Leita í fréttum mbl.is

Grunnhugsjónir gleymast gjarnan

í málflutningi forystumanna Sjálfstæðisflokksins nú orðið. Flokkurinn talar orðið mest í prósentum.  Það er talað um ágæti EES, loftslagsmál, skatta-og varnarmál og samanburðarfræði er ofar öllu. 

Svo var samþykktur 3. orkupakkinn  og þingmenn neituðu að ræða við flokksmenn um grunngildi orkuvinnslu landsins. Það var úrskurðað QED að orkumál Íslands skulu vera á evrópskum samkeppnismarkaði.  Vi alene Vider sagði kóngur vor líka eitt sinn.Þeim virðist hinsvegar fyrirmunað að skilja að samband sé á milli fylgistapsins og hrokans sem þingmenn virðast margir  andsetnir af eftir langa stjórnarsetu flokksins.  

Mér hefur fundist það eftir að hafa lagt eyrun við málflutningi varformanns Sjálfstæðisflokksins míns gamla, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur að hún velti stöðu sinni fyrir sér og hvað henni beri að hugleiða um grunnhugsjónir þess flokks sem hún fer nú fyrir.

Ekki hef ég orðið tiltakanlega var við að aðrir þingmenn flokksins eyði miklum tíma í slíkar vangaveltur. Því finnst mér Þórunn Kolbrún slá dálítið annan tón.  Mér er ekki örgrannt um að halda að hún skilji um hvað þessi flokkur var stofnaður utan um. Sem er eitthvað sem venjulegir þingmenn flokksins virðast mér ekki sérlega uppteknir af.

Ég var á fundi hjá hinum úreltu gamlingjum flokksins í Valhöll þar sem Þórdís Kolbrún flutti ræðu. Hún fór yfir venjubundin prósentumál flokksins ágætlega en kvaðst svo vilja ræða nokkur önnur mál líka svona aukalega áður en fyrirspurnir hæfust.

Og þá eiginlega byrjaði ræðan sem ég vildi heyra. Hún fór að tala um hugsýnir sínar og hugrenningar um Sjálfstæðisflokkinn og hvar hann væri staddur og hvar hún væri þá stödd líka hugsjónalega í tilverunni.

Það var þá sem ég sá að Styrmir Gunnarsson var í salnum og hlustaði eins og ég. Styrmir er mér fremri að koma hugsunum sínum í orð svo menn skilji og því tilfæri ég hér hvernig hann lýsir sinum áhrifum í dag:

"Á fundum í Valhöll hefur lítið verið fjallað um stöðu Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum, sem benda til þess, að flokkurinn hafi tapað um helmingi hefðbundins fylgis síns frá hruni og berjist nú við að halda sér í 20% fylgi.

Þess vegna var síðasti hluti ræðu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, varaformanns flokksins á fundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna í Valhöll í hádeginu í gær eins og ferskur andblær. 

Þórdís Kolbrún lauk ræðu sinni með umfjöllun um fylgi flokksins eins og það mælist nú og hefur gert seinni árin, sem eitt og sér vakti athygli vegna þess hversu sjaldgæft það er, að um þann kalda veruleika sé rætt.

Hún benti á, að flokkum hefði fjölgað og fjölmiðlun hefði tekið miklum breytingum en hvoru tveggja taldi hún að einhverju leyti skýra þessa stöðu.

En það sem vakti mesta athygli voru þau orð hennar að Sjálfstæðisflokkurinn yrði að vera tilbúinn til að breyta til.

Hún hafði verið á ferð í Kaliforníu og kynnzt þar þeim miklu breytingum, sem eru að verða í veröld kvikmyndanna vegna tilkomu Netflix. Hin hefðbundnu kvikmyndafyrirtæki ættu ekki annan kost en að mæta þeirri samkeppni með breytingum.

Þá varð henni hugsað til "flokksins okkar" hér heima.

Og ljóst að ráðherrann hafði áttað sig á að það sama gæti átt við um stjórnmálaflokka við breyttar aðstæður.

"Við þurfum að vera manneskjulegri, þegar við tölum", sagði ráðherrann og bætti því við að þannig mundi Sjálfstæðisflokkurinn ná til fleiri kjósenda.

Og sagði svo: "Við getum ekki keyrt áfram" með sama hætti og verið hefur.

Það eru þessi viðhorf sem vekja vonir um breytta tíma í Valhöll."

Þessi orð Styrmis geta vakið einhverjar hugsanir hjá Sjálfstæðismönnum sem hefur farið fækkandi í langan tíma. Ég hef leitað skýringa með sjálfum mér og fundi þær helstar að forystumenn okkar hafi tapað sér í prósentum, samanburðarfræðum og blaðri um dægurmál en hætt að hugsa um forsendur flokksins. Þórdís Kolbrún hefur mér fundist lengi  skera sig úr hópi þeirra sem um þessar mundir lifa á Sjálfstæðisflokknum hvað það varðar að tapa ekki sambandinu við hugsjónagrunninn frá 1929. Gleyma ekki upprunanum og hvernig eigi að tengja hann við nútímann sem auðvitað er orðinn annar á nítíu árum. Gleyma ekki grunnhugsjónunum.

Ég tek því undir með Styrmi að þarna séu þær vonir vaktar að grunnhugsjónir gleymist ekki þrátt fyrir allt og allt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst furðulegt að Þórdís Rekdal Kolbrá Gylfadóttir þurfi að fara alla leið í kratabælið Kaliforníu, og það á kostnað skattborgara, til að detta það í hug sem hún gat lesið sér til hér heima um grunngildi flokksins.

Minnir mig helst á kalifornískt ímyndarkjaftæði, að segja: "vera manneskjulegri þegar við tölum"

Nei, það þarf bara að fylgja grunngildum flokksins

... í verki!  Gjör rétt, þol ei órétt.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.1.2020 kl. 16:21

2 identicon

Hvar eru mennirnir?

Það er að sjá sem menn viti ekki hvort þeir eru að koma eða fara.  Þannig er með tvo sjálfstæðismenn og Valhallar vini og bloggara á Mbl.bloggi þá Halldór Jónsson og Styrmi Gunnarsson.  Báðir þessir bloggar voru ötulir baráttumenn gegn Orkupakka 3. en lutu í lægra haldi eins og 76% þjóðarinnar.  Nú á dögum sátu þessir tveir félagar á fundi í Valhöll og hlustuðu á þann stjórnmálamann sem átti stóran þá í að troða #Op 3 ofan í þjóðina, Eftir fundinn sáu þeir bjarta framtíð fyrir sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa hlustað á þingmanninn.  Búnir að gleyma #Op3 og björt ESB  framtíð virðist brosa við þeim.

Eðvarð L.Árnason (IP-tala skráð) 23.1.2020 kl. 18:41

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Eddi lögga: Var það ekki Birgir Ármannsson og EES liðið í fílabeinsturninum sem handjárnaði þingflokksmenn við O3 og sökkti flokknum frekar en að tala við flokksmenn fyrst þar sem vizkan er þeirra alene. Þeir eru því eftir í litlum og huggulegum flokki. En Þórdís er þó sú sem spáir í af hverju fylgið hafi hrunið úr fyrri hæðum. Það getur verið góð byrjun þó kraðakið af litlu ljótu flokkunum sé til ómældrar bölvunar þó ekki sé nema í ljósi reynslunnar og fyrirmyndarinnar frá Ítalíu. Fjórflokkurinn var alveg nógu leiðinlegur þó að siðblindir Píratar, klofningar og grenjuskjóður bættust ekki við. 

Halldór Jónsson, 23.1.2020 kl. 20:22

4 identicon

GRUNNHUGSANIR FLOKKSINS, SAMEIGINLEG AUÐÆFI, fULLVELDIÐ OG SJÁLFSTÆÐI ÞARF AÐ TRYGGJA MEÐAL 270ÞÚSUND ÍSLENDINGA. VANDAMÁL og ofurinnflutningur fjölþjóða ESBlanda þarf að stöðva til fámenni okkar ÍSLENDINGA.

Við skulum EKKI taka upp vandamál demokrata í USA, sem telja ólöglegan innflutning gegnum Mexico "vera sín atkvæði"í næstu framtíð. Leiðtoginn TRUMP lætur EKKI blekkjast og fer sigurför á heimsvísu.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 23.1.2020 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband