Leita í fréttum mbl.is

Fégirnd vinstri manna

hefur aldrei komið á óvart.

Þegar próletaríið kemst í opinbera sjóði þá missa þeir sig gjarnan í græðginni.Sem von er því sjaldan eru þeir matvinnungar eða efnamenn af sjálfum sér.

Gott dæmi er Steingrímur Jóhann Sigfússon sem hefur áratugum saman látið ríkissjóð greiða sér búsetustyrk fyrir að búa í Breiðholti í lúxusvillu sinni en skrá sig heima hjá Jóa bróður á Gunnarsstöðum. 

Nú síðast gerir Lilja Rafney sig opinbera í græðginni og gerir bensínkostnað Ásmundar Friðrikssonar hlægilegan sem áður hneykslaði hana sem mest.

Hún þarf að fljúga heim til sín um helgar til að halda heimili eftir að hún losnaði úr fiskvinnslunni á staðnum með því að detta inn á þing fyrir einhverju síðan.

Ekki skal ég leggja dóm á hvort starfið var þjóðhagslegra hagkvæmara fyrir okkur Íslendinga en allavega var það með minna "kolefnisspor" sem Lilju Rafney og hennar flokksmönnum þykir ógurlega vænt um hverdags.

Þannig fljúga umhverfissinnarnir mest til útlanda þá er talið að ein flugferð sé að kolefnisígildi einkabíls Ásmundar í heilt ár á hans mörgu áróðursfundi. Þar er ekki um vinstri mann að ræða og þar gilda önnur lögmál auðvitað.

Fjármál kommanna og vinstraliðsins hafa lengi verið með margvíslegum hætti. Rúblan tengdist kaupsýslumönnum þeirra, Sigfúsarsjóður er með óþekkta eigendur, Alþýðubrauðin bakaði Jón og bakaði og Íhaldsmönnum tjón og einhvernveginn komst það fyrirtæki í einkaeign, Alþýðuhúsið hvarf einnig sýnum í vasa einhverra vinstrigosa og hvað varð um Rússagullið í Þjóðviljann veit enginn.

Siðferði stjórmmálamanna til hægri skal vigtað á aðrar reislur en vinstri manna. Það kemur vel fram í hatursgrein Þorvaldar Gylfasonar í dag í Fréttó þar sem hann kvartar yfir þöggun um málefni Sigmundar og Bjarna vegna Panamaskjalanna ásamt fleiru.Sjálfur er hann líklega búinn að gleyma því að hann var sagður ferðast um á grænum diplomatapassa sem strákur í skjóli pabba síns ásamt fleiri fríðindum fjölkyldunnar í þá daga.

Í greininni heldur hann enn fram lyginni um atkvæðatölur um tillögur stjórnlagaráðs að hætti gamla Göbbelsar sem sagði endurtekninguna á lyginn á endanum breyta henni í sannleika.

Vinstri menn gerðu vel í því aað venja sig af því að þykjast vera sífellt heilagri en aðrir þegar kemur að meðferð opinbers fjár.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór !

Ágætis samantekt: af þinni hálfu, sem vænta mátti, líklega er Þistilfirzki þjófurinn (Steingrímur J. Sigfússon) 10 falt / ef ekki 12 falt afkastameiri að burðum í sínum gripdeildum, eða ennþá meir, en Benzín þjófurinn Ásmundur Friðriksson, enda Steingrímur búinn að vera innan veggja þinghúss kumbaldans, síðan Vorið 1983 - allar götur.

Lilja Rafney Magnúsdóttir - Vestfirzka tæfan:: er ekkert nema kjapthátturinn og frekjan, og hefur komizt vel áfram á því, enda uppfóðruð í hinum Austur- Þýzku ribbaldafræðum Svavars Gestssonar, og þeirra Steingríms J., sem annrra ÖMURLEGRA taglhnýtinga þeirra.

Þetta lið: líkt og Hrunamanna aulinn Sigurður Ingi Jóhanns son fellur einkar vel, að prettum og sviksemi Engeyinganna, undir leiðsögn Bjarna Benediktssonar / sem og III. Orkupakka trúboðans, Björns frænda hans Bjarnasonar.

Því - er ekki von á neinu góðu, úr þessum áttunum Halldór minn.

Jú Halldór: með því dularfyllra sem fyrirfinnst á slóðum þessa liðs, er einmitt Sigfúsarsjóðurinn / það var rétt hjá þér, að nefna það fyrirbæri, í leiðinni.

Svo - ekki sé nú minnst á loftslagsbreytinga þvaður þessa liðs, að auki.

Með beztu kveðjum - sem oftar, af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.5.2019 kl. 17:17

2 identicon

Sæll Halldór.

Það eru vissulega margir snjallir
fjármálamenn innan fylkinga vinstrimanna.

Síðan má ekki gleyma því að magir helstu
ræðumenn og kenningasmiðir eru innan þeirra
raða.

Þar fremstan í flokki sé ég Svavar Gestsson
og á fyrri tíð án efa Einar Olgeirsson.
Hreinasta unun að hlusta á Svavar!

Hægri menn hafa átt fjölda miðlungs ræðumanna
en varla nema 2 og jafnvel ekki nema einn ræðumann
en hann lét að sér kveða svo um munaði: Davíð Oddsson.

Leiðasti ávani og þráhyggja vinstri manna er
sífelld og eilíf, jafnframt niðurdrepandi
þörf þeirra fyrir að ráðskast með aðra.

Þeir virðast ekki efast andartaksstund um
andlega yfirburði sína í þessa átt og gott ef
ekki guðlega köllun sína í því efni.
Loftslagsgrillurnar eru gott dæmi um þetta
og allt það bákn sem smíðað hefur verið í
kringum það enda feiknalegir peningar í þessu.
Ekki þarf að taka fram að það sem þeir ætlast til
af öðrum á að sjálfsögðu ekki við um þá sjálfa
og mýgrútur dæma um þetta; þeir gera mestar kröfur til
annarra en helst alls engar til sjálfra sín.

Ég held nú að flestir taki undir það að þeir
ættu að halda sig við gleðipillurnar sínar
og láta annað fólk í friði þó ekki væri nema
til tilbreytingar!

Húsari. (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 04:47

3 identicon

Komið þið sælir - á ný !

Húsari !

Síðan hvenær: fórstu að hafa lýðskrumarann og svika tappann Svavar Gestsson, í einhverjum óverðskulduðum hávegum ?

Manstu kannski ekki - aðkomu Svavars, að Icesave´s svindlinu, t.d. ?

Ættir aðeins: að skoða betur rotinboruhátt Svavars í gegnum tíðina / að ógleymdum dýrlingi þínum Davíð Oddssyni ekki síður, Húsari minn.

Leiðrétting til þín, Húsari.

Davíð Oddsson er ekki / og hefur aldrei verið neinn Hægri maður:: heldur og miklu fremur, hefðbundinn slefberi kreddu Milton´s Friedman og hinnar Bresku Margrétar Thatcher, ágæti drengur.

Með sömu kveðjum - sem seinustu, vitaskuld /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 12:04

4 identicon

Óskar Helgi! "Allt orkar tvímælis
þá gert er," eins og karl hinn skegglausi
orðaði það.(Njála)

Hugtök nokkuð á reiki en má búast við að
þjóðernisflokkar vinni mikið á um alla Evrópu
hvort sem það á svo við um Ísland fyrr en öllu síðar.

Guðrún Trekkvindsdóttir frá Neðra Traðkoti
hélt því fram um árið að allir hefðu eitthvað
sér til ágæti og engum alls varnað en bætti svo við
að sagt er: "...Steingrímur Jóhann líka"!
En hún var nú orðin elliær þegar hér var komið sögu!!

Er það rétt sem ég hef frétt að hann Björn okkar
hafi verið að skensa nafna sinn á blogginu sínu?

En bestu kveðjur til þín héðan af hásléttunni
en síðasti andafundurinn heppnaðist með miklum
ágætum því síðasti geirfuglinn kom fram í öllu sínu
veldi og eru snillingar RÚV á leið hingað með upptökutæki
sín.

Njóttu sumarblíðunnar og helgarinnar!

Húsari. (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 21:06

5 identicon

Sælir - sem jafnan, og áður !

Húsari !

Þakka þér fyrir: ágætlega Ljóðræn / sem myndræn svör þín, sem vænta mátti, en, .......... þér: að segja, vil ég, að farið verði að taka á þessu Andskotans liði í landinu, sem fengið hefur að gramza í mínum vösum / sem þínum og annarra Húsari minna, af einhverri ALVÖRU.

Þarna - tala ég fyrst og fremst, sem Hernaðarsinni, í anda Kúómingtang hreyfingar þeirra Dr. Sun Yat- sen og Chiangs- Kai- shek heitinna, hinna Kínversku:: höfunda Lýðveldisins Kína á Taíwan, m.a.

Ekki lakari kveðjur: hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 21:35

6 identicon

Óskar Helgi! Þakka þér skrifið,
             fornvinur góður.

Ég kannast að vísu ágætlega við þau
nöfn sem þú nefnir svo skilvíslega.

Hitt hefur þó frekar orðið hlutskipti mitt
að fást við eða ígrunda hækur og tönkur
í kínverskri bókmenntasögu en ljóð almennt
miklu frekar frá 7.-9. öld er Tang ættin réði
ríkjum í Kína.

Ævinlega bestu kveðjur til þín, Óskar Helgi.

Húsari. (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 23:03

7 identicon

Sælir - enn !

Húsari !

Þakka þér fyrir: ánægjulegt að sjá, hversu vel þú hefur sett þig inn í tímaskeið, hins merka tímabil Tang- ættarinnar, þar eystra, m.a.

Og - ekki síðri kveðjur, öllum fyrri, og áður / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband