Leita í fréttum mbl.is

Pópúlistinn

Guðmundur Steingrímsson skrifar enn eina furðugreinina í Fréttablaðið þar sem hann kallar alla sem ekki skrifa undir loftslagsskoðun hans pópulista. En hvað er hann sjálfur?

Hann skrifar (og fær væntanlega borgað fyrir hjá Helga Magnússyni):

"Einhvern veginn þykir mér líklegt að í kjölfarið á nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup í síðustu viku hafi þingflokkur Miðflokksins farið á duglegt fyllerí og aldeilis látið gamminn geisa, greint pólitíkina með gífuryrðum í drasl á einhverju öldurhúsi í borginni og gleymt fötunum sínum úti um allan bæ. Ég hugsa að þeir hafi jafnvel sett bindin á hausinn, hneppt frá skyrtunum og sturtað yfir sig nokkrum hálfslítersbjórum í flippi og farið svo í karókí og sungið We are the champions með íslenskum texta á Ölveri. Hver var þessi skoðanakönnun og niðurstaða hennar? Jú, þessi: Um 23% landsmanna telja að loftslagsbreytingar séu ekki af manna völdum. Um 23% landsmanna telja jafnframt að of mikið sé gert úr þætti mannsins þegar kemur að hlýnun jarðar. Umtalsverður hluti þjóðarinnar telur allt þetta loftslagstal verulegar ýkjur. Eins og Miðflokkurinn. Þetta er auðvitað dauðafæri fyrir hann.

Höfuð í sand

Nýjasta umhverfiskönnun Capacent er stórmerkileg. Áður en maður fellur í fullkomið þunglyndi yfir því að 23% þjóðarinnar telji sig virkilega vita betur en allt vísindasamfélag veraldarinnar og telur litla ástæðu til að hafa áhyggjur, þó ekki væri nema smá, af mögulegu hruni lífríkisins, þá verður maður að minna sig líka á aðra stóra drætti sem komu fram í sömu könnun. Íslendingar eru almennt að breyta neyslumynstri sínu og hegðun út af loftslagsmálum. Loftslagsmál eru í öðru sæti á eftir heilbrigðismálum yfir mestu áhyggjuefni þjóðarinnar. Og þótt 23% telji náttúrunni um að kenna og 10% segist ekki vita neitt um þau mál, að þá eru þó tæplega 70% þjóðarinnar með það á hreinu að hlýnun andrúmsloftsins er af manna völdum. Það má hugga sig við þetta, en það breytir þó ekki því að það er samt fullkomlega út í hött — miðað við alla umræðuna og allan þann hafsjó óyggjandi vitnisburða sem streyma yfir mannkyn á degi hverjum — að hlutfall þeirra sem halda að hlýnun jarðar sé ekki af manna völdum skuli vaxa milli kannana. Hér kunna einhverjir sálfræðilegir kraftar að búa að baki. Kannski vex afneitun eftir því sem hættuástand verður alvarlegra? Það er kannski freistandi fyrir suma þegar vá er aðsteðjandi að taka strútinn. Þykjast ekki sjá. Stinga höfði í sand. Afturendinn mun þó samt hlýna.

Að spúa lygi

Áður en lengra er haldið: Popúlisti. Hvaða fyrirbrigði er það? Mikið er talað um popúlistaflokka og uppgang þeirra. Hugtök stjórnmálanna eru oft illskilgreinanleg, en popúlisti í mínum huga er þó ekkert annað en siðlaus tækifærissinni. Svo einfalt er það. Popúlisti er reiðubúinn til þess að láta mikilvæg grundvallaratriði eins og sannleikann, gögn, vísindi og réttlæti lönd og leið. Hann er reiðubúinn til að byggja völd sín á atkvæðum þeirra kjósenda sem láta öðru fremur stjórnast af ótta og fáfræði, jafnvel þótt hann sjálfur viti betur. Sjónvarpsþáttaserían The Loudest Voice — með nýjasta vini Daða og Gagnamagnsins, Dauðafæri fyrir popúlista Russel Crowe, í aðalhlutverki — er fyrirtaksgreining á svona hugsunarhætti. Hún fjallar um hugmyndafræðinginn á bak við Fox News. Á einum tímapunkti gerði hann sér grein fyrir eftirfarandi, sem varð síðan grunnurinn að viðskiptaáætlun andskotans: Flestir fjölmiðlar í Bandaríkjunum eru uppteknir við það að segja satt og rétt frá, gæta heimilda og þess háttar. Við ætlum ekki að gera það. Við ætlum að vera rödd þeirra sem tortryggja sannleikann og eru ginnkeyptir fyrir alls konar samsæriskenningum og uppspuna. Og það sem meira er, við ætlum að vera eina rödd þeirra, því enginn annar er reiðubúinn til þess. Hann sagði þetta ekki nákvæmlega svona, en nokkurn veginn. Og þótt ævi Roger Ailes hafi endað smánarlega fyrir hann — hann uppskar eins og hann sáði — þá sýpur heimsbyggðin enn þá seyðið af siðleysinu. Fox News spúir hroðbjóði yfir mannkyn á degi hverjum og uppsker gríðarlegt áhorf og völd.

Næstu alþingiskosningar

Sanniði til. Að 23% landsmanna séu svona þenkjandi eins og könnun Capacent ber vitni um, er ávísun á stóraukið fylgi popúlistaflokks á Íslandi. Afneitunina má færa sér í nyt. Í næstu alþingiskosningum verða umhverfismál lykilmál. Allir flokkar munu leggja áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum, vegna þess að það mun blasa við að slíkt verður að gera, og það hratt. Allir flokkar, segi ég, nema einn. Einn flokkur mun segja nei hva. Alveg einsog Roger Ailes. Þetta loftslagstal er rugl. Vísindin eru samsæri. Hviss, pang. Tuttugu og eitthvað prósent í höfn. Gott og vel. Fari það fólk á fyllerí. Aðalatriðið er þetta: Þegar þetta gerist þurfa hin sjötíu og eitthvað prósentin virkilega að standa í lappirnar."

Guðmundur þykist tala fyrir allt vísindasamfélag heimsins og að 70 % fólks trúi á manngert veður. Ekkert er auðvitað fjarri sanni. Æ fleiri hugsa raunsætt. Málið er vægast sagt umdeilt og vísindalegar sannanir á öfgunum eru ekki merkilegar.

Kötlugígur í hvíld blæs út jafnmiklu CO2 og allir Íslendingar gera með flugi, áli og bílum. Það eru margir aðrir eldgígar á Íslandi sem hafa ekki verið mældir. Þetta er ekki kosningamál hjá popúlista eins og Guðmundi Steingrímssyni sem alhæfur útfrá sinni  vizku á kostnað Miðflokksins og allra sem hafa aðra skoðun en hann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum bara muna að eina sem Mummi skildi eftir sig á Alþingi var þingsályktunartillaga um að dánarbú Steingríms ætti ekki að þurfa að standa í skilum vegna skuldabréfs sem Steingrímur hafði skrifað upp á fyrir son sinn í USA gagnvart LÍN.

Einu "rökin" voru að það lækkaði greiðslurnar úr dánarbúinu til Guðmundar Steingrímssonar sem honum fannst himinhrópandi ranglæti.

Talandi um eiginhagsmunasegg sem kallar alla aðra bjána sem láta pópulistana plata sig

Grímur (IP-tala skráð) 24.2.2020 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband