Leita í fréttum mbl.is

Loftslagsváin

fór eins og logi yfir akur 1998 þegar Michael Mann birti línuritið um hokkí-kylfuna.

MANNAÞetta línurit varð tilefni málaferla við Mann og kom í ljós að línuritið var falsað þar sem það sleppti gögnum um hitafar og bjó til kylfuna með fölsunum.

Allt kom fyrir ekki og hin fatlaða Gréta Thunberg hefur síðan hrundið af stað heimsdellu sem byggir á þessum gervivísindum.

 

MANNBÞað sést á seinni myndinni hvernig fölsunin var framkvæmd.Hlýskeiðinu í fornöld var sleppt en þá var loftslag mun hlýrra en það er núna. 

En trúarsöfnuðurinn með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra okkar  innanborðs gefur ekkert fyrir staðreyndir. Það skal vera hamfarahlýnun í gangi og Íslendingar skulu greiða kolefnisskatta bara af því bara og VG bara.

Og aðrir stjórnmálamenn láta toga sig til að fylgja bullinu í forsætisráðherranum af augljósum ástæðum.

https://www.youtube.com/watch?v=8455KEDitpU

Það er loftslagsvá og hamfarahlýnun af því að ég segi það og því skuluð þið borga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Og ekki er hamfarhlýnuni að koma fram á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir sólríkt sumar.

Trausti Jónsson segir:

Sumarhitinn í Reykjavík situr nú í 9. til 11.hlýjasta sæti. Meðalhiti þess það sem af er er 11,0 stig. Ekki er líklegt að sú röðun breytist mikið. Ársmeðalhitinn í Reykjavík er sem stendur í 8. til 9. hlýjasta sæti - það breytist trúlega eitthvað á annan hvorn veginn því þrír mánuðir rúmir eru enn til áramóta. 

Halldór Jónsson, 21.9.2019 kl. 12:45

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Síðast var Greta Thunberg kölluð "unglingurinn" Greta Thunberg. 

Nú er hún kölluð "hin fatlaða Greta Thunberg." 

Maður bíður spenntur eftir því hvað hún verður kölluð næst. 

"Hinn fatlaði unglingur Greta Thunberg" virðist liggja beint við, en kannski finnst eitthvað enn meira niðurlægjandi?

Ómar Ragnarsson, 21.9.2019 kl. 14:13

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Takk fyrir Halldór. 

Benedikt Halldórsson, 21.9.2019 kl. 15:30

4 Smámynd: Sigurður Antonsson

Á vísindavefnum er til nýrri skýringar á orðinu fatlaðir: "Er þar átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun, sjón eða heyrnarskerðingu. Einnig getur fötlun stafað af langvarandi veikindum sem og slysum." Áður náði skýringin nær eingöngu yfir hreyfihömlun. Áunnin hugfötlun gæti náð yfir þá sem ekki viðurkenna ákveðnar staðreyndir eða vísindi. Á oft við um trúarhópa. Ekki verið að tala niðrandi um neinn.

Forseti Brasilíu er hafður sem andstæðingur "fatlaða fólksins", hann brennir skóginn. Aldrei tala hinir sömu váboðendur um að minnka eigin kjötneyslu og borða hnetur, bananna og tómata. Gerast Vegan, grænmetisætur. Hvað þá að planta trjám í sínu heimalandi, sem væri fyrirbyggjandi?

Sigurður Antonsson, 22.9.2019 kl. 00:42

5 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

 Magn af CO2 í andrúmslofti hefur náð áður óþekktri stærð og full ástæða til að taka það alvarlega. Hitastig er að hækka og súrnum sjávar er að aukast. Þetta hefur áhrif á allt lífríki. Það má vera að þetta lafi meðan við lifum, en er nóg? 

Tryggvi L. Skjaldarson, 22.9.2019 kl. 10:21

6 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Halldór,

Hún Greta Thunberg er einnig orðin fræg hjá elítunni (Committee of 300) sjá hérna hverjir hafa verið að styðja hana. KV. Þorsteinn

Image may contain: 2 people, text

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 22.9.2019 kl. 10:37

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Allt rangt dsm þú segir Tryggvi og engin vísindi þar á bak við

Halldór Jónsson, 22.9.2019 kl. 11:29

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Hörður, hann er að bulla. CO2 hefur ekki veriðlægra ´600 milljón ár

Halldór Jónsson, 23.9.2019 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband