Leita í fréttum mbl.is

Björn situr sinn við keip

Það á að samþykkja orkupakka 3 en til sátta finnst Birni Bjarnasyni upplagt að láta fara fram þjóðaratkvæði um sæstrengslögn ef til kemur einhvern tímann?

Hann skilur ekki að þjóðin vill ekki Orkupakka3. Hann skilur ekki að þjóðin er búin að fá upp í kok af ESB og EES þjónkun Sjálfstæðisflokksins og ofbýður framferði þingflokksins gagnvart grasrótinni.

Getur hann ekki skilið að við viljum þjóðaratkvæði um orkupakka 3  en ekki um einhvern sæstreng?

Björn bara situr sinn við keip og Haraldar að O3 skuli ofan í okkur hvað sem tautar og raular.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Svona er tónninn í Birni: 

 

Áróður í stað fyndni

Þessi mynd Morgunblaðsins er ekki skopmynd heldur áróður reistur á upplýsingafölsunum.

Helsta uppspretta umræðna um þriðja orkupakkann er Morgunblaðið. Varla líður einn útgáfudagur þess án birtingar á einhverju efni sem tengist honum. Meðal andstæðinga orkupakkans er skopmyndateiknari í blaðsins. Vegna þess hve hann er upptekinn af andstöðu sinni við þriðja orkupakkann víkur fyndnin of oft fyrir áróðri. Hér var fyrir nokkru nefnt hvernig fagstofnun ESB um hagkvæmasta nýtingu orkudreifingarkerfis sambandsins, ACER, var teiknuð sem skrímsli gagnvart Íslandi. Stofnunin hefur þó einfaldlega ekkert um Ísland að segja.

Myndin sem birtist í blaðinu í dag (15. júlí) þjónar þeim tilgangi að gera lítið úr hugmynd sem Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti í grein í blaðinu í fyrri viku og meðal annars var fjallað um hér. Tillaga Haralds er að kæmi til þess að alþingi ætlaði að taka ákvörðun um að heimila sæstreng til að flytja raforku frá Íslandi til annarra landa yrði þjóðin spurð álits á málinu í atkvæðagreiðslu.

Screenshot_2019-07-15-untitled-A2019-07-15-pdf

Tillagan er kynnt í sáttaskyni og tekur á máli sem borið hefur hátt í umræðum um þriðja orkupakkann undanfarið þótt rætt hafi verið um sæstreng til að flytja rafmagn frá Íslandi í það minnsta um 40 ár. Það þarf engan þriðja orkupakka til að ákveða sæstreng.

Vegna þessarar sáttatillögu birtir teiknari Morgunblaðsins mynd af Haraldi annars vegar og tengil á sæstreng hins vegar með spjald þar sem á stendur: Skaðabótakröfur vegna EES. Neðst á myndinni stendur: Þjóðaratkvæði um yfirvofandi skaðabótakröfur.

Þarna er haldið að lesendum þeirri kenningu að neiti íslensk stjórnvöld þeim sem lagt hefur sæstreng til Íslands að setja hann í samband við íslensk grunnvirki skapi það íslenska ríkinu skaðabótaskyldu.

Vissulega geta fjarstæðukenndar hugmyndir orðið að veruleika og lífsreynslan er oft lygilegri en skáldsaga. Að láta sér til hugar koma að einhver stofni til þeirrar fjárfestingar að leggja hingað sæstreng til þess að geta haft uppi skaðabótakröfur komi hann að lokuðum dyrum krefst mikils hugmyndaflugs um áhættufíkn fjárfesta. Að kenna þetta við EES er einnig mikil hugarleikfimi. EES leggur engar skuldbindingar í þá veru á herðar íslenska ríkinu að það beri skaðabótaskyldu gagnvart slíkum áhættufjárfestum. Að þeir kunni að kvarta til Eftirlitsstofnunar ESA segir ekkert um niðurstöðu þess máls. ESA hefur matskennt vald þegar að kvörtunum um markaðsmál kemur.

Þessi mynd Morgunblaðsins er ekki skopmynd heldur áróður reistur á upplýsingafölsunum. Teikningin er ófyndnari en hugmyndin sem einn andstæðingur þriðja orkupakkans setti fram á Facebook. Hún snerist um að fjárfestir setti upp vindraforkugarð hér á landi og heimtaði að fá að leggja sæstreng til að flytja orkuna frá honum til Bretlands. Á þennan hátt mætti skerða forræði okkar með þriðja orkupakkanum. Þetta getur einhver gert hvað sem þriðja orkupakkanum líður. Fyrsta spurningin hlýtur þó að vera: Hver er munur á vindinum hér og á Bretlandseyjum eða við þær?

    • DEILA

    Halldór Jónsson, 15.7.2019 kl. 14:47

    2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

    Það eru mistök að tengja saman Orkupakka ESB og sæstreng.
    Afkomendur okkar kunna að sjá sér hag í sæstreng og ég vil að þeir eigi þann valkost án erlendra afskipta annarra en samingsaðila á hinum endanum.

    Kolbrún Hilmars, 15.7.2019 kl. 15:42

    3 identicon

    Það er hreint út sagt orðið pínlegt að fylgjast með Birni Bjarnasyni klæða sjálfan sig úr hverri spjör og afhjúpa sig gjörsamlega sem æstasta ESB innlimunarsinnann hér á landi.  

    Maður hefur sjaldan, ef nokkru sinni, orðið vitni að öðrum eins umskiptum.  Annað hvort er það svo, að Björn hafi umturnast til ofsa ESB trúar, eða það, að hann hafi lengi siglt undir fölsku flaggi en feli það ekki lengur og sé kominn berstrípaður út úr skápnum og líkastur þýska svipuliðinu í gamanþáttunum Allo, allo.

    Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 15.7.2019 kl. 20:07

    4 identicon

    Já, það segirðu satt, enda er ég löngu hætt að botna nokkuð í honum og nenni varla orðið að lesa þetta ESB-kjaftæði í honum.

    Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2019 kl. 21:35

    5 identicon

    Í Fljótshlíð er Björn með bú,

    og bloggar í þeirri trú,

    að mætt gæt'á Hlíðarenda,

    Gunnar milljónum fjenda,

    með Orkupakka þrjú...money-mouth

    Þjóðólfur í Orkuböggli 3 (IP-tala skráð) 15.7.2019 kl. 23:05

    6 identicon

    Í Fljótshlíð er Björn með bú,

    og bloggar í þeirri trú,

    að mætt gæt'á Hlíðarenda,

    Gunnar milljónum fjenda,

    með Orkupakka 3...money-mouth

    Þjóðólfur í Orkuböggli (IP-tala skráð) 15.7.2019 kl. 23:15

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Halldór Jónsson
    Halldór Jónsson

    verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

    -ekki góður í neinu af þessu-

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (25.4.): 4
    • Sl. sólarhring: 7
    • Sl. viku: 56
    • Frá upphafi: 3418215

    Annað

    • Innlit í dag: 2
    • Innlit sl. viku: 54
    • Gestir í dag: 2
    • IP-tölur í dag: 2

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Eldri færslur

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband