Leita í fréttum mbl.is

Raðbilun?

í hugum þingflokks Sjálfstæðisflokksins?

Páll Vilhjálmsson hugleiðir vegferð flokksins í orkupakkamálinu.

 

" Sjálfstæðisstefnan á sér traustari bandamann í Miðflokknum en þeim flokki sem kennir sig við sjálfstæði. Orkupakkinn er eitrað peð í refskák við ESB um fullveldi þjóðarinnar.

Allir sjá það nema forysta Sjálfstæðisflokksins sem er bandingi djúpríkis embættismanna og hagsmunasamtaka er vill Ísland inn í Evrópusambandið.

Orkupakkinn gagnast íslenskum almenningi nákvæmlega ekkert.

Þvert á móti eru allar líkur að almannahagur versni þegar auðmenn eignast raforkuna til að selja úr landi og hækka í leiðinni raforkuverð til Jóns og Gunnu. 

Forysta Sjálfstæðisflokksins er ekki í neinum tengslum við stjórnmálastrauma samfélagsins.

Orkupakkamálið bregður afar neikvæðu ljósi á EES-samninginn sem forysta Sjálfstæðisflokks ver með kjafti og klóm og af meiri trúarhita en yfirlýstir ESB-sinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í 19 prósent fylgi og botninum er ekki náð.

Enda hægara sagt en gert að lagfæra raðbilun í dómgreind forystu og þingflokks fyrrum móðurflokks íslenskra stjórnmála."

Raðbilun í dómgreind er líklega það sem skeður þegar grindhvalir hlaupa á land á Löngufjöru eða þegar læmingjarnir hlaupa fyrir björg hver á eftir  öðrum.

Ég hef nú meiri trú á Bjarna Benediktssyni heldur en að hann sjái ekki hvert stefnir með flokkinn hvað sem nýja unglingalandsliðið í forystunni segir.En það tekur fram að það hafi veri kjörið til forystu og því eigi það að ráða stefnunni. Það er stundum sitt hvað gáfur  og gjörvileiki.

Ég held því að þessu máli verði vísað til sameiginlegu EES nefndarinnar og siglt fram hjá boðanum 3.september.Því lítið talar Birgir Ármannsson við Sjálfstæðismenn til sannfæringar um orkupakkann þessa dagana svo ég heyri að minnsta kosti.

En varðandi uppgang Miðflokksins þá finnst mér að Sigmundur Davíð sé vaxandi stjórnmálamaður hvar sem á er litið. Ég hefði viljað sjá sameinaðan  Framsóknarflokk á ný til að fækka flokkakraðakinu sem vel gæti orðið í nýjum kosningum.

Mér verður hugsað til þess tíma þegar þeir Bjarni og Sigmundur Davíð  höfðu samstíga forystu með að taka á bönkunum sem ég sé ekki að aðrir hefðu gert. Þá voru einnig stigin skref í afléttingu vörugjalda til lífskjarabóta. 

Það voru óheillaskref fyrir þjóðina þegar samsærismönnum tókst atlagan að Sigmundi með aðstoð RÚV  og við skyldum ekki gleyma þeim aðförum né gerendum.

 

Núverandi ríkisstjórnarsamstarf er að skila þjóðinni fáu einu að mér finnst. Mér finnst fátt að gerast í framfaramálum sem gnótt er til af og ég tel stofnun þjóðarsjóðs ekki hluta af.

Er þá ekki að koma tími á breytingar og að hverfa frá raðbilun kyrrstöðunnar?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"RAÐBILUN".Hvala og ríkisstjórnar í vegferð ORKUPAKKA MÁLSINS skrifað af Páli Vilhjálmssyni vekur athygli. KJÓSENDUR hafa svarað ríkisstjórninni?. Röng svör frá Alþingi í haust varðandi sameiginlega eign ÍSLENDINGA á AUÐ og ORKUNNI gætu valdið "eldgosi" í víðum skilningi.

Minni stjórnmálaflokkar sameinist með þeim stjórnmálaflokki sem berst fyrir Landið okkar og ÍSLENDINGA og sameiginlega ORKU auk FULLVELDISINS OG SJÁLFSTÆÐI ÍSLENDINGA.

Fámenni ÍSLENDINGA hrópar ekki eftir fjölþjóða innflutningi ólíkra landa til að ÞÓKNAST SKIPUNUM ESB landa,að viðbættum sköttum og Loftslagshugmyndum "furðuhópa" Demokrata.

Vandamál ÍSLENDINGA hverfa og sameiginlegur auður fyllir alla okkar sjóði ef sambandsrausið og vistin við ESB/EES og SCHENGEN hverfa. 

ÍSLAND gaf mest (miðað við fólksfjölda)í gamla daga til fátækra í útlöndum. Fiskur,skreið,vatn og lýsi var sent í miklu magni til útlanda. Við skulum ekki líta út eins og vinalöndin Svíþjóð, Noregur og Danmörk eftir vistina með "logandi" ESB löndum. STÖNDUM MEÐ ÍSLANDI OG LANDSLÖGUM.

Heilsa,langlífi,dugnaður,tungumálið,sagan og landafundir er hluti af góðri upptalningu auk víkingaferða, sem standa fyrir viðskipti svo eitthvað sé talið.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 21.7.2019 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband