Leita í fréttum mbl.is

Ofboðslegt smitnæmi

veirunnar sést af lýsingu Andreu sem sagt er frá í Mogga:

"...

 Mín kenn­ing, sem aðrir mér fróðari hafa tekið und­ir, er morg­un­verðar­hlaðborð á hót­el­inu. Við inn­gang spritt­ar fólk sig og aft­ur á út­leið. Hins veg­ar vor­um við þar, inn­an um aðra ferðamenn og gesti hót­els­ins, notuðum sömu áhöld í hlaðborðinu og skár­um af sama brauðinu. Maður hugsaði ekki út í þetta þá, en eft­ir á að hyggja var þetta ávís­un á út­breiðslu smits ef ein­hver hót­elgest­ur hef­ur verið sýkt­ur.
 
Sama hvað maður þvoði hend­ur, sprittaði og gætti að fjar­lægð, þá voru það þess­ir litlu hlut­ir sem maður kveik­ir ekki endi­lega á en eru svo aug­ljós­ir þegar litið er til baka. Þess­ir litlu sam­eig­in­legu snertiflet­ir. Þess­ir litlu sam­eig­in­legu snertiflet­ir eru allt í kring­um okk­ur. Við erum öll að aðlag­ast nýj­um leik­regl­um og við og aðrir mun­um mis­stíga okk­ur, því get­um við ekki breytt. Við get­um þó valið að læra af reynsl­unni.
 
Smit­hætt­urn­ar leyn­ast víða
 
Við get­um öll lent í óbeinu snert­ismiti. Þau hafa ekk­ert frek­ar með úti­vist­ar­ferð eða skíði að gera eins og marg­ir vilja halda fram. Á sum­um vinnu­stöðum eru enn mötu­neyti þar sem áhöld eru sam­nýtt, þeim fer þó fjölg­andi sem breyta um verklag. Ég hvet alla til þess að end­ur­skoða slíkt fyr­ir­komu­lag.
 
Í mat­vöru­versl­un­um eru fjöl­marg­ir snertiflet­ir óbeinna snert­ismita og full ástæða til að gæta fyllstu varúðar þar. Í lík­ams­rækt­ar­stöðvum, sama hvað lóð og tæki eru sótt­hreinsuð við hverja snert­ingu, er fólk að svitna, pústa, hósta og hnerra og dropa­smit­in ferðast í and­rúms­loft­inu í ein­hvern tíma.
 
All­ir, sem á annað borð fara út á meðal fólks enn þá, eru ber­skjaldaðir fyr­ir smiti. Þegar það kem­ur upp, þá ferðast það hratt. Ég vissi að þessi veira smitaðist hraðar en aðrar veir­ur, en ekki hefði mig órað fyr­ir að í smit­varnameðvituðum hópi gætu 20 af 24 sýkst. Það þarf svo lítið til. Flest­um sem frá­sögn­ina heyra verður brugðið, flest­um þó af því að hún er þörf áminn­ing um hversu ótrú­lega smit­andi óvær­an er. Fólk veit að hún er smit­andi, en því blöskr­ar samt. 20 af 24...."
 
Þetta er ótrúlegt en satt. Maður er hvergi óhultur. Veiran getur verið allstaðar og smitnæmið er ofboðslegt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er akkúrat málið. Það eru örugglega milljónir sem hafa smitast í Kína til dæmis. Og dánartíðnin er því líka langtum, langtum lægri en opinberlega er haldið fram.

Þorsteinn Siglaugsson, 23.3.2020 kl. 16:25

2 Smámynd: Höfundur ókunnur

Talað er um að sannleikurinn skemmi góðar sögur. Er það miður?

Skoðaðu myndina hérna : https://www.visir.is/g/202024363d/-allt-tal-um-snjo-husa-knus-er-tom-thvaela- 

Í fallegu sólsetri urðu 2 m fjarlægðarmörk að 2 cm eða jafnvel að engu. Hvað gera menn ekki fyrir góða mynd?

Ég ætlaði ekki að trúa þessu fyrst - enda var þetta ekki satt.

Við erum með frábært fólk í framvarðarsveitinni okkar og eigum að þakka fyrir það.

Höfundur ókunnur, 23.3.2020 kl. 21:42

3 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það sem þarna er lýst lýsir vel staðbundnu smiti en það segir ekki til um afhverju hún berst svona víða. Mín tilgáta er okkar eigin símar því við snertum þá ansi oft á dag og þrífum þá sjaldan. Það þarf ekki að snerta símann nema með einu smiti en sé síminn notaður á mörugm stöðum þá dreifist það fljótt. Auk þess nota margir síma á salernum og fleiri opinberum stöðum og mjög auðvelt að ná í smit á símann séu snertifletir svona smitandi.

Rúnar Már Bragason, 23.3.2020 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband