Leita í fréttum mbl.is

Hystería

hefur gripið um sig í þjóðfélaginu á hinum ýmsu stöðum.Styrmir Gunnarsson og Arnþrúður Karlsdóttir yfirganga hvert annað í neykslun yfir Samherjamálinu sem hneykslar þau í botn.

Hvað skeði í Namibíu hjá Samherja?

 Samherji greiddi reikning fyrir ráðgjöf og húsaleigu frá ákveðnum aðila.

Uppljóstrarinn og valmennið Jóhannes sem var skýrari en aðrir þegar kom að því að vita hvers þyrfti með til að koma til greina við kvótaúthlutun í Namibíu, ráðlagði Samherja að greiða reikning frá einhverjum Halulippy eða hvað hann heitir. Án þess yrði að  binda skipið og senda áhöfnina í land.Já því miður, var það svo.

 Gat Samherji um eitthvað annað valið? Binda skipið eða borga? Hvað annað? Klagað í RÚV og Helga Seljan? Hefði það skaffað skipinu kvóta?

Það stendur ráðgjöf á reikningnum.  Er þetta ekki ráðgjöf? Eru þetta frekar mútur? Er bannað að múta í útlöndum samkvæmt íslenskum lögum? Ef maður brýtur lög í öðrum löndum eins og að borga reikning sem einhver  segir ósannað að innihaldi ekki það sem standi á honum heldur eitthvað annað óskrifað, hver hefur rétt fyrir sér? Þegar reikningurinn er greiddur eða þegar sannað er síðar fyrir rétti að reikningurinn hafi verið tilhæfulaus.  Var það vitað á greiðsludegi svo hafið sé yfir allan vafa? Getur ekki allt orkað tvímælis þá gert er? Jóhannes fullyrti á greiðsludegi að reikningurinn væri réttur og skyldi greiðast.Samherji fékk kvóta og er löngu búinn að veiða fiskinn.

Á að refsa Samherja fyrst á Íslandi fyrir að greiða vafasaman reikning sem er ekki fyrir ráðgjöf heldur mútur að því að Helgi Seljan upplýsir og síðan í Namibíu fyrir að múta innlelndum embættisdmanni þarlendis? 

Hver er glæpurinn? Að hafa ekki sagt RÚV og Helga Slejan frá grunsemdum um að ekki sé allt með felldu?

Hvaða reikninga má fjárráða maður greiða? Hver verður að heimila honum að greiða rekstrargjöld sín? RÚV? Útvarp Saga? Styrmir Gunnarsson?

Má einhver bjóða embættismanni í mat ef það gæti verið túlkað sem kaup á velvilja? Hverja mega embættismenn umgangast? Hvað með laxveiðiboð Ríkisbankana til stjórnmálamanna? Ef maður skrifar orððið Ráðgjöf á reikning af hverju þýðir það ekki ráðgjöf heldur mútur að dími RÚV?

Er ekki einum of langt gengið hversu fjölmiðlafólkið er orðið hneykslað og fordæmingarfullt?þegar hysterían ríður svona húsum í heilagleika og vandlætingu? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hingað til hafa allar handtökur farið fram í Namibíu, framkvæmdar af namibísku lögreglunni og væntanlega verið farið eftir namibískum lögum. 

Enginn hefur verið handtekinn á Íslandi. 

Ómar Ragnarsson, 30.11.2019 kl. 19:53

2 identicon

Ríkisrekið RUV, sem rekið er að vild starfsfólksins, vegnar afar vel. Hugsanlega væri besta lausnin að gefa fyrirtækið og hætta að styrkja það endalaust?.

Samherji er fyrsta málið?. Hvað með öll önnur samskipti til og frá Landinu OKKAR, sem er á fárra höndum. Eru erlendir auð-jöfrar enn að kaupa UPP landið okkar og sameign ÍSLENDINGA. Hið ágæta BÆNDABLAÐ ræddi málið fyrir 3-4 vikum síðan.

Margir finna fyrir óstjórn ólíkra flokka á ALÞINGI, sem enn stjórna Landinu OKKAR. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 30.11.2019 kl. 20:22

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ágæti Halldór, ef þú hefur ekki tekið eftir því þá er þessi hystería búin að vera viðloðandi síðan í október 2008. það virðist alltaf vera tilefni til að fara í kast og þegar fólk er orðið vant því að vera í hysteríukasti þá leitar það sér að tilefni. Hystería getur orðið að fíkn. Fyrir suma skiptir það meginmáli, fyrir okkur hin þá reynum við bara að komast í gegnum skafl dagsins. Hvert síðasta hneykslismálið var man svo enginn.

Ragnhildur Kolka, 30.11.2019 kl. 20:43

4 identicon

Verðmæti DNB lækkaði um ríflega tvöfalt eigið fé samherja í gær. Yfirkona þvottaeftirlits bankans er horfin. Kannski þarf alþjóðlegar handtökuskipanir til að samdauna Íslendingar átti sig á alvöru málsins?

GB (IP-tala skráð) 30.11.2019 kl. 21:28

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er sama hvert málið er, ef vinstrimenn með RUV í forustu telja að mögulegt sé að skapa óróa, helst að níða æruna af einhverjum þeim sem að gagni hefur komið við að styðja við atvinnulíf og afla þjóðinni tekna, þá eru alltaf til fjármunir hjá RUV til slíkra skít verka og kjánarnir fylgja með, okkur sem þjóð og eigendum Ríkisútvarpsins tll mikilla vansa.

Of margir þingmenn og ráðherrar standa þéttar með þessari stofnun heldur en eigendum hennar. þarmeð hef ég skömm á þessari stofnun og öllum þeim sem láta sér í léttu rúmi liggja hvernig þessi peninga hít þvælist fyrir góðri reglu.

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 30.11.2019 kl. 22:55

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er sama hvert málið er, ef vinstrimenn með RUV í forustu telja að mögulegt sé að skapa óróa, helst að níða æruna af einhverjum þeim sem að gagni hefur komið við að styðja við atvinnulíf og afla þjóðinni tekna, þá eru alltaf til fjármunir hjá RUV til slíkra skít verka og kjánarnir fylgja, okkur sem þjóð og eigendum Ríkisútvarpsins tll mikilla vansa.

Of margir þingmenn og ráðherrar standa þéttar með þessari stofnun heldur en eigendum hennar. þarmeð hef ég skömm á þessari stofnun og öllum þeim sem láta sér í léttu rúmi liggja hvernig þessi peninga hít þvælist fyrir góðri reglu.

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 30.11.2019 kl. 22:56

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er glæpsamlegt að bera fé á embættismenn til að fá úthlutað gæðum í eigu almennings. Flóknara er það nú ekki. En siðferðisvitund Íslendinga er því miður á því stigi að skilningur á þessu er afar takmarkaður.

Þorsteinn Siglaugsson, 30.11.2019 kl. 23:11

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsteinn

þeir bári ekki fé á embættismenn heldur greiddu reikning fyrir ráðgjöf og húsaleigu.Síðan hvenær er þetta mútugreiðsla frekar en að kaupabensín hjá Shell í stað Olís eða N1?

Halldór Jónsson, 1.12.2019 kl. 10:52

9 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held ekki að það sé enn komið í ljós hvort umræddar greiðslur voru mútur. Lögreglan í Namibíu virðist þó komin á þá skoðun. En mútugreiðslur eru oftast matreiddar þannig að við fyrstu sýn líti þær út fyrir að vera eðlilegar, og mjög gjarna matreiddar sem greiðslur fyrir ráðgjöf. Þetta vitum við báðir Halldór.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.12.2019 kl. 10:59

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er ekki fallegt ef íslensk fyrirtæki eru staðin að mútugreiðslum erlendis.  En því má ekki gleyma að þótt þau haldi að sér höndum í því umhverfi þá verður það bara eitthvert annað fyrirtæki sem greiðir múturnar.  Sinn er siðurinn í hverju landi.

Kolbrún Hilmars, 1.12.2019 kl. 15:48

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Við hljótum öll að vona að þarna sé ekkert vafasamt á ferð. Ég hefn hingað til álitið Samherja gott fyrirtæki og vona að ekkert breyti þeirri skoðun.

Sú réttlæting, að ef maður fremur ekki sjálfur glæp muni bara einhver annar fremja hann þykir mér hins vegar lélegasta afsökun í heimi. Bið forláts á því Kolbrún.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.12.2019 kl. 22:56

12 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ekkert að afsaka, Þorsteinn.  Ég var ekki að viðra mína eigin skoðun heldur raunveruleikann.

Kolbrún Hilmars, 2.12.2019 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband