Leita í fréttum mbl.is

McArthur

hershöfðingi var hugsanlega ekki maður margra orða og átti því á brattan að sækja gegn Truman.

Hann sagði þó þetta:

"An old soldier never dies, he just fades away". Gamall hermaður deyr aldrei, hann bara hverfur sýn.

Ég er stundum að hugsa það í seinni tíð hversu lífseigur Sjálfstæðisflokkurinn sé. Gamall flokksmaður virðist seint deyja. Hann bara hverfur sýn.

Þar við bætist að hinir flokkarnir eru svo hræðilegir að gamall Sjálfstæðismaður getur seint fengið sig til að kjósa neinn af þeim. Björn Leví, Þórhildur Sunna, Inga Sæland? Herre Gud!

Flokkurinn fer langt á þeirri staðreynd einni saman. Jafnvel þó að einhverjir hafi látið sig hafa það eftir tilmæli að ofan að hafa  kosið kratana einhvern tímann í gamla daga  til að bjarga viðreisnarstjórninni.

Í þessu skjóli getur forystan skákað lengi vel og jafnvel trúað því að hún sé sjálfkjörin vegna eigin ágætis og verka sinna!

McArthur var ekki alvitlaus þó Truman fyndist það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Réttari er orðtakið "Old soldiers never die, they simply fade away" og var hluti af vinsælu lagi meðal Breskra hermanna í fyrri heimstyrjöldinni. 

 “Old soldiers never die, 
       Never die, never die, 
       Old soldiers never die —
       They simply fade away. 

       Old soldiers never die, 
       Never die, never die,
       Old soldiers never die —
       Young ones wish they would.”

Vagn (IP-tala skráð) 9.9.2019 kl. 15:00

2 Smámynd: Halldór Jónsson

McArthur hefur líklega tekið þetta að láni úr kvæðinu góða. Enda sagði truman að hann væri nú ekkert ljós til höfuðsins

Halldór Jónsson, 9.9.2019 kl. 16:12

3 Smámynd: Halldór Jónsson

En takk fyrir þessa ábendingu Vagn

Halldór Jónsson, 9.9.2019 kl. 16:13

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta passar bara enn betur við það sem ég var að tala um.

Halldór Jónsson, 9.9.2019 kl. 16:13

5 identicon

McArthur vildi ganga "hreint til verks", hann vildi varpa kjarnorkusprengju á N.Kóreu. Þá sparkaði Truman honum.

Hann skipaði nefnd eftir stríðið til þess að semja stjórnarskrá fyrir Japani. Nefndin lauk verki sínu á einni viku.  Rúml. tvítug stúlka, Beate Sirota, samdi kaflann um réttindi kvenna. Þessi stjórnarskrá mun enn vera í gildi að mestu.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 9.9.2019 kl. 18:15

6 identicon

Það er nú það. Ég berst við efasemdirnar og það eru ugglaust fleiri í þeirri baráttu.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 9.9.2019 kl. 18:54

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Gott Sigurður að vita til þess að fleiri þjást

Halldór Jónsson, 9.9.2019 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418196

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband