Leita í fréttum mbl.is

Gömul Nostalgia

grípur mig þegar ég rekst á þessa mynd af GMC deuceandahalf 1941.

Ég átti dásamlegt sumar með akkúrat þessari gerð af trukk sumarið 1956. Þá vann ég hjá honum Rarik eins og hann var kallaður við að leggja raflínur í Skagafirði og á Ströndum undir verkstjórn þeirra öndvegismannanna Einars M. og hans Eiðs. 

Það sem við trukkurinn fórum saman frá fjallatoppum til fúamýra ljómar í minningunni.

Sjónlínan í Skagafjarðarmýrunum var nærri í augnhæð þegar trukkurinn  flaut yfir þær þar sem varla var fært á klofháum. Hann fór allsstaðar þar sem hællinn á stígvélinu sleit ekki grasrótina með tvöfalt á öllu öxlum.Við sprengdum staurana niður með dínamíti þarna í Skagafirðinum þar sem blautast var.

Þegar við misstum hann niður drógum við langan  staur niður í mýrina með spilinu og rykktum honum svo upp.Við fórum niður fjallsskriður með loftpressu aftan í og urðum að hluti af nýju skriðufalli.

Maður var stundum vakinn um nætur til að draga upp fyllibyttur sem höfðu lent útaf á bílunum sínum og fékk þá bæði sjúss og pening fyrir. Þvílíkir tímar. Dró jarðýtur úr festum. Lyfti allskyns þunga með gálga sem maður setti á stuðarann að framan. Þessi gamli trukkur var fjölhæft tæki á þeirra tíma mælikvarða6022934157_aac53c7146_bGMC 1941

Þessi ævintýri á þessum bíl með yndislegum vinnufélögum sem nú eru líklega flestir horfnir ljóma í minningu gamals manns sem stundum dreymir þennan bíl og þessar æskustundir og þær ævintýralegu torfærur sem maður fór með honum. Nú má víst ekkert svona lengur og allir svona trukkar horfnir sýn.Og bráðum verð ég  horfinn líka.

Maður hitti marga fræga sveitahöfðingja eins og séra Lárus á Miklabæ, Jóhannesi bónda með fína "flugskeytahattinn" sem Eiður kallaði svo( flottur Battersbyhattur eins og þeir fínu brúkuðu í Reykjavík)  og mörgu góðu og gestrisnu fólki á höfuðbólum Skagafjarðar beggja vegna Héraðsvatna. Á Ströndum milli Drangsness og Hólmavíkur var minna um bæina minnir mig en Skjaldböku-Hansen og hann Thúri(Arthur) voru góðir félagar í sprengingunum á fjöllunum.  

En myndin vekur sannarlega upp gleymda  Nostalgíu í gömlu hjarta. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Takk

Benedikt Halldórsson, 14.5.2019 kl. 00:34

2 identicon

ÞARNA FÓRU HETJUR UM HÉRUÐ, DUGANDI GÓÐIR ÍSLENDINGAR.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 14.5.2019 kl. 01:00

3 identicon

Þetta er falleg minning Halldór með GMC-TRUKKNUM og gömlum vinnu félögum á FJÖLLUM,VEGLEYSUM,STÓRÁM og FLJÓTUM á vegum RARIK á fyrstu árum athafna og framfara á ÍSLANDI.

Þú varst í áhættustarfi á ÍSLANDI, en ekki ég. 

TRUKKAsagan minnti mig á vinnuna í Californiu 1956 til 3ja ára. þar töluðu félagarnir mest um hestöfl og konur. Þar tilheyrði maður Teamsters Union og "foringjanum Mr. Hoffa. USA er með BESTA VEGAKERFIÐ, sem Donald J.TRUMP ætlar að halda við og endurnýja.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 20:25

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Gísli, þú þarft að segja okkur frá þínum árum þínum  í Californiu og Hoffa. Varstu í framkvæmdum þarna? Attu myndir?

Halldór Jónsson, 15.5.2019 kl. 22:46

5 identicon

Ég sendi þér línu í kvöld um Hoffa og veru mína ´með góðum dreng, söngvaranum Sverri Runólfssyni og Kjartani bróður hans, sem vann hjá Sverri, en þeir voru staðsettir á Signal Hill í Long Beach með aðstöðu sína. Ég var úti 20 ára en myndir og minningar eru lokaðar einhversstaðar í kössum.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 16.5.2019 kl. 07:27

6 identicon

Ég kynntist Sverri Runólfssyni á ÍSLENDINGAMÓTINU 1956 í Californíu. Ég var ráðinn á staðnum og settur á GMC-trukk með tengdum aftaní vagni um 62m.álengd. Trukkurinn og vagninn var nr.R-33. Þeir voru in the "rock and gravel business" fyrir vegakerfið og allt niður til San Pedro. Við töldumst löglegir af þunga með um 25tonn á bíl og vagni.

Margt er einfalt í USA. Ökuskýrteinið mitt dugði vel fyrir trukka keyrsluna. Ef þú veldur ekki skaða né slysum í 3 mánuði þá hefur þú náð FULLUM réttindum ALLRA BÍLA og TÆKJA. Ég var alsæll og tók eina ferð til fjalla með góðum ökumanni frá Sverri til að kynnast leiðinni og hleðslu tækjum og starfsfólkinu í sand og grjótnámunni.

Oft keyrðum við á nóttinni efni fyrir "asvalt" stöð, sem tengdafaðir Sverris átti. Oft langir vinnutímar,sem mér líkaði vel.

Nú var ég átomatiskt gengin í raðir Teamsters Union (án þess að vita af því). Jimmy HOFFA var mikils metinn og menn báru virðingu fyrir honum á vinnustað og í polutík. Það voru góðar reglur á hlutunum hjá HOFFA,sem allir fóru eftir.   

Þegar ég var rukkaður um fyrsta ársgjaldið var ég með full hlaðinn trukkinn, þegar luxusamerikufólksbíll flautaði og bað mig um að STOPPA. Vel klæddur maður heilsaði mér hátíðlega með Teamsterunion merkið og sagðist vera að rukka the "unionfee". Við töluðum stund saman og ég vildi greiða honum á staðnum gegn kvittun. Hann vildi ekki aurana og bað mig um að fara á höfuðstöðvarnar, sem ég gerði. Þetta var mjög hátíðlegt og mjög "ÍTALSKT". Ég fell altaf fyrir "góðum siðum".

Árið 1975 hvarf Hoffa, en fannst löngu síðar "illa haldinn", að mig minnir.

USA, KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR og NATO er okkar fólk og kostar ekkert SAMVINNAN. Lögreglan í Californíu var hrifin af GAMLA íslenska ÖKUSKÝRTEININU. Gamla myndin frá "Lofti" og allt handskrifað. Hann bað mig um að keyra áfram heim niður til Long Beach kl.05:00 að morgni frá Hollywood og endurtók hvað þetta var einfalt og ekki flókið á ÍSLANDI. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 16.5.2019 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 3418156

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband