Leita í fréttum mbl.is

EUREKA!

Fyrir sögn í Morgunblaðinu:

"Borgin skoðar veggjöld!

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir til skoðunar að leggja á svonefnd tafagjöld til að stjórna og draga úr umferð einkabíla í Reykjavíkurborg.

Hún segist horfa til góðs árangurs Óslóarborgar af slíkri gjaldtöku.

„Norðmenn hafa beitt mengunar og tafagjöldum. Þau hafa tvenns konar áhrif. Þau draga úr bílaumferð og nýtast gríðarlega vel til að byggja innviði fyrir vistvæna fararmáta,“ segir Sigurborg Ósk.

Umræddri gjaldtöku er ætlað að draga úr mengun og töfum í umferð. Rafbílar hafa fengið undanþágu frá slíkum gjöldum í Ósló. Hófleg gjaldtaka er nú að hefjast af rafbílum..."

„Jafnvel þótt það markmið náist árið 2040 að 58% allra ferða verði með almenningssamgöngum með borgarlínu mun umferð engu að síður aukast. Við munum því ekki ná markmiðum Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum,“ segir Sigurborg Ósk.

Hún segir útfærsluna á fyrstu áföngum fyrirhugaðrar borgarlínu verða kynnta á næstu mánuðum. Við uppbygginguna verði röskun á umferðarflæði á höfuðborgarsvæðinu. Því verði borgarlínan byggð upp í áföngum til að lágmarka röskun."

Þrjú ár ennþá þurfa Reykvíkingar og Höfuðborgarsvæðið að þola enn til viðbótar af þessu vinstrihugsjónaliði eins og Pírötum og Viðreisn sem heldur  þeim Degi B. Eggertssyni og Hjálmari Sveinssyni við illa fengin völd í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Það er því miður enn mikið pláss enn fyrir boðaðar þjáningar og afturfarir í umferðarmálum á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Aðeins Seltjarnarnes er staðfast og eindregið á móti Borgarlínuhugmyndinni meðan önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu virðast ætla að opna skattpyngjur sínar fyrir þessari dauðadæmdu hugmynd þessa afturhaldsfólks sem er í algerri mótsögn við þann lífsmáta sem fólkið hefur valið sér.

Fyrst á að útrýma bensínstöðum í Borginni til hagræðis fyrir íbúana. Nú hafa þeir fundið snjallræðið sem dugar:

Skattleggjum einkabílinn af götunum!

EUREKA!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Til frekari útskýringar á forneskjunni er kafli úr viðtali við Sigurborgu Ósk:

"„Ég held að margir hafi gert það nú þegar. Það er orðið miklu algengara viðhorf í samfélaginu að nýta aðra fararmáta en einkabíl. Yngri kynslóðir skilja ekki þá hugmynd að frelsi fylgi því að eiga bíl.

Því fylgir ekki mikið frelsi að þurfa að verja á annarri milljón króna til reksturs og viðhalds á bíl á ári. Frelsið er einmitt hitt að þurfa ekki að reka bíl.“

Sigurborg Ósk segir að á næstu mánuðum verði fyrstu skrefin við uppbyggingu borgarlínu kynnt. Uppbyggingin á fyrsta leggnum, frá Suðurlandsbraut og upp á Ártúnshöfða, muni hafa vissa röskun á umferðarflæðinu í för með sér.

Því verði ekki byrjað á næsta leggnum, sem fari meðal annars um stokk á Miklubraut, fyrr en þeim fyrsta er lokið. Áformað sé að hefja framkvæmdir 2021.

„Borgarlínan mun stýra uppbyggingunni í borginni. Við erum að þétta byggð mest þar sem línan verður. Samgöngumátinn hefur mest áhrif á hvernig borgir byggjast upp.“

Merkileg innsýn í framandi  hugarheim sem er fjarri nútímanum.

Halldór Jónsson, 26.5.2019 kl. 11:24

2 identicon

Bæjarsjóri Hafnarfjarðar:  Sjálfstæðisflokki.

Bæjarstjóri Garðabæjar:  Sjálfstæðisflokki.

Bæjarstjóri Kópavogs:  Sjálfstæðisflokki.

Bæjarstjóri Seltjarnarness: Sjálfstæðisflokki.

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar:  Sjálfstæðisflokki.

Borgarlínu-kolefnis-skatta- og gjaldalínan

liggur samfylkt í gegnum búrkratana á sokkaleistunum og ESB píratana

og allra bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins 

sem hann Halldór minn snýst nú eins og 

skopparakringla í kringum, samfylktur og alsæll

og með lokuð augun, lokaðan munn og lokuð eyru

en með gleði hríslast nú kolefnisjafnaður 

búrakratískur nallinn um hverja hans alsælu taug

á hallærisplani Bjarna Dags B. Eyþórssonar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 26.5.2019 kl. 18:13

3 identicon

Tókstu ekki eftir að tafagjöldin eiga að leggjast á þá sem viljandi velja sér verstu leiðina sem hljómar einsog það sé bara gott á þá bjána.

Verst það er yfirleitt aldrei nein önnur leið í boði

Grímur (IP-tala skráð) 26.5.2019 kl. 19:02

4 identicon

Allir "úthverfabúar" munu fá tafagjöld framan við LSH.  Íslensk stjórnsýsla er þverflokkalega fávitavædd.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 26.5.2019 kl. 20:41

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein Halldór ef það er ekki eitt þá er það annað. Það er sorgleg staðreynd að öll pólitíkin er andsnúinn þjóðinni í nær öllu. Falsið er svo yfirgengilegt í öllum málum og sem dæmi þegar við megum brenna spæni og repjuolíu í stað bensín og dísil þá er ekkert að annað að gera en að byrja herferð og heimta að fá að nota þessa orkugjafa. Það er hægt að fá wood pellet og keyra gufuvélar aftur finna gömlu Lear freon vélina eða þá bara beita sér fyrir repjunni. :-)

Valdimar Samúelsson, 26.5.2019 kl. 20:55

6 identicon

EUREKA:RÍKIÐ boðar VEGATOLLA og REYKJAVÍK boðar nýja skatta á "vinsælustu" ökuleiðum-til og frá vinnu. STJÓRNUN og SKATTAR vinstri flokka,sem stjórna Borginni og Ríkinu með stuðningi Sjálfstæðismanna er "óheppileg".

BORGARLÍNUR eru EKKI í tísku í dag erlendis?. TÍÐAR ferðir MINNI VAGNA væru heppilegri. BENSINSTÖÐVAR tákna ÞJÓNUSTU. Þarf REYKJAVÍKURBORG fleiri byggingarlóðir í miðbænum?. 

ALÞINGISMENN ættu að kanna LÁTLAUSAN innflutning BÍLA, sem fyrsta skref í loftslagsævintýrinu?. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 26.5.2019 kl. 22:12

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þegar ég var að skemmta Íslendingafélaginu í Washington 1986 fengju menn ekki að fara einir í bíl frá úthverfinu, þar sem við bjuggum hjá Vestur-Íslendingum, og stystu leið inni í borgina, heldur urðu að minnsta kosti tveir að vera í hverjum bíl. 

Þannig að Kaninn hefur verið byrjaður á svona löguðu löngu á undan Evrópubúum. 

Ómar Ragnarsson, 26.5.2019 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband