Leita í fréttum mbl.is

Reginskandall

var áróðursmynd sem RÚV dembdi yfir landsmenn á kostnað okkar skattgreiðenda um loftslagsmál.

Algerlega óðvísindalegt bull er borðið á borð án þess að nokkur vísindaleg staðreynd sé lögð til grundvallar fullyrðingunum. 

Jörðin er að hlýna vegna útblásturs manna á  CO2  er sett fram sem stóri sannleikur.

Allt er á hraðri leið til andskotans að mati Andra Snæs Magnasonar sem löngu er þekktur fyrir öfgasjónarmið sín í umhverfismálum.  Hvaðan kemur honum öll þessi viska?

Hvar var minnst á vísindamennina Judith Curry, Sally Balunas og hvað þeir heita allir sem hafa lagt vísindalegt mat í fullyrðingar heimsendaspámannanna? CO2 hefur ekki verið lægra í andrúmslofti jarðar í 600 milljón ár eða 400 ppm. Halda menn virkilega sem hæst gala, að sólin hafi engin áhrif á hitastiga jarðar?

Hver leyfir Herði Arnarsyni forstjóra Landsvirkjunar til að tala gegn hagsmunum fyrirtækisins  með þeim hætti sem hann gerir? Auðlindir Íslands eru virkjanir fallvatnanna. Heiminn vantar orku og sem mest af vistvænni og endurnýjanlegri orku

Þessi mynd er einhliða móðursýki og rórökstutt trúboð  á hæsta stigi sem er óundirbyggt vísindalegu rökum með öllu.  Allri skuld er skellt á ósannaðar fullyrðingar um manngerða hlýnun lofthjúpsins án þess að nokkur vísindalegar efasemdir séu leiddar fram á móti þessum fullyrðingum.

Hið raunverulega vandamál er offjölgun jarðarbúa. Allt er tilgangslaust sem menn reyna að gera til að takmarka losun CO2 í iðnaðarríkjum ef ekki tekst að ná tökum á vitfirringslegri fjölgun fólks sem er sérstaklega mikil í þeim ríkjum þar sem menningin og þekkingin er á lægsta stigi.

Mannkynið er 7.7 milljarðar og hefur þrefaldast á 70 árum. Það verður að stöðva stjórnlausa fjölgun Afríkubúa og sumra Asíulanda  á einhvern hátt ef komast á hjá sjálfsmorði jarðarbúa.

Fjölgun Vesturlandsbúa er að stöðvast af sjálfu sér auk þess  að við Íslendingar förum að eyða fóstrum okkar í þessu skyni sem aldrei fyrr.Fram nú allir í röð segir Svandís Svavarsdóttir.

En að æsa börnin okkar upp í órökstuddri móðursýki fyrir opinbert fé á sama tíma sem þau virðast kveikja ítrekað í sprinkler-lausum skólunum sínum tekur ekki nokkru tali.

Trump Bandaríkjaforseti virðist vera einn af þeim óbrjáluðu leiðtogum heimsins sem er með nokkurn veginn fullu viti og lætur ekki áróðursmaskínu IPCC og og olíuspekúlantinn AlGore villa sér sýn. Okkar íslensku leiðtogar gapa hinsvegar gagnrýnilaust allir sem einn upp í gervivísindin hvar sem þau birtast.

Þessi mynd RÚV var reginskandall í einhliða áróðri og móðursýki  hvernig sem á það er litið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Takk Halldór fyrir marga góða pisla.


" áróðursmaskínu IPCC " Þetta IPCC. Hvaða apparat er þetta ? Það hangir einhvern veginn með Sameinuðu þjóðunum. Er það sett saman af þeim, S.Þ. ? Eða einka eitthvað ?

Spurði Ara Trausta um IPCC, hann sagðist ekki vita neitt um það, "hef aldrei heyrt það nefnt."

Haukur Árnason, 12.5.2019 kl. 21:41

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Halldór.

Sami Reginskandall og Nigel Farage lýsti þarna í gær, á öllum ríkisfjölmiðlum alls staðar. Glóbal elítur DDRÚVa á herðum skattgreiðenda. Sama Austurþýska Austur-Berlínarútvarp Reykjavíkurborga alls staðar. Allt saman eitt og sama Úníversal Imperíal Heiðnikirkjuveldi Háskólamanna, sem orðið er valdameira en sjálf Kaþólska kirkjan var á miðöldum.

Kveðjur og þakkir

Gunnar Rögnvaldsson, 12.5.2019 kl. 22:19

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Styrmir Gunnarsson er sem sagt hálfviti. cool

Þorsteinn Briem, 12.5.2019 kl. 22:52

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Með aukinni velmegun hægir á fjölgun fólks. Það er ótrúverðug heimsendaspá að fjölgun fólks valdi heimsendi.

Og það er einfaldlega tóm þvæla að hlýnun sé ekki af manna völdum. Það er löngu búið að sýna fram á að svo er og auðvelt að finna upplýsingar um með hvaða hætti þessum tengslum útblásturs, CO2 og hlýnunar er háttað.

Þorsteinn Siglaugsson, 12.5.2019 kl. 23:30

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ef einhver segir við mig; Gunnar trúir þú ekki á vísindin? Þá segi ég, jú, stundum. En ég veit hins vegar að á hverju ári koma út 1,4 milljónir vísindapappírar í heiminum (e. scientific papers). Og þegar þeir eru skoðaðir þá er aðeins hægt að endurtaka 25-35 prósent uppskrifta þeirra, með sömu niðurstöðum og höfundar þeirra fengu.

Þannig eru vísindin. Þau snúast að miklu leyti um styrki og eru því slagsmál um peninga og hylli þeirra sem halda um peninga. Þau verða hagsmunaöfl (e. vested interests).

Og hin svokölluðu "vísindi" eru líka þannig að allir helstu kjarneðlisfræðingar heimsins trúðu áratugum saman, og störfuðu við, það sem þeir kölluðu súperstrengjakenningu. Hún reyndist hins vegar þvæla frá upphafi til enda.

Sundurlemjandi greiningin á þeim mönnum "vísindanna", var svona eins og á myndin hér sýnir.

Og sömu greiningu fengu þeir "sérfræðingar" sem bjuggu til hrunið á Vesturlöndum 2009. Þeir fengu þá greiningu árið 2016 frá Paul Romer hagfræðingi í Alþjóðabankanum, sem hafði hana eftir Lee Smolin, sem skrifaði "The Trouble with Physics" 2007 (vandamálið með eðlisfræðina). Einkennin voru þau sömu. Og sömu einkenni sjást í dag hjá lofthita-sértrúarsöfnuðinum, sem er ný manngerð pólitísk vinstrihreyfing í smíðum.

Það kemur dagur eftir þennan dag. Heimurinn okkar er ekki að farast. Það eina sem er að farast er pólitíkin. Hún er komin í heljargreipar fólks sem í vösum vafasamra vísindamanna sem eru í vösum annarra, og sem hafa breytt sér í sértrúarsöfnuð. Betra er að fara bara í kirkju og tala við þann alvöru Guð sem Vesturlönd byggja á. Hitt er bara kukl, eins og of oft áður í sögu okkar manna. Við erum nefnilega öll bara menn. Alvöru menn sem segja nei við gervimenni. Og nei við EES-einkavæðingarpakka-3

Árin í kringum 1975 var samskonar "samfélag vísindamanna" að reyna að segja heiminum að ný ísöld stæði fyrir dyrum.

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2019 kl. 00:13

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég sé að krækjan á ritgerð Romers sem ég vitna í og setti inn, er útrunnin. Hér er ný: The Trouble with Macroeconomics (skoða sérstaklega blaðsíðu 7)

Gunnar Rögnvaldsson, 13.5.2019 kl. 00:28

8 identicon

Sæll Halldór.

Guð komi til! Þú ert haldinn illum anda
og sennilega þetta sauðnaut hann Gunnar
líka sem trúir ekki vísundunum undanbragðalaust!

Það sem þú gerir þér ekki grein fyrir er að
blessuð börnin eru haldin því sem á fagmáli kallast:
Telemisvísunarþrjóskujöfnun.

Þessi sjúkdómur lýsir sér í of mikilli símanotkun
sem leiðir til þeirrar spennuútjöfnunar að
kveikja í einhverju en ljós á símum hvetja
til þessa og fellur þá þrjóskan um sig sjálfa
eftir velhepnaða íkveikju.
Menn yfir fertugu fá einnig gjarna þennan sjúkdóm
og ruglast þá á RÚV fyrir DDRÚV auk þess að sjá
útsendingu RÚV1 í Dolby og Cinemascope.

Þess má geta að hinn heimsþekkti predikari, Benny Hinn,
býður nú upp á Tele-handayfirlækningar, - og er
smurning á bílinn innifalinn í verðinu, - nei, nei,
andans smurning yfir þig og bílfjandann!

Húsari. (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 11:27

9 identicon

Sammála þér Halldór. En oft reynist stutt í hjálp þegar neyðin er stærst: WOW fór á hausinn og þar með dró verulega úr mengun þessa lands. Svo minnka jöklarnir okkar og við getum þá ekki framleitt rafmagn fyrir álverksmiðjur. Þá verður kátt í höllinni hjá Landvernd.

Örn Johnson (IP-tala skráð) 13.5.2019 kl. 12:04

10 Smámynd: Haukur Árnason

Takk Ello. Þetta er jafnvel verra en ég hélt.

Athyglisvert hjá þeim með SPM, (sérsamið fyrir stjórnmálamenn)

Haukur Árnason, 13.5.2019 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418198

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband