Leita í fréttum mbl.is

Breytt viðhorf í pólitík

eru að verða hjá ólíklegasta fólki og flokkshestum.

Nú finnst mér liggja nokkuð ljóst fyrir að meirihluti núverandi Alþingis Íslendinga er hlynntur því að tengjast Evrópu þéttari böndum með því að koma orku okkar á evrópskan samkeppnismarkað. Allt orðagjálfrið um einhverja fyrirvara sannfærir mig ekki.

Og er ekki sagt svo að geti maður ekki sigrað þá  eigi  maður að ganga í lið með þeim. Og þegir um tilfinningar sínar.

Mest er nú rætt um að sæstrengur  verði lagður til Bretlands af einkaaðilum.Kollega Skúli Jóhannsson birti ágæta grein í Morgunblaðinu um kostnað að slíkum orkuflutningi. Að vísu kann það að breyta einhverju gangi Bretar úr Evrópusambandinu og hvort þeir þá verða á sameiginlega orkumarkaðnum sem manni finnst nú líklegra.

Ég hef haft af því spurnir að að Bretar séu að vetnisvæðast í talsverðum mæli og draga úr gasnotkun. Þeir hljóta þá að vinna vetnið úr gasi þar sem Bretland er sagt fljóta á gaspolli. Þá hlýtur að losna mikið kolefni hvernig sem þeir fara með það síðan.

Þá finnst mér vakna sú spurning hvort rafgreining á vatni á Íslandi geti framleitt vetni á hagkvæmu verði. Einhvern veginn finnst mér að lagning á röri til Bretlands sé auðveldari framkvæmd en lagning rafstrengs með tilheyrandi riðils og tapakostnaði sem ekki væri við blástur á vetni í gegn um rör. Sjálfsagt væri vitlegt að láta vetnisrörið koma í land þar sem hægt væri á leiðinni til að stytta viðgerðarleggina, til dæmis í Færeyjum (og jafnvel Rockall ef hann væri í leiðinni.)

 Það má minnast þess að Bandamenn dældu öllu eldsneyti innrásarliðsins í gegn um rör undir Ermasund í heimstyrjöldinni án þess að Þjóðverjar hefðu hugmynd um. Rörið er líklega ennþá á sínum stað og kannski viðgerandlegt ef það er þá ekki bara enn í notkun.

Ef það reyndist hagkvæmt að Íslendingar keyptu sjálfir sína raforku á því verði sem aðrir vilja greiða fyrir hana og notuðu hana innanlands til að framleiða vetni sem við gætum selt áfram, þá má segja að ásættanlegri lausn væri komin á þessum orkupakkamálum og hinu heilaga Evrópusamstarfi. Allt eru þetta þó hlutir sem kanna þarf betur.

Pólitískar aðstæður hafa breyst nokkuð í seinni tíð. Sjálfstæðisstefnan eins og ég kann hana er nú orðin að orðagjálfri sem ég veit núna að fáir forystumanna kunna eða taka  hátíðlega . Hugsjónamennska í pólitík eins og hún var í gamla daga er varla  lengur til heldur fremur aðeins hentugleikar.

Þegar kemur að kosningum verður maður að raða því upp fyrir sér hvort maður telji að Smári McCarthy, Þórhildur Sunna og Björn Leví séu líklegri til að vinna manni meira eða minna tjón heldur en Bjarni Ben, Guðlaugur Þór og Þórdís Reykfjörð. Eða hvort maður treysti öðrum betur til að skaða mann minna en Katrín Jakobsdóttir eða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Maður rifjar ósjálfrátt upp fyrir sér þegar Bjarni Benediktsson gamli sagði við okkur í Sjálfstæðishúsinu á umbrotatíma í gamla daga  þegar margir voru reiðir í flokknum: „Munið þið piltar að þó við séum vondir þá eru aðrir verri.“

Þannig verður hugsanlega afstaða sumra í stjórnmálum næstu framtíðar. Menn hætta að trúa því að forystumenn gangi erinda annarra en sjálfra sín og þrengri hagsmuna og skipi sér í flokka út frá því en ekki einhverri gamalli flokkstryggð.

Verði ekki líkir Halldóri E. Sigurðssyni sem sagði við undirritaðan að hann hefði nú alltaf kosið B og hann kynni ekki annað.  Sama hefði hann Halldór afi minn Skaptason sagt um D listann. Halldór nafni minn E. var svo staðfastur að ef einhver ókunnugur annar hafði tekið skápinn hans í Sundlaugunum þá var sagt að hann færi heim aftur án þess að fara ofan í.

Það er víst víða um heim að virðing fyrir stjórnmálamönnum fer þverrandi. Þeim er ekki treyst lengur eins og áður var. Traust er nefnilega einnota segir einn vinur minn og fer eftir því í mati á stjórnmálamönnum. Þeir bregðast honum bara einu sinni í stórmálum eins og til dæmis Icesave eða Icelink. En ég skal viðurkenna hér og nú að traust mitt og trú á Trump hefur ekki beðið hnekki til þessa. Hann lætur ekki hræra í sér svo glatt.

Það eru að verða breytt viðhorf í pólitík sem maður verður að gera sér ljós.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór.

Athyglisverðar breytingar hafa orðið
á stjórn og stjórnarandstöðu á Alþingi.

Það sem virtist gamansemi SDG þegar hann
sagði flokkana á Alþingi vera samtryggingarflokkana
og Miðflokkinn er í raun það sem blasir við
að mér virðist.

Þetta er athyglisverð þróun og sýnir að svo mjög
er ótti fyrrum stjórnarandstöðuflokka við Miðflokkinn
og fylgi hans að þeir kjósa sér frekar hlutskipti
varaskeifunnar undir vakurri og fótvissri ríkisstjórn
en að reyna einusinni að etja nokkru kappi við
margnefndan Miðflokk.

Slíkt gerist tæpast nema einhver kaup hafi átt sér stað
og ekki verra en hvað annað að liggja yfir þeirri krossgátu
hvernig því hefur verið háttað, - ef við á.

Til gamans þá veit ég ekki um neinn Íslending
lífs eða liðinn sem þekkist af stöfum sínum einum nema (SDG)
Sigmund Davíð Gunnlaugsson og (HKL) Halldór Kiljan Laxness.

Geri aðrir betur!

Húsari. (IP-tala skráð) 11.4.2019 kl. 12:53

2 identicon

Sæll Halldór jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Um liðsfólk hefðbundnu flokkanna: þarf nú ekkert að fjölyrða / né siðferðisleysi þess, þeirra helzta keppikefli er og verður, að moka fúlgum fjár í sínar prívat skjóður:: á okkar kostnað, þinn og minn Halldór minn, sem annarra landsmanna, þrátt fyrir afkastaleysið til, heildar hagsmunanna.

Talandi um Píratana - siðblinda Borgarstjórnar arms þeirra, suður í Reykjavík, dæmir þá algjörlega úr leik alvöru umræðu, á meðan þeir halda Skjaldborg sinni, þéttar og meir, að Degi B. Eggertssyni og fígúrunum, umhverfis hann.

Því miður. 

Húsari ! 

Klám Klausturs Bars flokkur (svo nefndur Miðflokkur): Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar heldur áfram, að vaða reyk tækifærismennzku og lýðskrums / og verst þótti mér í gær (10.IIII. s.l., skv. Eyjunni.is), að Gunnlaugi Ingvarssyni, leiðara Frelsis flokksins skyldi verða það á, að hrósa Sigmundar Davíðs genginu fyrir meinta framgöngu þess, í III. Orkupakka svindli ESB, sem þau Katrín Jakobsdóttir (lesizt: Steingrímur J. Sigfússon) - Bjarni bandítt Benediktsson, að ógleymdum skatta- og gjaldaglöðum Sigurði Inga Jóhannssyni fara nú einna fremst fyrir, til ÖGRUNAR landsmönnum, sem og hagsmunum víðtækum, til mjög langra / sem skemmri tíma litið.

Ég hélt þig - ívið framsýnni en svo, Húsari góður.

Með beztu kveðjum: engu að síður, af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.4.2019 kl. 13:57

3 identicon

Sæll Halldór.

Óljóst er hvort nokkur fái haldið aftur af Dýrinu Miðflokknum!
(ekkert er óljóst viðkomandi óendanlegri fráfræði minni!)

...EL ÁRTE TRASPASA LAS PUERTAS DE NUESTRA IMAGINACIÓN... DEJALÉ ENTRAR...♥  MIGUEL ÁNGEL GARCÍA SANDOVAL.

Húsari. (IP-tala skráð) 11.4.2019 kl. 14:23

4 identicon

Sæll Halldór.

Það gæti verið þess virði fyrir Miðflokkinn
að leika þann leik sem dugir til að komast
spönn lengra en fyrrverandi sjórnarandstöðuflokkar
og þiggja örlítið úr pokanum í leiðinni!
(svefnmóki yfir þessu sjónvarpsefni myndi vonandi ljúka!)

3D art

Húsari. (IP-tala skráð) 11.4.2019 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband