Leita í fréttum mbl.is

Hvað kostar Skúli Mog?

íslenskan almenning?

Hann leigir Magnús Árna Skúlason hagfræðing til að mála skrattann á vegginn ef ´ríkið kemur honum ekki til bjargar. Svo segir m.a.í Mbl.:

"Gæti veikst um 5-10% Magnús Árni Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics, var annar skýrsluhöfunda. Hann segir aðspurður ekki ólíklegt að gengi krónu muni veikjast um 5-10% með brotthvarfi WOW air. Verðbólguáhrifin séu þriðjungur af gengisfalli sem þýðir að slík veiking skilar 1,7%-3,3% verðbólgu. Með því myndi verðbólga, sem nú mælist um 3%, að öðru óbreyttu fara í 5-6%. „Þetta ræðst líka af því hvernig kjarasamningar fara. Ef laun hækka langt umfram innstæðu og hagnaður fyrirtækja dregst saman gætum við séð víxlverkun launa og verðlags, líkt og á 9. áratugnum,“ sagði Magnús Árni, sem telur að Seðlabankinn muni verja gengi krónunnar meðan á kjaraviðræðunum stendur."

Hvað kostar gengisfall krónunnar um 10 %? Verður það undir 200 milljörðum sem almenningur þarf að greiða strax?. Svo til viðbótar kemur óðaverðbólga og stórhækkun allra skulda?

Hvort á Skúli Mog. flughetja  heldur að fá Fálkaorðu eða vera tjargaður og fiðraður á Austurvelli?

Það er nokkuð afrek að hafa leikið lánardrottna sína svo hart að þeir sjá engan annan kost til að afskrifa ekki allt klabbið á einu bretti  að breyta skuldunum í hlutafé sem hugsanlegri frestun á ógæfunni. Það er ekki svo lítið afrek hjá Skúla Mog.

Hann Skúli Mog. er þegar orðinn íslenskum heimilum dýr eftir hans eigin útreikningum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En á móti kemur að hann hefur átt stóran þátt í styrkingu krónunnar undanfarin ár. Auk þess sem hann hefur skilað þjóðarbúinu milljörðum, skapað þúsundir starfa og hann átti stóran þátt í því að koma okkur á fætur eftir hrunið. Þó eitthvað af þessu gangi eftir til skamms tíma er hann samt búinn að skila heimilunum töluverðum upphæðum umfram það sem gjaldþrot WOW gæti kostað.

Vagn (IP-tala skráð) 26.3.2019 kl. 15:10

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Halldór

Alltaf kemur betur í ljós hversu mikill snillingur (refur) Skúli er.

Með því að fá lánadrottna sína til að breyta skuldum í hlutabréf og selja síðan rest, hefur honum tekist að koma sjálfum sér skaðlaust frá ruglinu.

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 26.3.2019 kl. 15:25

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ertu svo viss um aðþ etta gangi upp í plús Vagn?

Netop Gunnar.

Halldór Jónsson, 26.3.2019 kl. 16:04

4 identicon

Mér finnst furðulegt hvað mörgum er illa við Skúla fyrir það eitt að gera stórum hópi fólks kleift að ferðast. Icelandair er nokkurskonar ríkisfyrirtæki með alla lífeyrissjóðspeningan og nú síðast risafyrirgreiðslu frá ríkisbanka. Þeir hafa haft ákveðna einokun á markaðnum.Ég fagna öllu einkaframtaki,en ég hef meiri áhyggjur af því að Icelandair geti kostað þjóðina margfalt meira en Skúli.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 27.3.2019 kl. 11:17

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hver græðir ef Icelandair hagnast? Einhverjir aðrir en íslenskir aðilar? Lífeyrissjóðirnir aðallega er það ekki svo?Hverjir tapa svo ef illa gengur?Jón Ásgeir eða einhverjir útlendingar?

Halldór Jónsson, 27.3.2019 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband