Leita í fréttum mbl.is

Hræsnara

hef ég aldrei séð fleiri samankomna í einum stað en á Alþingi í gærkveldi.

Þegar ég horfði yfir salinn þá sá ég fólk sem allt sameinast í umhyggjutali fyrir kjörum eldri borgara.En er svo í öllu sínu dagfari nákvæmlega sama um hvernig þessi hópur hefur það. Samþykkir hvaða byrðar á þetta fólk sem er og gerir ekkert til að bæta þessu fólki  eitt eða neitt frekar en þingforsetinn gerði í sinni amtstíð.

Fjárlögin segja að gjöld á þetta fólk skujli skuli lækka með hægri hendi en taka lækkunina jafnharðan til baka  með þeirri vinstri. 

Að það sýni minnstu viðleitni að deila kjörum með með þessu sér svo  hjartkæra fólki sér ekki stað.Hinsvegar er kostnaður þjóðarinnar af starfsemi þessara hræsnara öll með þeim eina hætti að vaxa ár frá ári svo sem fjárlög bera með sér. Ekki hefur kostnaðurinn við þingforsetann lækkað að minnsta kosti.

Það segist vilja berjast gegn hamfarahlýnun með þvi að leggja á kolefnisskatta vegna aukins útblásturs CO2 en þeytist svo um háloftin eins og AlGore í eldspúandi hólkum sem gera þvert öfugt eða brunar á dísilbílum sínum fyrir góðan pening til að hitta kjósendur um allt land.

Og ekki sparar það við sig í neyslu landbúnaðarafurða í mötuneyti Alþingis þegar börnin eiga að fara að borða meira grænmeti og væntanlega gamlingjarnir líka þar sem þeir eiga ekki fyrir kjötmeti.

Páll Vilhjálmsson bloggkóngur skrifar svo í dag:

 

"Sænskur vísindamaður leggur til mannát í baráttunni við hlýrra loftslag. Kolbeinn Proppé segir ragnarök í nánd og öll pólitík verði að taka mið af hamfarahlýnun.

Kolbeinn hlýtur að leggja til að mötuneytið á Austurvelli geri samning við sjúkrahús og vistheimili aldraða.

Hvort má bjóða þér síðubita eða læri af sjálfdauðu, Kolli?

Kannski svið?"

Mikið er gott að vita til þess að einhverjum þyki svona hræsnilaust vænt um mann eins og fjárlögin sanna. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem vakti helst athygli mína við að horfa á þessar umræður var tyggjójórtur þingmanna, þ.á m. ráðherra.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 12.9.2019 kl. 10:32

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ætli Steingrímur J. fái ca. 240þús. á mánuði (eftir skatt) þegar hann hættir á Alþingi eins og flestir landsmenn????

Sigurður I B Guðmundsson, 12.9.2019 kl. 10:41

3 identicon

Satt segirðu, enda tók Inga Sæland þá vel í gegn. Eða fannst þér hún kannske vera hræsnari líka, eins og hún þrumaði yfir þeim blaðalaust(sem maður sér nú ekki þingmenn gera vanalega) einmitt um þessi málefni, og veitti ekki af? Hún lét þá a.m.k. heyra það, svo um munar, og talaði um lítið annað í sínum ræðum, fannst mér. Hinar ræðurnar fannst mér að mestu leyti vera sama þvælan og maður hefur heyrt undanfarin ár.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 12.9.2019 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband