Leita í fréttum mbl.is

Meira CO2

-Útblásturinn gerir jörðina græna. 

Hver maður á Íslandi blási sem allra mestu út af CO2  ef vera kynni að veðrið á Laugaveginum myndi skána eitthvað svo eina ráðið til þess að redda versluninni þar í göngugötunni sé að byggja yfir Laugaveginn allan.Þá yrði þar fyrst vistvænt á Laugavegi án bíla. 

 

Enda hefur ekki verið minna CO2 í andrúmslofti jarðar, þrátt fyrir flugumferðina, í 600 milljón ár. 400 partar af milljón.

Kaupum því dísilbíla og berjumst þannig gegn barnaþrælkun í Kongó.Berjumst gegn rafbílavæðingarvitleysunni, AlGore og fjörtíuþúsund fíflunum í París og okkar fjörtíu sem voru að skrifa undir  nýja bullutexta um loftslag á dögunum með tuggugúmmís-umhverfisráðherra kommanna í fararbroddi sem enginn kaus.

Það gengur bara sorglega lítið að hlýna á jörðinni sem myndi gera hana mun betri til búsetu. Og svo þarf að stöðva fólksfjölgunina í vanþróuðu ríkjunum sem forgangsmál ef við eigum að lifa af sem mannkyn.

 

En Kringlan og Smáralind eru löngu búnar að sigra Kvosina og Laugaveginn og rokrassinn á Snorrabrautinni.

Og bráðum verður byggt yfir Hálsatorg í Kópavogi þar sem allt mun mora í skjólsælu mannlífi fyrir Kópavogsbúa.Og jólaþorp verður í  Hafnarfirði allt árið.

Hver þarf einhverja Kvos eða Laugaveg?

 

Vatnið rennur ekki upp í móti. Verslunin sem var í Miðbænum í Kvosinni er farin þaðan.

Miðbærinn svokallaði í Reykjavík er dauður og kemur ekki aftur. Hann er bara hættulegur Altstadt þar sem fyllisvín og slagsmálapakk veður öskrandi um á nóttunni og drepur hvert annað, miklu verri en Reperbahn er og kókaínið flæðir hjá skipulögðum hundrað manna útlenskum Mafíum.

Verði Dag B. og því liði bara að góðu.

Miðbær Reykjavíkur er í dag útnári Höfuðborgarsvæðisins og þar eiga ekki að vera annað en Lundabúðir og fyllibúllur.Enda öll almennileg verslunarfyrirtæki á förum vegna fjandskapar Borgaryfirvalda sem hafa enga samræðu við neinn frekar en Cabot-Lodge-arnir í Boston tala við aðra en Guð sjálfan..

Venjulegt fólk á Höfuðborgarsvæðinu á ekkert erindi þarna niður eftir til Reykjavíkur, það er allt til alls annarsstaðar og bara betra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þegar co2 magnið í andrúmsloftinu vex hraðar en dæmi eru áður um, samkvæmt línuriti, sem birt var á þessari bloggsíðu, er því samt haldið fram að koltvíoxíð hafi aldrei verið minna í 600 milljón ár. 

Ómar Ragnarsson, 30.5.2019 kl. 00:36

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Plöntur hafa gott af miklu CO2. Halldór berst hart fyrir því að auka það. Hvers vegna skyldi það nú vera?

Þorsteinn Siglaugsson, 30.5.2019 kl. 12:33

3 Smámynd: Hörður Þormar

Ég held að Halldór sé bara svona stríðinn.foot-in-mouth

Hörður Þormar, 30.5.2019 kl. 13:49

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór þú hefir 110 % rétt fyrir þér Sum gróðurhúsin kaupa CO2 hjá AGA og sprauta inn í húsin meira að segja eru Friðheimar með resturant í gróðurhúsinu hjá sér og þar hafa þau 900ppm enda fín tómat súpan hjá þeim og enn betra CO 2 ið. 

Ég var dálítið forvitin með Friðheima sem eru austur í Reykholti, Biskupstungum. Eigendur sögðu að 1000ppm væri í góðu lagi fyrir mannfólkið þar en tugþúsundir koma þarna í hverri viku. 

Hvað segir Ómar Hörður og Þorsteinn en ég veit alveg að Verkfræðingurinn Halldór veit þetta er í lagi. :-)  

Valdimar Samúelsson, 30.5.2019 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418207

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband