Leita í fréttum mbl.is

Að vera formaður

Sjálfstæðisflokksins er algerlega miskunnarlaust starf-, sagði Bjarni Beneddiktsson eldri. Það er ekki við öðru að búast en að gusti um þann sem því gegnir.

Gunnar Rögnvaldsson er ómyrkur í máli í hverju sem er. Hann veltir stöðu Sjálfstæðisflokssins tíðum fyrir sér og hefur af henni áhyggjur þó að mér vitanlega hafi hann ekki starfað margt á þeim vettvangi.

Hann skrifar svo á bloggsíðu sinni:

"....

Samhliða þessu áhlaupi á raforkumálin reyna íslenskir stjórnmála- og smásölumenn allt hvað þeir geta að fórna íslenskum landbúnaði á altari ríkisstyrkts ESB-landbúnaðar, og gengur þriðji-flokkur Framsóknarflokksins þar hve harðast fram. Ofan í þetta tvennt bætist svo sú staðreynd, að við Íslendingar ráðum varla lengur því hver býr í landinu okkar eða ekki; og svo því hverjum erlendum er verið að selja landið undan þjóðinni í skömmtum, eða ekki

Þegar ég hugsa um núverandi forystu Sjálfstæðisflokksins þá sé ég fyrir mér sennilega lélegasta formann flokksins frá upphafi, og sem fyrir aðeins nokkrum árum ætlaði sér að setja íslensku þjóðina í skuldafangelsi vegna skulda einkafyrirtækja. Við hverju má þá ekki búast þegar að íslensku olíunni kemur; raforkunni? Hvar er dómgreind hans? Formenn flokksins hafa verið þessir:

  1. Jón Þorláksson
  2. Ólafur Thors
  3. Bjarni Benediktsson
  4. Jóhann Hafstein
  5. Geir Hallgrímsson
  6. Þorsteinn Pálsson
  7. Davíð Oddsson
  8. Geir H. Haarde
  9. Bjarni Benediktsson

Traust mitt á forystunni í flokki mínum er því miður ekki til staðar í þessum efnum. Það hefur þurft að mata hana eins og hvítvoðung með teskeið á fullveldis-staðreyndum lífsins í næstum því 10 ár, bara til þess eins að flokkurinn rétt næði að lifa forystuna af.

Og aðeins eru nokkrir dagar liðnir frá síðasta mannfalli í flokknum. Þá vegna Evrópudómstóla sem fylgja uppskriftinni að einræði æ nánar. Evrópumálin eru að eyðileggja flokkinn, eins og þau mál hafa gert og gera út um alla Evrópu.

Er ekki kominn tími til að ranka úr EES-rotinu, sem breyttist í bankarotið vegna eins EES-samnings. Á kannski að eyðileggja enn meira?

Þjóðaröryggisstefna getur aldrei byggst á því að vona það besta. Slík stefna er og verður alltaf þjóðar-óöryggisstefna"

Já, Gunnar er ófeiminn við að segja sína skoðun eins og Styrmir Gunnarsson, sem deilir áhyggjum af gengisleysi Sjálfstæðisflokksins með Gunnari en talar kannski oftar "subrosa".

En það er ekki nóg að vera bara gagnrýninn. Maður verður að benda á leiðir út.

Ég var heldur ekki sammála Bjarna Ben þegar hann kynnti sitt "ískalda mat" á því að skynsamlegast væri að semja við ESB og borga leifarnar af Icesave. Hann mat það að áhættan væri meiri en að vera  þess virði að borga ekki afganginn. Við vorum svo sýknaðir Íslendingar en Bjarni sakfelldur fyrir afstöðu sína.

Ég var líka mjög ósáttur við Bjarna þegar hann hrærði í prófkjörinu í Kraganum með þeim afleiðingum að Villi Bjarna datt út af þingi og lækkaði þar með greindarvísitölu þingsins.Ég er algerlega á móti svona vinnubrögðum.

En býður Gunnar nokkurn annan fram til að taka við af Bjarna? Hvað eru flokksmenn óánægðastir með í Bjarna sem formann?

Ég skal vera hreinskilinn þegar um þetta er rætt enda orðinn hundgamall og hef úr engum söðli að detta, burtrækur úr flokknum í Kópavogi.

Bjarni ber höfuð og herðar yfir alla aðra þingmenn í málflutningi á Alþingi. Í samanburði við hann eru þar inni menn sem eru eiginlega zombíur í ræðu og riti. Að maður tali ekki um glæsileika íþróttamannsins. Hvað vantar þá?

Bjarni er fjölskyldumaður með ung börn.Hann hefur ekki fórnað allri lífshamingjunni fyrir þennan miskunnarlausa flokk.Lái honum hver sem vill. En Ólafur Thors vitnaði einhvern tímann í Tedda Roosewelt sem sagði að "life is a matter of appearance" Maður yrði að leika hlutverk sitt hvað sem manni fyndist sjálfum.

Sú saga var mér sögð af Grími heitnum í Íspan að Geir í Eskihlíð sagði honum að hann hefði aldrei treyst sér til að vera nótt að heiman frá búi sínu. "Ég fór eitt sinn einn dag austur fyrir fjall. Og það get ég sagt þér Grímur að það var allt komið í vitleysu þegar ég kom heim um kvöldið".

Það var sagt um Davíð Oddsson þegar hann fór fyrir ríkisstjórn að það lengsta sem hann treysti sér að fara frá voru örfáir dagar til London. Þá flýtti hann sér heim aftur því hann var svo logandi hræddur um að hinir ráðherrarnir myndu gera einhverja bölvaða vitleysu á meðan.

Davíð lagði sig allan fram í leiðtogahlutverkinu og skaphöfn og húmor hans sópaði til sín aðdáun hvar sem hann fór og gerir í raun enn þegar menn lesa skrifin hans.

Bjarni hefur alveg hæfileika til að sinna leiðtogahlutverkinu mun meira en hann gerir. Hann beinir hinsvegar orkunni meira inná við í skrifstofustörf. Hann getur heillað fólk ef svo ber undir. Og flest flókin mál liggja vel fyrir honum. En hann virðist ekki vera sérlega næmur á að hlusta á þytinn í laufinu. Hugsanlega hefur hann ekki nægilega góða ráðgjafa skorti hann næmið sjálfan.Hvað finnst honum um skoðanir flokksmanna á 3. orkupakkanum? Heyrir hann ekki?

 

Davíð þurfti ekki ráðgjafa því hann lagði aðeins eyrað að jörðinni.Húmor og léttleika þurfa leiðtogar að sýna út á við.

Geir Haarde söng umbarabassa á góðum stundum.

Jóhann Hafstein kunni vel að kætast.

 

Ólafur Thors gat verið hinn mesti æringi, fullur eða ófullur.

Bjarna Ben eldri gat vissulega sleppt fram af sér beislinu í góðum hópi og sopið vel á.

Þorsteinn Pálsson féll ekki í kramið hjá Bryndísi Schram fyrir að detta ekki í það með strákunum og varð ekki langlífur á formannsstóli frekar en í stjórninni með Jóni Baldvin og Steingrími Hermannsyni.

Davíð fór til Keflavíkur að taka á móti Bermúdaskálinni og lenti óvart í beinni útsendingu.

Skömmu síðar var ég í opinberu samkvæmi hjá virðulegum samtökum. Þar flutti Davíð alvarlegt ávarp um þjóðfélagsmál.

Svo bætti hann við að samtökin hefðu beðið hann um að gjöra sér gott af veitingunum. Ennfremur bætti hann við, að hann ætti nú líklega ekki að hvetja menn til drykkjar af öllum mönnum og kímdu þá margir. Svo bætti Davíð við að Dean Martin hefði samt sagt að eiginlega væri enginn fullur sem gæti legið óstuddur í gólfinu. Og enginn sá Davíð nokkru sinni hreifan opinberlega síðan í Keflavík svo ég viti til.

En sprellað gat hann Davíð fyrirvaralaust eins og þegar hann byrjaði stóra fundinn í Garðabæ með því að fara með vísu sem endaði svona "....bláa höndin blessi þig, í bak og fyrir vinur. Hef ég sjaldan heyrt jafn marga hlæja eins mikið.

 

Þessi vísa var kveðin um séra Arnljót , sem var þingskörungur á liðinni öld:

Mér er um og ó um Ljót

ætla hann bæði dreng og þrjót,

Í honum er gull og grjót,

getur unnið mein og bót.

 

Svo er líklega um alla menn að þeim eru mislagðar hendur. Bjarna Benediktssyni líka. En menn geta alltaf bætt sig ef þeir reyna virkilega.

En það er nú svo að enginn getur bent á neinn Sjálfstæðisþingmann sem er í standi til að taka við af Bjarna ef með þyrfti. Þetta lið sem búið er að raða pópúlískt á toppinn í flokknum hefur enga burði til þess eins og stendur eða hvað finnst mönnum?

Svo verðum við ekki að styðja formann okkar Bjarna Benediktsson og þá góðu hæfileika sem hann hefur og vona að hann taki við aðfinnslum og geri okkur og sjálfan sig ánægðari með að vera formaður Sjálfstæðisflokksins? 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Halldór. 

Það er ekki hlutverk kjósenda að vinna fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það er flokkurinn sem á að vinna fyrir kjósendur, Halldór. Hollt er að muna það.

Flokkurinn, það ert þú og það er ég og allir þeir sem í honum eru og svo vonandi einnig þeir sem kjósa hann. Enginn á þennan flokk. Hann á sig sjálfur.

Með þessu áframhaldi þá vinnur flokkurinn enga sigra fyrir þá kjósendur sem vilja kjósa hann. Og þá hætta kjósendur að kasta atkvæði sínu í þá forystu sem flokkurinn er með núna.

Eyþór Arnalds er fínt efni í nýjan formann. Hann gæti opnað gluggana á Valhöll og hent iðnbyltingar- og metoo-spákonustaffi Bjarna, hins bráðnandi ísjaka, út og endurreist flokkinn með því að endurreisa varðstöðuna um þau mál sem hann er stofnaður til að standa vörð um, í stað þessa að flækjast fyrir sjálfum sér eins og naut.

Allir hljóta að sjá að þessi forysta sem nú er, virkar ekki. Hún er orðin bremsuklossi á framtíð flokksins.

Hvað sem hæfileikum og persónutöfrum Bjarna liður, þá virka þeir ekki. Hann er orðinn ófær um að leiða flokkinn til sigurs.

Ég get vel haft rangt fyrir mér um eitt og annað í þessu máli, en svona gengur þetta ekki lengur. 

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 19:57

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Eyþór er nú ekki óumdeildur. Það logar víst ennþá á staurnum í huga einhverra.En ég er ekki langt frá þér í hugleiðingum um framtíð flokksins sem við eigum hlut í. Gengið  er ekki að hækka með þessu liði. 

Halldór Jónsson, 22.3.2019 kl. 20:37

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ekki viljum við óumdeildan nyjan formann. Mann sem aldrei hefur gert neitt.

Jæja, er netlaus vegna veðurs. Pára þetta á gsm-tæki fyrir smábarnafingur.

Gunnar Rögnvaldsson, 22.3.2019 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband