Leita í fréttum mbl.is

Kratískur háttur Styrmis Gunnarssonar

er til sýnis þegar hann skrifar eftirfarandi:

 

"Elizabeth Warren, öldungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum, sem býður sig fram til forsetaframboðs í næstu forsetakosningum þar í landi, er með athyglisverðari stjórnmálamönnum, sem fram hafa komið vestan hafs á síðari árum.

Nú sker hún sig úr frambjóðandahópi demókrata vegna þess að hún leggur fram útfærðar tillögur um úrlausn einstakra samfélagsvandamála. "Ég hef plan", segir hún á fundum og þær málefnahugmyndir, sem hún hefur lagt fram til þessa virðast ná til kjósenda.

Þetta er athyglisvert á tímum, þegar allt annað en málefni virðist ríkjandi í þjóðfélagsumræðum, hvort sem er í Bandaríkjunum eða annars staðar á Vesturlöndum, þar sem almannatengla-pólitíkin virðist ráðandi og er þá átt við að mestu skipti, að "búa til" rétta "ímynd" af frambjóðanda en minna hvað hann hefur að segja.

Það verður í þessu ljósi spennandi að fylgjast með því hvernig Elizabeth Warren reiðir af í kosningabaráttunni vestan hafs. Þessa stundina er hún á uppleið. "

Donald J. Trump hafði plan. Og það sem meira er að hann er að framkvæma ín plön. Og er að takast margt.

Þessi sjötuga kona á enga möguleika gegn Donald J. Trump eins og nú horfir.  Hún hefur gert pópúlíska tilraun til þess að telja sig Indíána-ættar með umdeildum árangri og Trump uppnefndi hana Pocha-Hontas fyrir vikið og bauð að borga eina milljón til góðgerðamála ef hún gæti sannað sitt mál með upprunann. 

Hún er fyrrum lagaprófessor en hefur ekki doktorerað sem er svolítið furðulegt með langan akademiskan feril að baki. 

Kjósendur vita hvað þeir hafa í Trump og eru ekki á þeim buxum að gera einhverjar tilraunir að kratískum hætti Styrmis Gunnarssonar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elisabeth Warren - Ponka Hontas - uppáhalds andstæðingur President Donalds J.TRUMP á engin tækifæri á móti sitjandi forseta AMERIKU. HANN er "STJARNA" allra ÞJÓÐARLEIÐTOGA, sem ALLIR sogast að og vilja KYNNAST HONUM PERSÓNULEGA og fjármálastjórnun USA, sem komin var "fjandans til" undir stjórn Demokrata síðastliðin 8 ár.

ÍSLENDINGAR eiga það sameiginlegt með President Donald J. TRUMP, en það er SKOÐUN hans á stjórnleysi ESB landa.

Hann er að mínu mati rétti maðurinn fyrir ómengað ÍSLAND, ómengaðar og ólyfjaðar afurðir BÆNDA og SAUÐFJÁRRÆKT, GRÓÐURHÚSIN inni og útiræktun og EKKI síst SJÁVARÚTVEG.

OKKAR sterka hlið er staðsetning á OKKAR helga Landi og KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR í samstarfi með NATO.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 10.6.2019 kl. 15:55

2 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ég hef fylgst með bandarískri pólitík eftir að ég nánast hætti að hlusta á ruv.

Ég hef aldrei minnst á Trump enda hélt ég að honum mistækist. Það er nú eitthvað annað. Hann er merkasti þjóðarleiðtogi sem hefur komið fram í áratugi. Allir hafa stefnu, þó það nú væri. Elizabeth Warren fer fram af því að þungavigtarfólk í Demókrataflokkun vill ekki eyðileggja möguleika sína í framtíðinni með því að tapa fyrir Trump 2020. 

Benedikt Halldórsson, 10.6.2019 kl. 16:59

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég er sammála þér Benedikt. Elizabeth er bara smástirni sem enga þýðingu hefur hvað sem Styrmir segir annað í kratísku.sinni.

Halldór Jónsson, 10.6.2019 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband