Leita í fréttum mbl.is

Fín ferð á Florída

var hjá okkur hjónum í dag . Keyrðum á þriðjahundrað kílómetra á átta cylindra Cadillac eftir breiðvegakerfinu hér í Florida þar sem oft meira en átta akreina rennisléttir vegir liggja um dásamlega fallegar jafnbreiðar einingabrýr um mislæg gatnamót. Endalaus straumur fallegra bíla eyða bensíni sem kostar 70 krónur á lítrann í náttúrufegurðinni í grænum skógum.

Það er hvíld að heyra ekki kjaftæðið um orkuskiptin þegar jarðefnaeldsneytið er sú orka sem mannkynið ekki getur verið án. 

Það er dásamlegt að heyra ekki í vitleysingunum sem þrugla um einhverja gangandi og hjólandi umferð sem þekkist ekki í þessu stóra og frjálsasta landi heimsins. Þar sem hagvöxtur æðir upp meðan Evruspekingar á Íslandi vilja hneppa þjóðina í grískan þrældóm. 

Hvaða þá að maður heyri þvaður um einhverja Borgarlínu, kolefnisgjöld og kvóta sem þarf að kaupa af Evrópusambandinu fyrir skattfé borgaranna þegar bíllinn er almenningseign og sá samgöngumáti sem einn gengur upp í svona ríki.Og auðvitað alls staðar þar sem  vitibornar verur ráða ríkjum.

Bandaríkin eru land hinna frjálsu sem hafa vit á að kjósa sér forseta með viti eins og Donald J. Trump sem dettur ekki í hug að hlaupa eftir hindurvitnum hinna fjörtíuþúsund fífla frá París hvað þá að hlusta á barnakjána í Noregi sem krefjast þess að Norðmenn hætti olíuvinnslu vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Trump segir olíufyrirtækjunum að dæla sem mest þau mega til að lækka orkuverðið til almennings í öllum heiminum.Heimsleiðtogi er þessi maður meðal fífla.

Hvað gera okkar Alþingisbjálfar´i orkumálum?

Skattleggja þeir ekki þá sem minnst mega sín vegna sérvisku hálfvita og umhverfisfasista? Láta okkur eyðileggja bensínið með því að blanda etanóli í bensínið sem er framleitt úr maís sem er tekinn frá hungruðum heimi fyrir tilverknað umhverfisfíflanna.

Skömm fyrir okkur sem þjóð og þær vitibornu verur sem við segjumst vera. 

Ferð á Florida er hvíld frá heimskunni

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór.

Þessi færsla þín er sem ferskur andvari í morgunsárið hér í ruglið og spillinguna.

Njóttu vel.

Jónatan Karlsson, 25.3.2019 kl. 07:13

2 identicon

Halldór, njóttu lífsinssmile.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 25.3.2019 kl. 09:40

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk  fyrir þetta Jónatan og Hörður

Halldór Jónsson, 25.3.2019 kl. 09:52

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Getur þú ekki tekið íslenska stjórnmálamenn með þér í næstu ferð!!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.3.2019 kl. 09:55

5 identicon

Gaman að lesa um ferð ykkar Halldór og sjá fyrir sér allan þann glæsileik sem þú lýsir s.s vegakerfið. Því miður eigum við ekki mann sem Bandaríkin fá nú að njóta sem stjórnanda Donald Trump. Við höfum nú aðeins þingflón eins og þau sem eru að leggja fram á alþingi brautargengi fyrir orkupakka 3.

Með um ósk um gott ferðagengi og góðar kveðjur.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 25.3.2019 kl. 11:26

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Florida er alltaf skemmtilegt heim ad saekja.

Tala nu ekki um ad komast fra ruglinu heima sem

stjornast af thvi mesta aulalidi sem eg hef sed

fra thvi madur fekk kosningarrett.

Hafdu thad sem best.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 25.3.2019 kl. 13:01

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Flott hjá þér Halldór. Öfunda þig að keyra Cadilakkan og heyra mótorinn murmura í hægðum sínum krúsandi um Florida.

Margir flottir staðir Cape og Cocoa Beach hvað þé Key west þar sem rithöfundurinn vinsæli Henningway var og drakk wiskeyið sitt á kvöldin. Njóttu og láttu kötuna mala en okkur vantar Co2 í gróðurhúsin okkar hér á Íslandi.  

Valdimar Samúelsson, 25.3.2019 kl. 13:14

8 identicon

BESTU TRUMP KVEÐJUR HALLDÓR TIL MAR-a-LAGO Á FLORIDA FRÁ STRÁKUNUM Á ÍSLANDI.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 25.3.2019 kl. 13:49

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir allir saman. Megið þið allir komast í frí frá ruglinu hingað til okkar Trumps, sem var hérna sjálfur fyrir helgina.

Halldór Jónsson, 25.3.2019 kl. 15:11

10 identicon

Sæll Halldór.

Hér hefur Hinrik VIII tekið nokkrum breytingum
og því er ekki að neita að ótiltekin
sjónvarpsstjarna er í stórhættu!

Njóttu dvalinnar í Flórida í tætlur!

Húsari. (IP-tala skráð) 25.3.2019 kl. 15:14

11 Smámynd: Einar Karl

Sæll gamli,

þú ættir endilega að horfa á þættina sem sýndir eru á RÚV á sunnudagskvöldum og heita "Hvað höfum við gert?

Ekki það að það sé líklegt til að breyta þinni gamaldags heimssýn og afneitun á helstu vandamálum mannkyns.

En góðu fréttirnar eru þær að næstu kynslóðir taka meira mark á staðreyndum og það eru ÞÆR sem taka munu við eftir þína daga.

Einar Karl, 25.3.2019 kl. 17:29

12 identicon

Það ríkir grafarþögn yfir þessari mynd!

Animals With Degrees : 4-The cat that was almost accepted by a real community college.  In 1973, a Florida cat named Kitty O'Malley gratuated high schoolafter her owners sent $25 to a diploma mill. She was then almost accepted to the very real Polk Community College, but the institution discovered her ruse and subsquently rejected her......

Húsari. (IP-tala skráð) 25.3.2019 kl. 19:19

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Eins og ég sagði hvilist maður frá heimskunni hér á Florída. Hún er víða

Halldór Jónsson, 25.3.2019 kl. 19:34

14 identicon

"HUGLEIÐING UM UNDIRSTÖÐU LÍFSINS" ER MERKILEG GREIN Í MBL Í DAG EFTIR VILHJÁLM EYÞÓRSSON "RANSÓKNARMANN",SEM STUNDAR RITSTÖRF UM GUFUHVOLFIÐ OG LOFTSLAGSMÁL SVO EITTHVAÐ SÉ NEFNT. VEL SKRIFUÐ GREIN TIL FRÓÐLEIKS UM "EILÍFÐARMÁLIÐ".   

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 27.3.2019 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418133

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband