Leita í fréttum mbl.is

Útsýni frá LSH

spái ég dálítið í þegar ég kem þar alloft.

Ég man eftir gömlu Pólunum sem voru málaðir að framan þegar kóngurinn kom. Þá litu þeir bara ekki illa út.

En finnst fólki mikil fegurð í steinsteypukumböldunum sem félagið Valsmenn ehf er búið að reisa þarna á flugbrautinni?

Einbeittur vilji Borgarstjórnarmeirihlutans til að eyðileggja sem mest af Reykjavíkurflugvelli  hefur þar náð fram að ganga. Og skemmdarverkunum er ekki lokið þar sem þeir ætla að byggja fyrir suðurendann líka.

Svo ræðst þessi meirihluti til atlögu við Elliðaárdalinn og ætlar að setja þar 43 ha. undir sína gæðinga. 4000 fermetra Gróðurhvolf? Flytja skolpræsi frá Breiðholti  fyrir milljarð.Og svipta íbúa höfuðborgarsvæðisins aðgengi að þessari vinsælustu náttúruperlu.

Meirihlutinn ríkir í skjóli Viðreisnar og Pírata sem voru ósparir á fyrirheit um gegnsæi og lýðræði fyrir kosningar.Nú er ekki talað við neinn en stefnan um þéttingu byggðar og barin í gegn. Borgarlínan á að flytja fólkið í göngutúra um Elliðaárdalinn og í gróðurhvolfið en ekki 300 einkabílar.

Skyldi þetta fólk verða endurkosið sem sem ekki tekur minnsta tillit til kjósenda sinna og nágranna? Safnar milljarðsskuldum á mánuði meðan önnur sveitarfélög í kring gæta aðhalds? Þvílkur dýrðar-Dagur er upp runninn.

Mér finnst persónulega útsýnið hafa stórum versnað frá LSH séð með þessum steypukumböldum gróðapunganna sem kalla sig Valsmenn ehf og ekki vildi ég þurfa að búa þarna, svo mikið er víst fyrir kannski milljón á fermetrann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er ég algjörlega sammála öllu því sem segir í þessum pistli. Spillingin í kringum Hrólf og Valsmenn og Dag og allt þetta glerhvelfinga verslunarkjarna svæði sem á að rústa hluta Elliðaárdals er alveg með ólíkindum ruddaleg og óforskömmuð.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 11.7.2019 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband