun á sér stað að þá hrinur stofninn.

Jón Þórhallsson, 7.3.2019 kl. 15:30

2 identicon

Þú sem laxveiðimaður Halldór og fyrrum leigutaki Þverár/Kjarrár er það ekki, ættir að vita betur.
Með erfðablöndun villtra og ræktaðra afbrigða verður til stofn sem hefur ekki í blóðinu að takast á við veiðimanninn. Það nennir enginn að veiða slíkan fisk og veiðimenn hætta að kaupa veiðileyfi. Það verður hrun í atvinnugrein sem líklega veltir milljörðum.
Þér er kannski sama því þú ert ekki lengur leigutaki…

Nonni (IP-tala skráð) 7.3.2019 kl. 18:08

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessu er ég algerlega ósammála Nonni minn.Af minni reynslu.Lax er lax.

Halldór Jónsson, 7.3.2019 kl. 18:33

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Það eru áratugir síðan flestallar laxveiðiár Íslands voru eyðilagðar með skipulögðum hætti, með sleppingum Elliðaárlaxatittanna í þær flestar. Laxeldisstöð Ríkisins í Kollafirði sá til þess og ljóst að þeir sem þá stjórnuðu vissu ekki rassgat um lax. Það er nánast ekkert til sem heitir hinn eini tæri og sanni Íslandslax lengur. Það var gengið af honum dauðum fyrir áratugum síðan. Örfáar ár eru sjálfbærar lengur, án aðstoðar og allt tal um erfðablöndun er sem hjómið eitt. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 7.3.2019 kl. 21:36

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Erfðablandaðir laxar tapa ratskyninu. Þeir rata ekki í árnar og því mun veiði í þeim hverfa ef áfram heldur sem horfir. 

Jón Steinar Ragnarsson, 8.3.2019 kl. 01:38

6 Smámynd: Halldór Jónsson

´Nafni minn að sunnan . Ég held að þú sért með þetta á tæru

Halldór Jónsson, 8.3.2019 kl. 01:55

7 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að erfðablandaðir laxar rata ekki í ár almennt;

þá er varla mikil hætta á að þeir valdi skaða í ánum.

Jón Þórhallsson, 8.3.2019 kl. 09:13

8 Smámynd: Jón Þórhallsson

Væri ekki réttara að tala KYNBÆTTA laxa frekar en erfðabreytta laxa sem að virðist vera neikvætt orð?

Það þarf ekkert að vera neitt neikvætt við KYNBÆTTA laxa.

=Þá eru búið að para saman hæfustu, heilbrigðustu og sterkustu einstaklingana saman í langan tíma án auka-efna / steralyfja.

Allir dýra-ræktendur gera þetta

og meira að segja eigendur laxveiðiáa:

https://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2203205/

Jón Þórhallsson, 8.3.2019 kl. 11:23

9 identicon

US $15.99 New in Crafts, Stamping & Embossing, Stamps

Húsari. (IP-tala skráð) 8.3.2019 kl. 16:42

10 identicon

Sustainable Fish Choices

Húsari. (IP-tala skráð) 8.3.2019 kl. 17:34

11 identicon

Frjálst Laxeldi undir öruggri gæslu í lokuðum firði eða mann-gerðu stórlóni færi vel öryggislega.

Sama STJÓRN á að fylgja ÍSLANDI og fámenni okkar. Landnámið og Landafundir,Sjómennska,Víkingar,Bændur og Ritsnylli. ÞETTA gerir ÍSLAND að ferðamannalandi með gestrisnum ÍSLENDINGUM. Minnkum GRÆÐGINA og græðum MIKLUMMMEIRA.

Ómengað og ennþá ÖRUGGT ÍSLAND með Ómengaðar og Lyfjalausar framleiðsluvörur er EINSTAKT fyrir BÆNDUR og SJÁVARÚTVEG.

Segjum frá Landinu okkar á sjónvarpsstöðum erlendis og EFTIRSPURNIN mun stóraukast á öllum sviðim.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 8.3.2019 kl. 17:40

12 identicon

monster muskie

Húsari. (IP-tala skráð) 8.3.2019 kl. 23:26

13 identicon

Halldór, við höfum verk að vinna:

Að berjast gegn innleiðingu orkupakka 3.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 02:43

14 identicon

Sæll Halldór.

Að lokum fagna allir?!

 

Húsari. (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418203

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband