Leita í fréttum mbl.is

Enn bréf frá Gísla

Holgerssyni sem mér finnst lýsa mörgum þeim tilfinningum sem margir óbreyttir Sjálfstæðismenn hafa gagnvart O3 og þeim fyrirætlunum Bjarna Benediktssonar og þingflokks Sjálfstæðisflokksins að samþykkja pakkann með V.G. og Framsóknarflokki þegar þing kemur saman í septemberbyrjun. Þeir virðast staðráðnir í að fara sínu fram hvað svo sem okkur í grasrótinni kann að finnast. 

En Gísli lýsir sínum tilfinningum svo:

"

ERU ÍSLENDINGAR MEÐ HLUTVERK?

Hvað táknar nafnið Ísland.  ÍSLAND var skógi vaxið við landnám frá fjöru til fjalla.   

ÍSLAND og ÍSRAEL skrifast með 6 stöfum.  Reykjavík og Jerúsalem höfuðborgin í Ísrael skrifast með 9 stöfum.  Það er nú bara tilviljun?.  Thor Ó Thors fulltrúi Íslands hjá Sameinuðu Þjóðunum sýndu hugrekki  með að ganga í forsvari fyrir sjálfstæði Ísraela  14. maí 1948.  Er það skrýtið,  að Íslendingar skíra börnin sín eftir fyrsta nafni föðurins, en það gera Gyðingar líka. 

Við eigum að hafa skoðanir á ESB Evrópu skrifurum og því „mútufé“, sem berst frá ESB sjóðum til fjármögnunar einstaklinga, sem búa „erlendis“ og á ÍSLANDI og segja „ósannar“ sögur um „ágæti“ inngöngu fámennrar þjóðar ÍSLENDINGA. 

ÍSLENSKIR ESB starfsmenn í BRUSSEL, borgaðir af skattfé almennings og „siðlausra“ stjórnmála flokka á ÍSLANDI, sem fara geyst í skrifum um „gróðann“ af inngöngu í reglufarganið hjá „logandi“ ESB löndum, sem EKKI ráða NEITT við innflutning FJÖLÞJÓÐA frá stjórnlausri Arabíu og Afriku.

Keltarnir, BREXIT, ENGLAND er á útleið frá ESB 31. október.   ÍSLAND með 300 þúsund ÍSLENDINGA  hefur EKKERT að gera í þessari ráðlausu „hít“.

Finnst Íslendingum ekki nóg að greiða skuldir í eigin landi?.  Viljum við taka þátt í uppbyggingu ESB landa þar,  sem  mörg  þeirra eru við „hrunmörk“.   Atvinnuleysi er víða um 50%.  Almenn afkoma mjög léleg.  Evran er í hættu, en haldið uppi af Þjóðverjum.

Vilja ÍSLENDINGAR greiða tugi miljarða á hverju ári fyrir „vistina“  með ESB.    NEI svara 85%  ÍSLENDINGA?.   Burt frá ESB-EES og SCHENGEN, en landamæri Íslands eru nú við Miðjarðarhafið.   

NATO, USA og Vestræn Samvinna eru OKKAR mál og KOSTAR EKKERT.  ÍSLAND  er eyja Norður í Atlantshafi,  sem býr við örugg landamæri  og  fullt sjálfstæði  með 200 mílna fiskveiði-lögsögu.  ÍSLENDINGAR  hafna  skipulögðum  fjölþjóða  hugmyndum  ESB landa.

 Munum Keflavíkurflugvöll, besta flugvöll norðan Alpafjalla, sem Bandaríkjamenn borguðu að fullu, en við eigum í dag.  Við sjáum breytta og betri  AMERÍKU  eftir forsetaskiptin  í nóvember árið 2016. 

Undirstrikum grunnstoðir Íslendinga,  bændur og sjávarútveg.  Þeir hafa sannað okkur heilbrigði, hollustu og langlífi Íslendinga.  Við verndum íslensk auðævi og biðjum um náð og fjárhagslega bjarta framtíð utan ESB landa.

ESB sinnaðir stjórnmálaflokkar verða ÍSLANDI ekki til framdráttar á næstu árum með óskir um inngöngu við ESB lönd.  

 Tímar  „ævintýramanna“  skulu ekki gleymast  og er vonandi liðin tíð í okkar Helga ÍSLANDI, eins og Dr.Adam Rutherford skrifaði um Ísland árið 1937.

ÍSLAND hafði mikil áhrif á Lávarð DUFFERIN, sem kom hér á eigin skipi 1856.  Hann keypti 26 reiðhesta og reið með góðu föruneyti til Gullfoss og Geysis og endaði á ÞINGVÖLLUM.

ÞAR TÁRAÐIST HANN AF „ALMÆTTINU OG FEGURÐINNI“, Á ÞINGVÖLLUM, SEM GREYP HANN Í JÚNÍ MÁNUÐI 1856.

Þessi atvik skulum við muna, þegar ALÞINGISMENN ganga um gólf á virtu,ELSTA ALÞINGI HEIMS og efast um sameiginleg AUÐÆFI ÍSLANDS varðandi ORKUNA, BLÁVATNIÐ og VIRKJANIR.

GLEYMUM EKKI SÆFERÐUM OG LANDAFUNDUM VÍKINGANA, SEM STANDA FYRIR „VIÐSKIPTI“ , RITSTÖRF OG BÓKMENNTIR.  KJÓSUM UM ORKU PAKKANN og sameiginleg AUÐÆFI á ÍSLANDI.  Þetta er hin rétta kynning á ÖRUGGU ÍSLANDI varðandi ferðamálin og alla heilnæma framleiðslu BÆNDA, SJÁVARÚTVEGS og ofur GRÓÐURHÚSA. CARGO-Flugið í Norðurljósa litum, er hugsanlega spennandi framtíð.

„Regnbogalitir og frjálsar ástir“ auglýst einu sinni á ári, er ekki sú framtíð, sem við óskum eftir í náinni framtíð til að auglýsa framleiðsluvörur og ferðaiðnað á ÍSLANDI.  Gamla ÍSLAND, Sagan og Ritstörf virka best til Landkynningar.

ÍSLAND ER EINSTAKT LAND, SEM BANNAÐ ER AÐ SELJA TIL ERLENDRA AUÐKÝFINGA OG ERLENDRA ÞJÓÐA SAMKVÆMT LANDSLÖGUM.  ÍSLENSKA RÍKIÐ SKAL KAUPA ALLAR JARÐIR AF BÆNDUM Á HÆSTU VERÐUM, EN EKKI Á „OKUR“ VERÐUM.   

Gísli Holgersson.  "

Ég get ekki annað en tekið ofan fyrir svona hreinni ættjarðarást eins og birtist oft í skrifum hans Gísla. Ég get ekki flokkað svona afstöðu eins og þröngsýni og einangrunarhyggju eins og sumir forystumenn Sjálfstæðisflokksins hreyta í okkur efasemdarmenn um O3.  

Hittumst á Kili sagði Sugga-Sveinn í kveðjuskyni við fjandmenn fjandmenn sína. Það kemur að prófkjörum þar sem ekki er víst að mál séu gleymd fremur en geymd hjá fólki eins og Gísla og mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég sakna Halldórs að sunnan, ef hann hættir að gefa comments!

 

Það er gaman að sjá og ég öfunda öfunda þá menn sem geta skoðað ÖLL mál og verið fagmannlegir eins og Gunnar Rögnvaldsson og Jón Valur.  Hversu menn eru lagnir að leita upplýsinga um allt milli himins og jarðar (líka í %%%).   Hjá mér snýst þetta aðallega um „tilfinningar“ , hvað hjartað boðar, en EKKI fagmennsku.

Kærkveðja.

Gísli  Holgersson

Halldór Jónsson, 11.8.2019 kl. 17:04

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessi síðasti texti kom til mín ó pósti frá Gísla en er ekki saminn af mér

Halldór Jónsson, 11.8.2019 kl. 17:06

3 identicon

Kærar þakkir Halldór.

Við eigum ennþá "ELDFJÖLLIN".

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 11.8.2019 kl. 23:58

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þú saknar mín semsagt ekki neitt, nafni;-)

 Ætla nú samt að læða hér inn smá athugasemd.

 Bréf Gísla er sem ritað frá hjarta mínu. 

 Á Kili prófkjaranna verður þeim refsað, sem illa virðast ætla að bregðast trausti þeirra er kusu þá, verði almennt stofnað til prófkjara. Einræðistilburðir stjórnar Sjálfstæðisflokksins og hroki benda til þess að prófkjör verði með öllu aflögð og ´´skipað´´ verði á lista. Sannaðu til, nafni! Þannig verður staðan fyrir næstu kosningar.

 Sjálfstæðisflokkurinn með öðrum orðum orðinn ´´sjálfseignarstofnun´´ þar sem aðeins dauðinn sjálfur getur bolað burt stjórnendum og enginn er ábyrgur gerða sinna. Svona svipað og eftirlauna og sjálfseignarstofnunin Eir hér um árið! Endalaus loforð og enn fleiri svik, prettir, lygar og djöfulskapur, án þess nokkur væri kjöldreginn fyrir andskotans aulaháttinn í sjálfum sér.

 Þokkalegur andskoti, eða hitt þó heldur og svíður meir en orð fá líst.

 Stefna Sjálfstæðisflokksins er góð stefna. Þegar hinsvegar karluglan í brúnni lætur dímóna á báðum öxlum sínum, vini eða vandamenn, erlend öfl eða hvað sem er, afvegaleiða sig og gleymir kúrsinum að áfangastað, getur skútan ekki annað en strandað. Þegar það gerist verður karluglan fyrst frá borði, enda aldrei þess verð að stýra skútunni. Verst fyrir hann sjálfan, hve áttavilltur hann er orðinn.

 Ekkert annað en fjarstýrt rekald allan tímann, þó borið hafi sig mannalega af og til. Fjallmyndarlegur maður og allt það, en ekki láta utlitið blekkja. Man ekki hvort þetta var sagt fyrst um mann eða bók, enda skiptir það ekki nokkru einasta máli í þessu slæma tilfelli.

 Lítilsvirðing hans og meðreiðarteymis við háseta sína og þjóðina alla í að minnsta kosti tví, ef ekki þrígang, þar sem hann gaf beinlínis það út að þeir væru aumingjar og væri best borgið undir handleiðslu klúbbs skipstjóra á svipuðu undir og eftirlátsstigi og hann sjálfur, gleyma þroskaðir hásetarnir eða landslýður ekki svo auðveldlega. Áttu meira að segja að borga brúsann, af eigin hlut, þó hvergi hefðu nær komið! 

 Þegar kemur að því síðan hjá hásetunum að velja sér skipsrúm á ný, um næstu fardaga, mun karluglunni sem nú telur sig stjórna Sjálfstæðisflokknum, ekki takast að ráða heila áhöfn til nokkurs hlutar. Hvorki til lands né sjávar, því vonandi missir hann réttindin til stjórnunar. Þar getur hann engum öðrum um kennt en sjálfum sér og undirgefni við slefandi hýenur embættismannakerfisins, sem enginn kaus, en virðast nú í þeirri stöðu að geta ákveðið hvað það kosti að slökkva, eða kveikja ljósin, á heimilum landsmanna, eftir að hafa fengið um það ´´ordrur´´ að utan.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 12.8.2019 kl. 01:03

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er ekki rétt nafni minn að sunnan, þín er sárlega saknað af mörgum. Ég vil aðeins biðja þig um að  vera aðeins hófstilltari í lýsingum á því fólki sem þér mislíkar við eins og mér. En við græðum, ekkert á ljótu orðfæri, það kenndi hann Þorbjörn á Mogganum mér fyrir óralöngu og ég hef reynt að fylgja því ráði.

Halldór Jónsson, 12.8.2019 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband