Leita í fréttum mbl.is

Vextir?

fæstir vilja borga þá, fáir viðurkenna réttlæti þeirra, en allir vilja samt eiga þá.

Vilhjálmur Bjarnason er einn örfárra manna sem setið hafa á Alþingi síðan séra Arnljótur Ólafsson var þar, sem hafa skilið fjármál. En um hann var ort:

Mér er um og ó um Ljót

Ætla hann bæði dreng og þrjót

Í honum er gull og grjót

getur unnið mein og bót.

Vilhjálmur skrifar svo í Morgunblaðið í dag sem er holl lesning:

"Það er ávallt efni til að hugleiða hvers vegna fjármálafyrirtæki eru „kerfislega mikilvægar stofnanir“ og hvers vegna einstök fjármálafyrirtæki eru kerfislega mikilvæg. Með fjármálafyrirtækjum er átt við banka, tryggingafélög og lífeyrissjóði. Til hliðar við starfsemi þessara fyrirtækja eru verðbréfasjóðir og greiðslumiðlunar- og færsluhirðingarfyrirtæki. Það er athyglisvert að lesa eftirfarandi í íslensku blaði á nítjándu öld: „Meðan að hús vor eru ábyrgðarlaus vill enginn voga að lána oss mikið fé til bygginga þeirra gegn veði í þeim sjálfum, það verður því ekki að búast við nema smákofabyggingum meðan svona stendur.“ Þetta birtist árið 1879, áður en Landsbanki Íslands var stofnaður. Þá þegar gerðu framsýnir menn á Íslandi sér gein fyrir samspili lánastarfsemi og vátrygginga.

Mikilvæg fyrir hvern?

Nærtækast er að spyrja: fyrir hvern eru þessi fyrirtæki kerfislega mikilvæg? Fyrir eigandann, starfsfólkið eða samfélagið sem þau starfa í? Eða eru þessi fyrirtæki aðeins mikilvæg fyrir ríkissjóð þess samfélags sem þau starfa í? Með því er átt við hvort fjármálafyrirtæki séu fyrst og fremst uppspretta fjár til skattheimtu. Fjármálafyrirtæki eru kerfislega mikilvæg fyrir samfélagið. Annars væru þau ekki kerfislega mikilvæg! Fjármálafyrirtæki eru ekki til fyrir starfsfólk fyrirtækjanna.

Fjármálastarfsemi

Það er alltaf gaman að horfa til þess sem „Svarta bókin“ segir um lánastarfsemi. Ákvæði um lánaviðskipti og vexti er að finna í 5. Mósesbók. Þar segir: „Þú skalt ekki taka vexti af bróður þínum, hvorki vexti af fé, matvælum né neinu sem lánað er. Þú mátt taka vexti af útlendingi en ekki af bróður þínum svo að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur í landinu sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar.“ Í eldri þýðingum er talað um að okra eða taka fjárleigu í stað þess að taka vexti. Gyðingar fundu leið til að taka ígildi vaxta af „bræðrum sínum“ með affallaviðskiptum. Ávöxtur þess er víxill. Víxill ber ekki vexti en í viðskiptum með slíka fjármálagjörninga er reiknað með ákveðinni ávöxtun í afföllum. Íslömsk bankastarfsemi hafnar „vöxtum“ á sama veg og frumkirkjan og Gyðingar. Íslömsk bankastarfsemi byggist á leigugreiðslum með fólgnum vöxtum.

Fjármálastarfsemi nútímans

Fjármálastarfsemi nútímans byggist á fjölmörgum þáttum, allt frá einfaldri greiðslumiðlun til áhættustýringar í flóknum fyrirtækjaviðskiptum. Þar á milli er uppbygging lífeyrissparnaðar fyrir venjulegt fólk. Venjulegt fólk á að geta byggt upp frjálsan lífeyrissparnað án þess að sá sparnaður sé fyrst og fremst andlag til skattlagningar. Meirihluti alþingismanna lítur á fjármálakerfið sem skattþúfu þar sem enginn endir er á uppsprettu. Mestur hluti sparnaðar í flestum löndum er lífeyrissparnaður og í flestum löndum eru sjóðir til styrktar vísindum og mannúðarmálum.

Skattlagning í fjármálakerfi

Skattlagning á fjármálafyrirtæki er af tvennum toga. Annars vegar er það skattur á skuldir banka. Sá skattur er 0,376% af skuldum fjármálafyrirtækja, þó með frískuldamarki. Skatturinn var lagður á í góðmennskukasti þingmanna. Þegar skatturinn var lagður á var aðeins einn þingmaður sem greiddi atkvæði gegn þessari skattlagningu með þeim rökum að fjármálafyrirtæki greiða ekki þennan skatt heldur viðskiptavinir fjármálafyrirtækjanna, og þá sennilega lántakendur hjá fjármálafyrirtækjunum fremur en innistæðueigendur. Skatturinn kemur fram í vaxtamun hjá fjármálafyrirtækjunum. Þannig verða íslensk fjármálafyrirtæki ekki samkeppnishæf við erlend fjármálafyrirtæki þegar stór og velmegandi fyrirtæki þurfa á lánaviðskiptum að halda. Sjávarútvegsfyrirtæki eru í viðskiptum við norska banka. Skipafélög eru í viðskiptum við þýska banka. Og flugfélög eru í viðskiptum við japanska og kínverska banka. Þau viðskipti skila sér í ábata fyrir íslenska neytendur. Íslendingar eru mikið fyrir að gera útlendinga ríka. Skattlagning á eignir eða skuldir er í eðli sínu eins skiptis aðgerð og minnkar skattstofninn í framtíðinni. Hitt formið á skattlagningu fjármálafyrirtækja er 22% fjáreignatekjuskattur af fjáreignatekjum einstaklinga og sjóða. Sú skattlagning getur einnig komið illa við ýmsa. Samkvæmt svari við fyrirspurn um ávöxtun og skattlagningu sjóða í vörslu Háskóla Íslands fer stór hluti af raunávöxtun sjóðanna til greiðslu á fjáreignatekjuskatti. Þannig verða sjóðirnir ekki til styrktar vísindum og mannúð, heldur til styrktar ríkissjóði í eilífum vanda. Til þess voru refirnir ekki skornir! Það er mjög erfitt að ræða við kjörna fulltrúa um mismuninn á raunskattlagningu og nafnskattlagningu. Þannig skiptir hugprúður og dagfarsljúfur formaður Samfylkingarinnar skapi þegar reynt er að tala við hann um skattlagningu á fjármálafyrirtæki og fjáreignir. Það er nú fullreynt.

Fjármálafyrirtæki framtíðar

Fjármálafyrirtæki í nútíð eru miðlarar milli sparenda og lántakenda. Svo hefur verið frá frumtíð gyðingdómsins eins og lánastarfsemi er lýst í Mósesbók. Esikel segir: „Hann heldur hendi sinni frá illum verkum, tekur hvorki vexti né stundar okur, framfylgir reglum mínum og fer að lögum mínum.“ Kalvin er löngu búinn að fallast á vexti en eftir stendur að okur er ávallt í samhengi við nauðung. Fjármálafræði nútímans eru aðeins um 70 ára gömul. Bismarck fann upp lífeyrissjóði. Íslendingar skynjuðu nauðsyn þeirra fyrir 50 árum en það eru aðeins 40 ár frá því menn fóru að skilja raunávöxtun. Fram til þess var fjármálastarfsemi til að flytja eignir frá sparendum til lántakenda. Kalvin reiknaði alltaf með eðlilegu endurgjaldi í formi vaxta.

Snilld og árangur

Snilldin við íslenska lífeyriskerfið er skattlagning lífeyris við útborgun og ávöxtun umfram verðbólgu. Lífeyrisþegar þurfa þjónustu á lífeyrisaldri og eðlilegast að þeir greiði þá fyrir hana með skatti af lífeyrisgreiðslum. Árangursrík miðlun fjármagns á markaði skapar ábata hjá þeim sem njóta miðlunarinnar. Þeir sem njóta eru annars vegar lánveitendur en þeir fá í sinn hlut ávöxtun og dregið er úr áhættu þeirra, og á hinn veginn eru lántakar með því að fá aðgang að fjármagni til ábata og ávinnings í framtíðinni. Ábatinn er ekki fyrir ríkisjóð, nema að því leyti sem um eðlilega skattlagningu á hagnaði er að ræða.

Af hverju kerfislega mikilvæg?

Það er von að spurt sé hvers vegna sum fyrirtæki eru kerfislega mikilvæg. Það er vegna þess að slík fyrirtæki eru nauðsynlegir innviðir í samfélagi sem við búum í. Í ljósi sögunnar sést greinilega hvað hamlaði þjóðfélagsþróun á nítjándu öld. Það var skortur á peningum og lánsfé, og miðlun peninga. Ekki vegna þess að miðlunin sjálf væri skattaandlag, heldur vegna þess að ekki var hægt að ráðast í framkvæmdir í atvinnumálum og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis vegna skorts á miðlun og miðlun áhættu í tryggingafélögum. Það kann að vera að sá texti sem að framan er sagður sé gagnslaus, eins og ljóð. Ljóðið er kastali háttvísinnar."

Það er með reglubundnum hætti að Íslendingar leiða hugann að nauðsyn þess að viðhalda fjármagni.Lengst í góðærum af kæra menn sig kollótta. Öðru hverju er sem menn vakni af dvala og fari að hugleiða að fé og fé þurfi skjól eigi það að þrífast. Þess á milli þrífst það illa eða ekki vegna skorts á atlæti.Ólafslögin vöktu menn upp á sínum tíma. Nú hefur fé verið svelt um langan tíma og vanfóðrað. Öll áherslan er lögð á að fá lán sem ekki þarf að borga til baka.

Grænu skuldabréf forsætisráðherra eru kvistir á sama meiði.Markmiðið er að stela höfuðstól annars fólks undir  félagslegu yfirskini en ekkert annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband