Leita í fréttum mbl.is

Það skal í ykkur!

segir RÚV. Þið skuluð trúa á manngerðar loftslagsbreytingar.

Judith Curry og efasemdarfólk eru falsspámmenn því RÚV og AlGore vita betur.https://judithcurry.com

"Því hefur verið haldið fram að hlýnunin séu eðlilegar hitasveiflur, eins og verið hafa reglulega í aldanna rás, en Óskar segir að þær kenningar haldi ekki vatni því þetta sé að gerast mun hraðar en áður og og hlýnunin sé mun meiri. „Þetta eru mjög greinilegar hitafarsbreytingar, á ekki mörgum árum og kúrvan fer mjög hratt upp,“ segir Óskar. Hugmyndin að þáttunum kom fram í kjölfar Parísarráðstefnunnar 2015, þá höfðu þau Elín Hirst og Þórhallur Gunnarsson verið hvort í sínu horninu með sömu hugmyndina. Þau tóku höndum saman, ásamt Sagafilm og RÚV, fengu Óskar með sér í lið og Sævar Helga Bragason sem umsjónarmann þáttanna og hófu vinnslu af fullum krafti fyrir einu og hálfu ári.

Lögð er áhersla á að koma á framfæri upplýsingum um hinar ýmsu hliðar hnattrænnar hlýnunar á skýran og myndrænan hátt. „Þættirnir eru á mannamáli, þetta eiga ekki að vera leiðinlegir þættir þó að skilaboðin séu stundum svolítið sláandi. Það á að vera auðvelt að horfa á þá fyrir hvaða aldur sem er.“ Óskar segist vona að þættirnir séu skemmtilegir og verði hvetjandi fyrir áhorfendur til að breyta til betri vegar. „Við þurfum að taka þetta til okkar og velta þessu fyrir okkur sjálf. Það er fyrsta skrefið, að byrja að viðurkenna vandamálið, horfast í augu við það og fara að sjá möguleika og tileinka sér einhverjar lausnir. Það eru margar lausnir í boði. Stóra lykilatriðið er að kaupa minna.“

Ég hef ekki samþykkt að RÚV sé að eyða milljónum í að taka pólitískar afstöður í svo hæpnum málum sem loftslagsvísindin eru.

Er ekki stofnunni  skylt að láta gera aðra þætti sem sýna hina hlið málsins en ekki svona einstefnu með að það skuli í ykkur samt?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

STÆRSTA SVINDL SÖGUNNAR - LOFTSLAGSMÁLIN -EITRUÐ BLANDA HUGMYNDAFRÆÐI STJÓRNMÁLA OG TRÚARBRAGÐA SKÝRIR GÚSTAF SKÚLASON RÉTTILEGA Á ÚTVARPI SÖGU. ÞETTA ER SAGA DEMOKRATA Á HEIMSVÍSU OG EKKI SÍST Á FÁMENNU ÍSLANDI ÞAR SEM ALLT ER ÓMENGAÐ OG ÓLIFJAÐ LANDIÐ OKKAR OG FÆÐUFRAMLEIÐSLA. NÚ ERU SMÁBÖRNIN FARIN AÐ MÓTMÆLA VIÐ ÞINGHÚSIÐ ÞESSARI ENDALEYSU.

ÞÖKKUM "BLÁA HERNUM" EINS OG ÞEIR KÖLLUÐU SIG FYRIR 30/40 ÁRUM ÞEGAR ÞEIR HÓFUST HANDA VIÐ AÐ HREINSA STRÖNDINA OG FJÖRUNA "HEIMA VIÐ".NETADRÆSUR OG PLASTRUSL AF STRÖNDINNI.ÞETTA VAR UPPFUNDIÐ Á ÍSLANDI. NÆST GÆTU ÞEIR FARIÐ Í AÐ HREINSA MIÐJARÐARHAFIÐ?.

UMHVERFISBARÁTTUMAÐURINN PATRICK MOOR SANNAR SÖGUNA Í DAG. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 11.3.2019 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband