Leita í fréttum mbl.is

Danir trompast út í Trump

sem gerði þó ekki annað en að endurtaka kauptilboð Harry Truman frá 1946 til Dana í Grænland með hurðum og gluggum.Og annar forseti þar áður?

Forsætis-Blástakkur frá Grænlandi sem var að heimsækja okkur sagðist þó vilja tala við Trump hvað svo sem hún Metta segði.

Það var hann Trump sem spaugaði með að hann lofaði að byggja ekki Trmup-turn á Grænlandsjökli sem gerði Dani vitlausa. Þeir höfðu ekki húmor fyrir því og því hættir Trump við að heimsækja hana Mettu.

Hvað skyldi hinsvegar gerast ef Trump byði Grænlendingum segjum hundraðþúsund dollara hverjum ef þeir samþykktu í þjóðaratkvæði að Grænland yrði fylki í Bandaríkjunum og svo og svo mikið fé rynni auk þess til Grænlands sem nýs fylkis. Hefði Metta eitthvað með það að gera?  Svona Pútínskt Krímtrikk? Eru menn vissir um hvernig svoleiðis tilboð myndi enda?

Hversu vænt þykir Grænlendingum um Dani? Svona eins og Íslendingum þótti vænt um Dani hér áður fyrr þegar hér skorti margt?

Var einhver ástæða fyrir Dani að trompast út í Trump?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reyndar var það bara Trump sem trompaðist. Hann hélt að hann væri að fara að kaupa Grænland og var með tékkaheftið tilbúið. Móðgaðist mikið og hætti við ferðina þegar honum var tjáð að ólíkt öllu í hans heimi þá væri Grænland ekki til sölu.

Vagn (IP-tala skráð) 21.8.2019 kl. 15:15

2 identicon

BLÁSTAKKAR á GRÆNLANDI og BLÁIHERINN, sem stofnaður var á ÍSLANDI fyrir um 40 árum eru"BYLTINGARNÖFN". BLÁSTAKKAR vilja tala við USA varðandi söluna á GRÆNLANDI en BLÁIHERINN hóf hreinsanir á NETADRÆSUM,PLASTI og RUSLI af strandlengjunni suður með sjó.HNATTRÆN HLÝNUN ER HUGMYNDAFRÆÐI EN EKKI VÍSINDI, sem ESB ástunda í polutík og innan USA nota í pólutískum tilgangi. HEIMSENDIR fullyrða þær innan 11 ára???.

"Leiðtogarnir"brosa,skrýkja og faðmast yfir afrekum sínum innan "logandi" ESB landa. ÍSLAND er EKKI hluti af ESB og ÞJÓÐIN neitar ALLRI aðild.

Við sitjum uppi með "vandamál ESB"vegna stjórnmála flokkanna, sem sitja á háttvirtu ALÞINGI. ENGINN þessara stjórnmálaflokka VG/XD og XB VILDU SITJA Í VISTINNI HJÁ ESB. NÚ SITJA FLOKKARNIR "RÚSTAÐIR" OG VINNA FYRIR "AÐRA" EN ÍSLENDINGA???.  ÍSLAND stendur næst viðskiptunum við GRÆNLAND, sem eru ekki útilokuð við USA, hugsanlega líkleg?. SJÁVARÚTVEGUR, JARÐGÖNG, UPPBYGGING,HEITAVATNIÐ,VEGAGERÐ OFL.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 21.8.2019 kl. 21:22

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Vita menn ekki í hvaða heimsálfu Grænland er?!

Sigurður I B Guðmundsson, 21.8.2019 kl. 22:39

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Hafa Danir eitthvað  með það að gera ef Grænledningar myndu kjósa að sameinast USA?

Halldór Jónsson, 22.8.2019 kl. 07:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband