Leita í fréttum mbl.is

Þverrandi Þorvaldur Gylfason

vekur enn athygli mína fyrir einstaklega rætin og hlutdræg hatursskrif sín í garð Republikana og Trump í Bandaríkjunum.

Hann skrifar núna svo:

"

rump Bandaríkjaforseti flutti í gærkvöldi árvissa ræðu forsetans í þinginu. Ræða hans var í venjulegum öfugmælastíl. Hann sagði meðal annars að Bandaríkin njóti nú aftur virðingar („highly respected again“). Forseti fulltrúadeildar þingsins, Nancy Pelosi, kallaði ræðuna ósannindaávarp („manifesto of mistruths“) og reif hana í tætlur í augsýn þingheims og athugulla sjónvarpsvéla.

Stöldrum hér við þetta tiltekna atriði: að Bandaríkin njóti nú aftur virðingar. Sannleikurinn er sá að virðing Bandaríkjanna í augum umheimsins hefur þvert á móti hrapað í forsetatíð Trumps. Eitt helzta skoðanakönnunarfyrirtæki Bandaríkjanna, Pew Research Center, birti fyrir rösku ári niðurstöður könnunar á trausti til Trumps forseta í hópi 25 landa. Þar segjast 70% íbúanna vantreysta Trump. Til samanburðar segjast 62% vantreysta Pútín forseta Rússlands og 56% segjast vantreysta Xi Jinping forseta Kína. Mest er vantraustið í garð Trumps meðal gamalla bandamanna Bandaríkjanna í Evrópu.

Tökum Þýzkaland sem dæmi. Í forsetatíð Baracks Obama 2009-2016 sögðust 71% til 93% Þjóðverja bera traust til forsetans og 50% til 64% sögðust hafa mikið álit á Bandaríkjunum. Eftir að Trump tók við forsetaembættinu 2017 hrapaði traust Þjóðverja á forsetanum niður í 10% og álitið á Bandaríkjunum féll niður í 30%. Þannig er hægt að fara land úr landi (Frakkland, Japan, Kanada, Mexíkó, Spánn o.s.frv.), langflestir vantreysta Trump.

Þó eru þau lönd til þar sem álitið á forsetanum hefur aukizt, t.d. Pólland og Ungverjaland þar sem hálfgildingsfasistastjórnir eru nú við völd. Einu löndin í hópnum þar sem Trump forseti nýtur trausts meiri hluta aðspurðra eru Filippseyjar, Ísrael, Kenía og Nígería."

Athygli vekja vikmörkin sem Þorvaldur notar. Og hann getur auðvitað í engu hvaðan þessar tölur koma.

Finnst einhverjum að þessi Þorvaldur hafi ráð á því að kalla heilu lýðræðisríkin fasistaríki? Er ekki traust á málflutningi ofstækismannsins Þorvaldar Gylfasonar  þverrandi?(En mér finnst alltaf jákvætt við Þorvald að hann skrifar með Zetu!)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Og annað smáatriði er að Trump er forseti Bandaríkjanna en ekki annrarra og nýtur yfirburðafylgis þar í landi fyrir sín góðu verk.

Halldór Jónsson, 12.2.2020 kl. 11:18

2 identicon

LEIÐTOGAR fæðast. LEIÐTOGAR verða EKKI til innan Háskólans og í "mentastofnunum". Mörgum finnst sorglegt að sjá "dóm" góðra manna á ÍSLANDI varðandi President TRUMP í AMERIKU. Að leyfa sér að bera TRUMP saman við getuleysi, atvinnuleysi, utanríkis mál og ólöglegt FLÆÐI fjölþjóða yfir landamæri Mexico til USA VAR  sorglegt, en Demokratar töldu þetta "sín atkvæði" í næstu kosningum?. OBAMA bannaði "Merry Christmas" í USA vegna annara trúarbragða. ALLT hefur President TRUMP leiðrétt. VANDAMÁLIN ERU HORFIN...

Við skulum gleðjast ÍSLENDINGAR með LEIÐTOGANUM, sem fær OFURKOSNINGU í báðum deildum HVÍTA HÚSSINS N.K. november. AMERIKUMENN kalla þetta LANDSLIDE atkvæða af góðum AMERIKÖNUM, svertingjum, mexikönum og HUGSANDI fólki. ÞETTA er LEIÐTOGINN, SEM VAR "kallaður" TIL GÓÐRA VERKA.     

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 12.2.2020 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband