Leita í fréttum mbl.is

Júróvisjón

hvolfdist yfir okkur hjónin í kvöld þar sem öngvar fréttir var að hafa.

Ég hef ekki nennt að horfa á þetta lengi en gerði það í kvöld.

Að mínu viti hefur þetta minnst með músík að gera.Þetta er slæðu og lita sjó, með dillibossum og leikfimi. Músíkin er BA-ba, BÚ-bú og lítið öðruvísi frá einu landi til annars. Ég fann ekkert lag sem hægt bæri að syngja nema eitthvað Na-Na komst eitthvað í áttina.

Íslenska framlagið fannst mér skelfilegast af öllu sem fram kom. Bara tómur fíflaskapur og kynfærasýning.

Kannski væri best að allir flytjendur væru allsberir þar sem þetta gengur mest út á sex, þunnar slæður í klofbótunum  og svo allskyns smelli, brelli og púðurskot. Þá væru þeir sem hafa eitthvað umfram meðaljóninn að leggja eitthvað fram af hæfilekum. En að raddaþensla hafi eitthvað að gera með sjóið  fannst mér misskilningur.

Konan sagði mér svo að ég yrði að gera mér ljóst að ég væri orðinn svo afgamall að ég skildi ekki unga fólkið sem fílaði þetta. Ég held að ég skilji hvað hún á við .

Doris Day dó í dag dísin sú arna. Hún söng lög sem maður getur enn raulað. En ekkert af því sem ég heyrði í kvöld kemst í námunda við þetta gamla raul.

En að öðru leyti var þetta allt hið flottasta sjó þó að Madonna hafi yfirtrompað þetta allt það ég sá í Florída.Hún er svo svakalegur trooper sem leggur sálina í þetta að maður gapir yfir tækninni.

En þeir segja að án Júróvisjón og fótboltans brjótist út stríð með Evrópuþjóðanna og Hitler geti gengið aftur og má vera satt að límið í Evrópuhugsjóninni sé ekki mikið sterkara en þetta?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ótrúleg þrautseigja hjá konunni að búa með þessum nöldursegg. cool

Frú Doris Kappelhoff smælaði hins vegar framan í heiminn í Guðs eigin landi, þar sem menn skemmta sér daglega við að skjóta börnin í skólunum.

Og ekki fækkar slysaskotunum í Palestínu.

En frú Kappelhoff smælar sjálfsagt enn með bótoxið og getur ekki annað. cool

Þorsteinn Briem, 14.5.2019 kl. 22:11

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór ég reyndi að segja konu minni sama þegar ég gekk fá sjónvarpinu smá nöldrandi. Þú skilur þetta ekki hún sagði ekki gamli minn en ég sá alveg hvað hún meinti. Leitt með Doris Day og man enn eftir Anny get your gun enda fór tvisvar í Gamla Bíó til að sjá hana enda alveg hugfangin. Sé hana ennþá fyrir mér. Takk fyrir að minnast á Doris enda meiri minningar þar en Hatari sjóið. :-) 

Valdimar Samúelsson, 14.5.2019 kl. 23:12

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þorsteinn þú ert alltof ungur og kannski frá þessum tíma þegar börn höfðu minningar aðrar en I phone. :-) Þetta er hrós.

Valdimar Samúelsson, 14.5.2019 kl. 23:16

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Qea Sera Sera minnisstæðast af Doris Day lögum,en ég safnaði Ellu Fitzgerald.

Helga Kristjánsdóttir, 15.5.2019 kl. 01:04

5 identicon

Það má nú alltaf fara á YouTube og rifja upp gamlar minningar með Doris Day og Que Sera Sera

https://www.youtube.com/watch?v=xZbKHDPPrrc

Grímur (IP-tala skráð) 15.5.2019 kl. 15:27

6 identicon

"Sá er talar niður til Gyðinga hefur slæmt af

og ÞJÓÐIN hans líka",sagði mér einhver.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 19.5.2019 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband