Leita í fréttum mbl.is

Barbabrella!

Allt í plati!

Í Orkupakka 3 stendur svo:

"Aðildarríkin skulu vinna náið saman og

fjarlægja hindranir í vegi 

viðskipta

með raforku og jarðgas 

yfir landamæri  

í því skyni að ná fram markmiðum

Bandalagsins á sviði orku."

Halda þeir Guðlaugur Þór, Björn Bjarnason, Einar S.Hálfdánarson, Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir því fram að ég og aðrir miskiljum þetta svona algerlega  og að við samþykkjum því að Alþingi fullgildi þessa stefnu Evrópusambandsins?

Erum við svona augljóslega heimsk?

Ef svo er þá er ekki ráðlegt að boða okkur á Landsfund Sjálfstæðisflokksins, við erum ekki til þess hæf.

Mun þessi litli og huggulegi Sjálfstæðisflokkur ekki komast mun betur af án okkar heimskingjanna?

 

Undirskriftin á 3. orkupakkanum er nefnilega bara:

Barbabrella! Allt í plati! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér Halldór, ég held að forysta flokksins okkar hafi týnt sambandinu við GRASRÓTINA, Það er miður.

Kveðja að Vestan

Þorsteinn

Ps. Ég held að við séum ekki heimskari en gengur og gerist!!!

þorsteinn Jóhannesson (IP-tala skráð) 12.4.2019 kl. 23:51

2 identicon

Með hroka sínum og lítilsvirðingu gagnvart stuðningsmönnum flokksins um ára og áratugaraðir

mun þetta forystulið standa eitt út á túni,

berrassað og enginn ærlegur sjálfstæður maður

mun vilja líta það augum,

hvað þá nokkru sinni styðja og kjósa það aftur.

Í næstu kosnongum mun sjálfgræðgis-landsöluflokkurinn fá að hámarki 18,2% fylgi

en líklega nær 15% fylgi. 

Hrokinn og svikin munu ekki gleymast.

Syndaregistrið mun verða rifjað upp, aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 01:40

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég er þá í hópi "heimska fólksins" og er alveg sáttur við það!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 13.4.2019 kl. 10:08

4 identicon

Er Í S L A N D  á TÍMAMÓTUM ?. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 14:06

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Enn einn heimskur skrifar í Moggann svo:

Virkjum Gullfoss, mun brátt heyrast ef sæstrengs- og virkjunarsinnar frá sínu framgengt og leggja enn einn fagran dal og gróðurlendi undir lón. Fáránlegustu rökin fyrir sæstreng eru að ef rafmagnsskortur yrði hér á landi þá yrði hægt að fá rafmagn frá Evrópu! Þessu má heldur betur snúa við, ef rafmagnskortur yrði í Evrópu yrði krafist meiri virkjana og þá ekki síst þessara kröftugu fossa sem Evrópubúar hafa ekki séð og er sama um. Sunnlendingar geta mér að meinlausu virkjað sinn Gullfoss en við, með þingeyskt blóð í æðum, munum verja okkar Goðafoss, Aldeyjarfoss og Dettifoss til síðasta blóðdropa. Ferðamenn munu ekki koma hingað til að sjá virkjanir. Bændaferðir munu auglýsa fossaskoðunarferðir til útlanda. Ég tel að lagning sæstrengs sé nánast landráð.

Birgi Guðjónsson, læknir

Halldór Jónsson, 13.4.2019 kl. 14:24

6 identicon

Sæll Halldór.

Það vekur mér furðu að virk stjórnarandstaða
virðist hjá Miðflokknum einum.

Telja má nær öruggt að kjósendur Pírata og Samfylkingar
hljóti að hugsa þessum flokkum sínum þegjandi þörfina.

En það virðist með þá sem stjórnarflokkana sjálfa
að hugsanleg andstaða jafnvel alger skipti hreint
alls engu máli Af hverju er það svo?

Þetta gengur svo í hverju málinu á fætur öðru
og smám saman hefur það farið svo að almenningur 
skiptir sér ekki af stjórnmálum.

Hvaðan kom Pírötum og Samfylkingu það vald
að sameinast stjórnarflokkunum í stað þess að sinna
hlutverki sínu í sterkri stjórnarandstöðu?

Ég er sammála því sem Gísli skrifar hér að framan
að við stöndum á tímamótum, flokkum verður hent út af þingi
og í stað þeirra koma öfgaflokkar jafnt til vinstri og hægri.

Húsari. (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 14:27

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Aðkeypt Lögfræðiálit Stefáns Más og Friðriks Árna:

"Með víslan til framanritaðs er það niðurstaða höfunda álitsgerðarinnar að verulegur vafi leiki á því hvort framsal ákvörðunarvalds til ESA samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, eins og ráðgert er að taka hana upp í EES-samninginn samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 5. maí 2017, rúmist innan ákvæða stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. ".

Halldór Jónsson, 13.4.2019 kl. 14:34

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Er hægt annað en dást að því "ískalda mati" flokkforsystunnar að fara óhikað gegn vilja meirihluta Sjálfstæðisflokksins þar sem "Vi alene vider"

Halldór Jónsson, 13.4.2019 kl. 14:37

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Og sjálfur Ögmundur Jónasson  hnykkir á með þessu í Mogga dagsins:

"....Öðru vísi mér áður brá. Menn rýna í lagatexta og binda vonir við fyrirvara. Því miður er ástæða til að ætla að annar og naprari veruleiki eigi eftir að koma í ljós. Nú er einfaldlega verið að stilla upp á skákborðinu með því að þoka orkugeiranum enn lengra yfir á markaðsgrunn.

Þegar stillt hefur verið upp á forsendum fjórfrelsis ESB/EES verða markaðsöflin látin taka yfir og ná sínu fram í gegnum dómstóla eins og jafnan áður. Hvað gera dómstólarnir þegar fjárfestar segjast vilja leggja sæstreng á eigin kostnað til að ná í „vöru“ sem komin er undir reglur „fjórfrelsisins?“

Ekki nóg með það, ráðist hafi verið í mikinn rannsóknarkostnað í góðri trú og verði að fást skaðabætur ef íslensk stjórnvöld ætli að standa í vegi fyrir verslun með vöru sem heyri undir „fjórfrelsið“.

Þá mun reyna á heimalagaðan og hraðsoðinn fyrirvara Alþingis fyrir ESA og EFTA-dómstólnum. Minnumst þess að ekki eru liðnir margir mánuðir síðan íslenskir skattgreiðendur voru þvingaðir með dómi til að borga Högum og öðrum verslunarrekendum þrjá milljarða í skaðabætur af völdum laga sem Alþingi Íslendinga hafði sett en þóttu brjóta gegn „fjórfrelsi“ ESB/EES. Hver hefði trúað þessu að óreyndu?

Almenningur veit að þegar orkugeirinn hefur verið markaðsvæddur mun hann fyrr eða síðar hafna í klóm fjárfesta sem eru staðráðnir í að færa þann hagnað sem nú rennur til samfélagsins í eigin vasa.

Og við munum engu ráða um það hvort hingað verður lagður sæstrengur. Líklegt má heita að það yrði knúið fram með dómsvaldi og við látin borga brúsann með hærra orkuverði. Annar aflgjafi verður síðan græðgin sem mun stöðugt knýja á um meiri virkjanir..."

Halldór Jónsson, 13.4.2019 kl. 14:51

10 identicon

#streetart

Húsari. (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 15:09

11 identicon

GULLFOSS - GULLFOSS - ORKUMÁLIN VORU RÆDD AF HALLDÓRI OKKAR VERKFRÆÐINGi. Hvar verða M Ö R K I N  sett af alþingiskonum og mÖnnum,sem ráða yfir "sjálfum sér",en EKKI óskum KJÓSENDA varðandi ORKUMÁLIN.

Tómas faðir SIGRIÐAR BARÁTTUKONU fyrir GULLFOSSI fékk tilboð í GULLFOSS KR.50.000. af erlendum ferðamanni, en NEITAÐI/HAFNAÐI tilboðinu og svaraði: "ÞÚ SELUR EKKI VIN ÞINN".

Hugsum málið varðandi "GRÆÐGISHÓPINN",sem gjarnan vildu selja ÍSLAND ALLT.     

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 19:02

12 identicon

Hústökufólkið og börnin í Valhöll verða búin að koma Sjálfstæðisflokknum niður í 15% fylgi fyrir sumarmál. 

Hermann Jónsson (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 20:13

13 identicon

Ég tók eftir dánarári Sigríðar Tómasdóttur 1957 frá Brattholti við GULLFOSS. Þá mundi ég dánarár Vigdísar"VIGGU"Ingvadóttur, förukonu frá Hvammi í Mýrdal,f.1864,dó 6.nóvember 1957,93ára. Hún fór heiman frá sér 10 ár gömul vegna harðræðis föður síns og fátæktar.VIGGA var vistuð á yfir 20 bæjum. "STÓRMERK KONA".

Hún átti ævintýri með stofnendum SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS um 1928 með Jóni Þorlákssyni og Ólafi Thors við Eyjarhola við Pétursey,en þar komu þeir ríðandi til að kynnast heimamönnum við kynningu á nýja FLOKKNUM.

VIGGA hélt í taum hestana meðan höfðingjarnir gengu í bæinn. Ólafur Thors gaf henni aur fyrir greiðann en Jón gaf ekkert. VIGDÍS bætti því við að ÓLAFUR væri örugglega upp á KVENNHÖNDINA.   

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 13.4.2019 kl. 22:02

14 identicon

Ég fæddist í þennan flokk

Ég ólst upp við þennan flokk

Ég barðist fyrir þennan flokk

... nú fyrirlít ég forystu hans

og alla þá sem munu styðja hann,

héðan í frá! 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.4.2019 kl. 04:49

15 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Er nokkuð vafamál lengur að þessir lykilmenn í Orkupakkanum eru á málum hjá ESB og byggja stórar peningagjafir fyrir viðvikið. Það er vitað að upplýsingastofnun ESB sér um þessháttar  mál.

Valdimar Samúelsson, 14.4.2019 kl. 20:13

16 identicon

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar veit allt um rafmagn og er rafmagnsverkfræðingur. HANN var líka forstjóri hjá MAREL þegar þeir opnuðu sitt glæsifyrirtæki í Garðabæ.

Þar unnu einstakir menn, sem vissu allt um "RAF og SEGULSVIÐ" innan og utandyra. ÞETTA var eftirsóttur vinnustaður "snillinga", sem unnu að nýjungum fyrir sjávarútveg og matarframleiðslu af öllu tagi.

Hvað með ORKUSTÖÐ á LANDI eða í HÁLOFTUM?.  Geta ÍSLENDINGAR framleitt bíla, sem EKKI þurfa HLEÐSLUTÆKI og ganga fullhlaðin af "hreyfingu bílsins"?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 15.4.2019 kl. 08:30

17 identicon

The aerospace giant is attempting to revolutionize urban travel by creating a car that can travel over streets and weave in and out of skyscrapers, for example. The company confirmed yesterday that its prototype “hovered briefly” during a test flight, although it did not indicate how long it did so. the winner of the race to become street legal is autogyro, who’s ‘gyrodrive’ vehicle is officially authorized to travel both road and sky. Flying car gets closer to reality with test flight. This March 23, 2012 photo provided by Terrafugia Inc. shows the company's prototype flying car, dubbed the Transition, during its first flight. The vehicle has two seats, four wheels and wings that fold up so it can be driven like a car, and flew at 1,400 feet for eight minutes during the test. Commercial jets fly at 35,000 feet. the 5th element

Húsari. (IP-tala skráð) 15.4.2019 kl. 10:52

18 identicon

FLOTTAR myndir HÚSARI. Þetta minnir mig á NAGLADEKKIN...

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 15.4.2019 kl. 11:35

19 identicon

Gísli! Komst ekki nærri þessu!

Ekki nokkur vafi að 21. öldin og næstu
aldir munu krefjast þess af manninum að
hann geti og jafnvel verði að finna sér bústað
í geimnum.

Næsti bær við í læknavísindum eru svo ígræddir
og íþræddir forritshlutar sem lúta stjórn jafnt
innan sem utan og hugsun einni saman sem þegar
hefur verið prófað að nokkru, - svo ekki sé minnst
á þá byltingu sem stofnfrumur munu hafa alla
öldina út sem og bankar því tengdir um allan heim.

Húsari. (IP-tala skráð) 15.4.2019 kl. 15:49

20 identicon

HÚSARINN er skemmtilegur með táknmyndir um lífið og tilveruna. FIAT 500 er "sófasett" okkar hjóna í dag - efstur á blaðinu varðandi "orkumálin", sem vonandi verða afgreidd með ÞJÓÐARKOSNINGU.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 17.4.2019 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband