Leita í fréttum mbl.is

Er Vá fyrir dyrum?

þó að WOW hætti starfsemi?

Svo segir í Mbl.:

"Tap flugfélagsins WOW air nam 22 milljörðum króna í fyrra. Þar af var EBITDA félagsins (afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta) neikvæð sem nam 10 milljörðum króna. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins. Tap sem varð í tengslum við sölu fjögurra nýlegra Airbus-þota til Air Canada undir lok síðasta árs hafði mikil áhrif á afkomuna. Þar hafi munað mest um að tveir þotuhreyflar sem fylgdu með í sölunni hafi ekki staðist söluskoðun og að það hafi rýrt mjög söluandvirði vélanna. Hlutfallið neikvætt um 83%

Afleit afkoma félagsins veldur því að eigið fé félagsins er um þessar mundir neikvætt sem jafngildir rúmum 13,3 milljörðum króna. Það þýðir að eiginfjárhlutfall félagsins er neikvætt um 83%. Gera áætlanir félagsins ráð fyrir að enn muni staðan versna og að eigið fé verði neikvætt um mitt ár sem nemur 14 milljörðum króna. Það jafngildir því að eiginfjárhlutfall félagsins verði neikvætt um 87%. Sömu gögn sýna að í lok árs er gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall félagsins verði neikvætt um 101%.

Isavia lánar til tveggja ára

Heimildir Morgunblaðsins herma að Isavia hafi komið til móts við erfiða stöðu WOW air og breytt kröfum vegna lendingargjalda, sem komnar voru yfir gjalddaga, í lán til tveggja ára. Nemur upphæð lánsins um 1,8 milljörðum króna og ber það 6% vexti. Lendingargjöld sem komin eru fram yfir gjalddaga bera alla jafna dráttarvexti, eða 10,25%. Skuldir WOW air nema um þessar mundir 20 milljörðum króna.

Ásamt skuldinni við Isavia er Arion banki stór lánardrottinn félagsins. Upplýsingar sem Morgunblaðið hefur undir höndum sýna að langtímalán sem bankinn hefur veitt standa í tæpum 1,6 milljörðum króna. Lánin eru öll veitt til þriggja ára. Tvö þeirra eru á gjalddaga á næsta ári en þriðja lánið var veitt á þessu ári og verður gert upp árið 2022.

Aðrir stórir lánveitendur WOW air eru flugvéla- og hreyflaleigufyrirtæki.

Stærsta skuldin er við Avolon eða jafnvirði 1,9 milljarða króna. Þá er einnig 1,6 milljarða skuld við flugvélaleigufélagið ALC sem á flestar þeirra þota sem WOW air notast við enn í dag. Skortir mjög lausafé Upplýsingar sem Morgunblaðið hefur séð sýna að þörf er á að minnsta kosti 10 milljarða innspýtingu í félagið á þessu ári, eigi það að eiga sér viðreisnar von. Sem stendur er lausafjárstaða félagsins neikvæð sem nemur ríflega 11 milljónum dollara...."

Til hvers stofnaði Skúli Mogensen WOW?

Til að hjálpa hnípinni þjóð í vanda sem vantaði ódýr flugsæti?Ekki ætlaði hann að græða eitthvað sjálfur?

Hvað olli stofnun WOW miklu tapi hjá Icelandair? Hvert fóru þeir peningar annað en til okkar almennings?

Margt slíkt má ímynda sér þegar umræðan er skoðuð.

Tapar þjóðin einhverju meira en þeir sem eiga núna inni fargjöld hjá flugfélagi sem ekki flýgur meira?

Á þjóðin miklar vonir um að fá lendingargjöldin greidd eftir 3 ár?

Á Aríon eftir að fá allt sitt og aðrir bjartsýnismenn?

Verður Skúli greyið ekki ósköp blánkur ef WOW hættir? Vorkennum við honum ekki alveg ægilega?

Verður samgöngubrestur hjá þjóðinni ef WOW hættir? Varla lengi miðað við þann aragrúa flugfélaga í heiminum.

Það er allstaðar skortur á hæfu flugfólki og ungt fólk er að læra til þeirra starfa unnvörpum.

Svo verður ekki Skúli Mogensen að sætta sig við að kærleikur hans til hinnar jarðbundnu íslensku þjóðar nái ekki lengra að sinni vegna skorts á peningum?

Eru ekki flest mannleg vandamál líka byggð á þessum fjárans blánkheitum allstaðar? Hjá Eflingu sem og víða annarsstaðar?Sami bardaginn hjá Sólveigu Önnu, Villa Birgis. og Skúla Mog.? Þetta helvítis krónu- og aurasuð alla daga?

Mér finnst ég sjálfur  hafa alveg fengið minn skerf af slíku um dagana og aldrei fengið það sem mig vantaði þannig að samúð mín er með öllum þeim sem vantar aura.Blánkheit eru svakalega svekkjandi í mínum augum.

Auðvitað er Vá fyrir dyrum alla daga þegar peningana vantar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband