Leita í fréttum mbl.is

Á kærleiksheimili Kommanna

eru margar lúkur á lofti til að berja þá niður sem vilja upp rísa yfir þann næsta.

Leiðari Morgunblaðsins,þar sem ritstíllinn er næstum alger ráðgáta, segir svo:

"...Á fundi 13. apríl [2011] var, samkvæmt tillögu Katrínar Jakobsdóttur, ákveðið að fá vinnustaðasálfræðing til að aðstoða hópinn [þingflokk VG] við að bæta andrúmsloftið. En því var „tekið misvel í þingflokknum og óttaðist ég að viðkomandi hafi sjálfur þurft að leita sér aðstoðar eftir að hafa kynnst þingflokki VG,“ sagði Katrín Jakobsdóttir við bókarhöfund í maí 2018 (s. 232).

Og enn hafði formaður VG þessi orð um ástandið: „Þetta líktist einna helst langri spennusenu úr Indiana Jones mynd þar sem einn rúllandi steinninn á eftir öðrum sótti að manni“.

Rifjað er aukinheldur upp brotthvarf þingflokksformannsins Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem var gerð áhrifalaus meðan hún var í fæðingarorlofi: Steingrímur J. sagði henni við komuna úr orlofinu í apríl 2011 að Árni Þór gæti ekki hugsað sér að víkja úr formannsstólnum en hún ætti að segja út á við að hún vildi heldur sinna börnunum betur!

Um þetta segir bókarhöfundur: „Þessi gjörningur [að fella Guðfríði] vakti mikil viðbrögð bæði innan flokks og í samfélaginu og fannst mörgum súrt að kyngja því að flokkur sem kenndi sig við kvenfrelsi skyldi ekki hafa í heiðri anda fæðingarorlofslaganna.“ (S. 231.)

Þess er svo auðvitað við þetta að bæta, að sami Steingrímur J. er nú forseti Alþingis og lýsir brúnaþungur reglulega áhyggjum sínum af kvenfrelsisbaráttunni og jafnréttismálum almennt…“ Það gerir hann örugglega.

Nema hvað?"

Gengur ekki jafnaðarmennskan líka út á það að passa uppá það að allir hafi það jafn skítt og enginn kollurinn verði öðrum hærri?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband