Leita í fréttum mbl.is

Má ekkert ?

hafa efasemdir um hollustu innflutts hrámetis án þess að ESB liðið verði vitlaust?

Er ekkert að marka svona fólk eins og þennan Vilhjálm og hana Margréti sálugu Guðnadóttur?

 "Það að flytja inn ferskt ófrosið kjöt með allri þeirri sýklalyfjaónæmu flóru sem þá kæmi á færibandi er álíka viturleg ákvörðun og að segja handþvott á spítölum óþarfan, að mati Vilhjálms Ara Arasonar læknis.

Í Morgunblaðinu í dag segir hann að kjöt og kjúklingar geti í allt að helmingi tilvika verið smituð af sýklalyfjaónæmum flórubakteríum; það er í öðrum hverjum kjötbita eða kjúklingi."

Er það bara heildsalaliðið sem hefur vit á heilbrigðismálum?

Er nokkur von til þess að íslenskir heilbrigðisembættismenn setji einhverjar kröfur um sannanir fyrir því að innflutningsketið standist einhverjar bakteríukröfur svona í þágu almennings?

Eða má ekkert efast um ESB-visku Viðreisnar og Samfylkingar?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er eins og með þriðja orkupakkann.  Að mati fjölmiðlafulltrúa Engeyjar RÚV, Jóhönnu Vigdísi, er Gulli gullrass mesti lögspekingur þjóðarinnar frá árdaga.  Næst mest er Þórdís Reykás sem hefir það þó fram yfir Gulla, að hún getur brugðið sér í líki Bjarna Junior, hvað fas og tjáningu varðar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.4.2019 kl. 19:27

2 identicon

Aðrir mega ekki tjá sig málið.

Bara þau, jú og Björn Bjarnason af því Gulli leyfir honum það því Gulli blöffaði hann svo illa í prófkjöri hér um árið. Því má Bjössi stýra 26 milljóna króna nefnd um EES.  Auðvitað borgað af skattfé almennings.  Hvar væru þessir vesalingar staddir ef þeir gætu ekki alltaf seilst í ríkissjóð?   

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 8.4.2019 kl. 20:16

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ekki gleyma esb visku Framsóknarflokksins, hvar dýralæknir er nú formaður, auk visku vg og forystu esb undirlægja, kratakjána og málstaðssvikara í forystu Sjálfstæðisflokksins. Viska þeirra felst aðallega í því að afgreiða erlend regluverk, án svo mikils sem lesa þau yfir eða kynna sér afleiðingarnar. Það er ekki hugsað langt fram í tímann hjá þessu einskisnýta liði. Á þetta  fólk engin börn? Fávís Tuðari barasta spyr!

 (Hugsa sér nafni, að maður skuli láta svona út úr sér um forystu flokksins síns, en sú á nú aldeilis duglega hirtingu skilið fyrir launráðin og svikin.)

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 8.4.2019 kl. 23:06

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það hvort kjöt er fryst eða ferskt breytir engu um sýklalyfjaónæmið. Það hefur margoft komið fram.

Þetta er enn eitt "fake news" áróðursbullið. Hver tilgangurinn er, það er mér hulin ráðgáta.

Þorsteinn Siglaugsson, 9.4.2019 kl. 00:03

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þorsteinn, hvaða rannsóknir hafa sýnt óyggjandi fram á þetta?

Jóhann Elíasson, 9.4.2019 kl. 09:14

6 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Það kemur mjög á óvart ef jafn vandaður maður og Vilhjálmur Ari Arason læknir lætur frá sér fara "fake news" áróðursbull. Þekking hans á þessu sviði er mikil og fjarri því að hann hafi einbeitt sér að influttu kjöti. Árum saman hefur hann beitt sér gegn og varað við ofnotkun sýklalyfja, löngu áður en innflutningur hófst á menguðum landbúnaðarvörum.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 9.4.2019 kl. 11:47

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú getur spurt hvaða dýralækni sem er að þessu Jóhann. Bakteríurnar eru til staðar í kjötinu þótt það sé frosið.

Þorsteinn Siglaugsson, 9.4.2019 kl. 13:11

8 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Velti fyrir mér hvort spurningin í titli þessa pistils sé rétt. Þú spyrð "Má ekkert?" en það sem þú átt við er "Má ekki banna neitt?".

Þorsteinn Siglaugsson, 9.4.2019 kl. 13:12

9 identicon

ORKUPAKKINN, S A L A N  á LANDINU OKKAR og innflutningur á HRÁU og FROSNU KJÖTI eru STÓRMÁL ÍSLENDINGA. FRAMLEIÐSLA BÆNDA og GRÓÐURHÚSA gefur vinnu til TUGÞÚSUNDA ÍSLENDINGA.

Við  "fyllum" Landið OKKAR af erlendum FERÐAMÖNNUM,sem meta ÓMENGAÐ Landið OKKAR og GESTRISNI ÍSLENDINGA.

FARFUGLARNIR koma erlendis frá, en skaða OKKUR EKKI,því þeir borða ALÍSLENSKAN mat og drekka VATNIÐ okkar. Við eigum að setja reglur um víðförla ERLENDA FERÐAMENN. BORÐIÐ ÍSLENSKAN MAT og drekkið VATNIÐ eins og FARFUGLARNIR. Þannig verður Landið OKKAR ómengað.

ÉG ÓSKA EFTIR MATSÖLUSTAÐ/RESTAURANT,SEM AUGLÝSIR ÍSLENSKT KJÖT, GRÓÐURHÚSIN OG ÚTIRÆKTAÐ AF ÓMENGUÐU LANDINU OKKAR.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 9.4.2019 kl. 14:51

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Málið snýst bara um magn baktería í rúmmáli kjöts,. Það var enginn að tala hér um frystingu eða ekki. Bara bakteríurnar.

Má ekki fara fram á að þær séu mældar áður en kjötið fer hér í búðirnar?

Halldór Jónsson, 9.4.2019 kl. 16:14

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kjötið er í búðunum hvort eð er Halldór. Það er bara frosið en ekki ferskt.

Og enn er nú ekki búið að mæla bakteríurnar í íslenska kjötinu

Þorsteinn Siglaugsson, 9.4.2019 kl. 16:40

12 identicon

VIÐ RÆÐUM VEL VEGFERÐ BÆNDA, SJÁVARÚTVEGS OG ORKUMÁL. MORGUNBLAÐIÐ ER BLAÐIÐ MITT VEGNA GÓÐRA GREINA DAVÍÐS, STYRMIS,GEIRS WAAGE, JÓNS STEINARS OG STEFANÍU JÓNSDÓTTUR FRÁ SAUÐÁRKRÓKI EN HÚN SKRIFAR Í MBL 6.APRIL:

"ÉG MÓTMÆLI ÖLLUM UNDIRSKRIFTUM, SÖLU OG GJÖFUM Á AUÐLINDUM OKKAR. ÉG VIL FÁ AÐ VITA HVER Á ÍSLAND OG HVER STJÓRNAR LANDI OG ÞJÓÐ".

STEFANÍA ER EIN/EINN ÞEIRRA, SEM VELDUR ÞVÍ AÐ ÉG ER ÁSKRIFANDI AF OKKAR ÁGÆTA MORGUNBLAÐI. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 10.4.2019 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband