Leita í fréttum mbl.is

Leiðtogi minn

sunnaskyndilegur í orkumálum sem varða afgreidd sem stefna Íslands þann 3. september fyrir klukkan átta um kvöldið er þessi fríða kona hún Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. 

Því lofar þessi allt í einu leiðtogi minn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eftir að hafa talað við  Gulla og fleiri þingmenn sem eru jafngáfaðir og hann og skilja Orkupakka 3 alveg eins og hún Þórhildur Sunna sem bregst ekki frekar en bandamennirnir í Viðreisn og V.G. Og Steingrímur Jóhann er víst með líka sem auðvitað spillir ekki heildasvipnum á liði bandamanna.

Samtaka allir nú. Ein órofa fylking orkupakkamanna á Alþingi Íslendinga. 

Hugsanalega mætir þessi nýi leiðtogi minn hún Þórhildur Sunna á næsta Landsfund Sjálfstæðisflokksins og nær kjöri í miðstjórn sem mér tókst aldrei þar sem hugsjónirnar í orkumálunum  falla svona vel saman við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Þar verður hugsanlega líka  fagnað afmæli viðskiptastríðsins við Rússana.

Lifi Evrópuhugsjónir leiðtoganna minna sem hvergi hopa í erfiðum málum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Kæri nafni, hve vel ég skil uppljómun þína, yfir nýfengnum leiðtoga þínum! Föllumst nú allir á kné og tilbyðjum allsherjarslekti fullveldisafsalssinnanna! Helst skríðandi á fjórum fótum. Annað eins samansafn af svikurum finnst ekki, nema í Getsemane forðum. Meira að segja haninn í morgunrenningunni skilur ekkert í þessum brigslum ´´tryggustu´´ varðhunda lýðræðisins.

 (Hef ekki lagt neinum orð í munn, ekki skitið út eina einustu persónu og jafnframt gætt þess að vanda orðaval mitt eftir fremsta megni;-))

 Er ekki lífið annars dásamlegt!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 14.8.2019 kl. 01:55

2 identicon

Sæll Halldór.

Þetta kalla ég að skjóta sig í fótinn!

Þórhildur Sunna býr yfir dulmagnaðri fegurð
sem menn fá séð í eitt skipti á ævinni og aldrei meir.

Næsta mál er þá OP 4, - er það ekki?

Húsari. (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 11:55

3 identicon

Evrópusinnar lifa dátt á ALÞINGI. Eru allir í sama "flokknum"? Þrátt fyrir"blóðuga" baráttu innbyrðis á Norðurlöndum og í Evrópu. Smáflokkar þjappa sér saman með samstarfsfólkinu í BRUSSEL,sem reynir að yfirtaka ORKUMÁL ÍSLENDINGA og VIRKJANIR. Ég frétti á góðri útvarpsstöð SÖGU að þúsundir Svía eru að flytja til Póllands í leit að friði og "ÖRYGGI", en enginn segir frá þessum stórfréttum?

Förum hægt um gleðinnar dyr og reynum ekki, sem fÁMENN ÞJÓÐ að bjarga "ráðleysi" Evrópumanna. "VIÐ SKULUM EKKI MONTAST" um of á BREYTTU ÍSLANDI.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 14.8.2019 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband