Leita í fréttum mbl.is

Stytting leikskólans

var til að minnka álagið á börnin og svo líka þrautpínt starfsfólkið sem Gunnar Smári Egilsson og Sólveig Anna gera launakröfur fyrir langt út fyrir Lífskjarasamningana.

Þá vita menn það að leikskólavist barna í stað þess að vera heima hjá sér eins og Davíð Oddsson vildi borga mæðrum fyrir að annast, er áþján og auðvitað miklu óhollari en í gamla daga þegar mamma var heima og börnin höfðu engan lykil um hálsinn en fengu kynfræðslunni um hitt kynið, hommana og perrana  fullnægt í jafningjafræðslu á götunni.

dagurogleikskólinn2020

Konráð Guðjónsson hjá Viðskiptaráði er svo ósvífinn að birta línurit sem segir þveröfugt við það sem allt þetta góða fólk Dagur og Sólveig Anna eru að halda fram.

Börnin eru styttra í leikskólanum en áður og álagið á starfsmennina hefur minnkað um tvo þriðju frá því sem áður var.

Allt fer á einn veg hjá meirihlutanum í Reykjavík, sé það Bragginn, Myglan í skólunum, viðhaldið í Breiðholti, leikskólarnir, niðurgreiðsla skulda eða lífið í Miðborginni. Allt virðist koma öðruvísi út en haldið er fram.

Alsniðugast er þó að sagt er að Eyþór Arnalds beri einn ábyrgð á því að Þórdís Lóa studdi Dag B. til Borgarstjóra en  ekki Eyþór. Fjölskylduerjur frá tíð Eyþórs í Árborg eru sagðar valda því að Þórdís Lóa kemur ekki nálægt Eyþóri með tíu feta stöng burtséð frá því hvað henni finnst samt um Dag B.og hans lið.

Líklega er eitthvað til í því að þeim mun betur gengur uppbygging í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sem Dagur B. er lengur Borgarstjóri í Reykjavík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég gleðst enn yfir ást og umhyggju MÖMMU og PABBA, ömmum og öfum - svo fékk maður að fara í sveitina á vorin til Víkur í Mýrdal. Lærði einfaldar bænir og naut þess að vera barn með ömmu og afa. Maður fékk tilsögn í lestri og skrift.

Mundum við sameinast betur börnunum okkar og nútíma vanda-málum með því að greiða "mæðrum góð laun" fyrir að vera heima fyrstu 2-3 árin?. Börnin LÆRA FLJÓTT og VEL og mæta vel undir-búin í barnaskólann?. Ástúð foreldra og ömmu og afa er mikilvæg fyrstu árin.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 22.1.2020 kl. 16:18

2 identicon

Sæll Halldór.
Man ég þá tíð þegar mæður sáu um börnin og fátt fannst mér skemmtilegra en að leika mér útivið með öðrum börnum.
Þegar rætt er um styttingu leikskólaastarfs þá er enn gert ráð fyrir að það séu mæður sem taki við börnunum og sinni þeim.
Ég mundi alveg vilja sjá feður taka við börnunum og sinna þeim eftir leikskóla.
Varðándi launin þá hafa þau aldrei verið góð og gert ráð fyrir hálfgerðu sjálfboðaaliðaastarfi.
Í flestum borgum eru úthverfi og ég lít t.d. á Kópavog, Hanfnarfjörð, Mosfellsbæ sem úthverfi borgarinna eins og víða erlendis.
Kv, Hafþór

Hafþór Baldvinsson (IP-tala skráð) 23.1.2020 kl. 10:41

3 identicon

Sniðugast væri að bera saman sveitarfélögin á raunhæfan hátt.

Garðabær leggur á lægra útsvar en Reykjavík og fær því meira úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ef farið væri að tillögum nemdar um breytingar á jöfnunarsjóðnum á fengi Garðabær um 360 miljónum minna frá sjóðnum og þyrfti að hækka útsvarið í um 14,25%. til að bæta upp tapið.

Leikskólar eru 50% dýrari í Garðabæ en Reykjavík. Garðabær leggur nánast ekkert til félagslegast húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu en Reykjavík stendur undir nánast öllum kostnaðinum.

Seltjarnarnes er miklu verra, fær um 126 miljónum of mikið úr jöfnunarsjóðnum, en er rekið með 264 miljóna tapi. Til að dekka tapið á rekstrinum og minni greiðslum úr jöfnunarsjóði þyrfti að hækka útsvar í um 14,7%

Skýrslan um jöfnunarsjóðinn er frá 2017

Ég held að sjallarnir ættu að byrja á að laga til heima hjá sér í staðin fyrir að henda skít í allar áttir.

Jonas Kr. (IP-tala skráð) 23.1.2020 kl. 12:05

4 identicon

Jonas Kr (IP-tala skráð) 23.1.2020 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband