Leita í fréttum mbl.is

Stöðluð söluvara

virðist vera búin að festa sig í sessi í Sjálfstæðisflokknum.

Ragnar Önundarson gerir þetta að umræðuefni í Morgunblaði helgarinnar.

Grein sinni lýkur Ragnar svo:

"...Fylgi flokksins og forysta

Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn nær þriðjung atkvæða á landsvísu, sem er við neðri mörk þess fylgis sem hann hafði áratugum saman.

Þetta sýnir að flokksmenn hafa enn sterkar taugar til síns gamla flokks. Fylgi flokksins í alþingiskosningum hefur verið mun minna, eða um fjórðungur og virðist enn á niðurleið, ef marka má skoðanakannanir.

Flokkurinn fagnar nú 90 ára afmæli. Ég vona að horfið verði frá því að úthluta æðstu embættum flokksins til að friða tiltekna hópa, það hefur ekki reynst vel.

Ég hef áður lagt flokknum mínum og þjóð minni lið í erfiðum málum. Þingmenn og ráðherrar flokksins hafa ekki enn séð ástæðu til að þakka það og sjálfsagt mætir ábending mín mánudaginn 27. maí líka tómlæti. „List hins hégómlega“, pólitíkin, snýst orðið mest um ásýnd og yfirborðsmennsku...."

Er flokkurinn orðinn leiksoppur pópúlisma sem snýst um útlit, aldur og kynferði femur en pólitík? Virðist hann vera grundvallaður á pólitík eða stefnumálum og landsfundarályktunum, fremur en stríðsdönsum og upphrópunum, niðurpúi á vissum skoðunum og tískusjónarmiðum? 

Undirrituðum er í fersku minni skrílslæti Unnar Brár og Áslaugar Örnu þegar þær reyndu í stríðsdansi að púa niður Gústaf Níelsson og Jón Magnússon á Landsfundi til þess að hindra umræður um málefni flóttamanna. Og hafði fundarstjórinn Jónas greinilega verið þáttakandi í undirbúningi málsins með þeim. 

Síðan er Áslaug Arna ritari og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins algerlega burtséð frá pólitískri reynslu.

Formaður eyðilagði persónulega prófkjör Sjálfstæðismanna í Kraganum og gerði Bryndísi Haraldsdóttur að þingmanni á kostnað Villa Bjarna sem hafði unnið sætið.  Bryndís er hin mætasta þingkona en Villi Bjarna var bara ágætur þingkall líka sem sigraði hana í prófkjöri.

Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki bæta við sig fylgi við allt þetta brölt þó að formaðurinn sé líklega myndarlegasti þingmaður sem setið hefur á Alþingi í mörg tungl og áminnstar konur hinar glæsilegustu. 

Og hvert stefnir þá svo á næsta Landsfundi? Þorir nokkur að bjóða sig fram gegn þessu fallega embættisfólki?

Er forysta Sjálfstæðiflokksins orðin stöðluð skrautsýning sem fer eftir forskrifuðu prógrammi í skoðunum en þarf ekki endilega marga flokksmenn að baki sér?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Þakka þér Halldór. Spurning hvort flokkurinn hafi fært sig yfir í að verða hægri krata flokkur. Íhaldsstefnunni hent fyrir róða, sem og innlendri atvinnustefnu og upp tekin frjálslynd ESB-sinnuð stefna. Þetta sést vel á Orkupakkamálinu og fóstureyðingarmálinu, en bæði þessi mál eru fyrst og fremst á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins en ganga þvert gegn vilja margra óbreyttra stuðningsmanna.

Sveinn R. Pálsson, 2.6.2019 kl. 15:34

2 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Gleymum ekki að það var Gulli sem lagði fram frumvarpið um Orkupakkann á þinginu og sagt er að hann verði næsti formaður flokksins, jafnvel strax í haust, því Bjarni Ben. er sagður vilja út úr pólitík.

Spurning hvort þessar vendingar innan Sjálfstæðisflokksins eigi ekki eftir að skilja eftir mikið svigrúm á hægrivængnum fyrir Sigmund Davíð og þá félaga að sópa til sín fylginu.

Sveinn R. Pálsson, 2.6.2019 kl. 15:38

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

kosningastefnu Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar vorið 2013 stendur:

"Þjóðin tekur ákvörðun um aðildarviðræður við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu." cool

Í viðtali við Fréttablaðið 24. apríl 2013 sagði Bjarni Benediktsson formaður flokksins:

"Við höfum haft það sem hluta af okkar stefnu að opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu til að útkljá þetta mál og við munum standa við það." cool

Og daginn eftir á Stöð 2:

"Við viljum opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og ég tel rétt að stefna að henni á fyrri hluta kjörtímabilsins."

Þorsteinn Briem, 2.6.2019 kl. 16:20

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Er engin leið til að losna við þetta hvimleiða Gauksvarp Steina Briem sí og æ?

8 fúlegg í röð.

Halldór Jónsson, 2.6.2019 kl. 20:38

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Jú Halldór, þú getur annað hvort blokkerað IP tölur hans, eða ef þú vilt hafa kvóta á athugasemdir frá honum, eins og til dæmis ég, þá getur þú farið í stjórnborðið, ýtt á Blogg, þar kemur upp stika þar sem meðal annars er boðið uppá að skoða athugasemdir, og þar er einn valmöguleikinn að eyða þeim út.

Takk annars fyrir góðan pistil.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 2.6.2019 kl. 20:53

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Prófa þetta Smári takk. Hvað á ég að velja? Sýna faldar?

Halldór Jónsson, 3.6.2019 kl. 09:20

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Geturðu leiðbeint mér betur? Verður maður að stilla þetta á hverri blogfærslu? Hvað á ég að hafa í glugganum svo ég getir verið laus við það sem ég ekki vil en birt það sem ég vil?

Halldór Jónsson, 3.6.2019 kl. 09:39

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar meina ég en ekki Smári

Halldór Jónsson, 3.6.2019 kl. 09:40

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, það er ekki hægt að blokka ThorBrowser út því hann skiptir um IP tölur stanslaust

Halldór Jónsson, 3.6.2019 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband