Leita í fréttum mbl.is

Hvað þolir COVID af Celcius-gráðum?

Ég hjó eftir því  hjá Ölmu landlækni að hún sagði nauðsynlegt að þvo margnota andlitsgrímur við 60 ° C.

Hvað með Saunaferðir þar sem hitinn fer hátt?  Hvað með Gufuböðin í Sundlaugunum? Drepa þau COVID? Hversu heitt kaffi getur maður drukkið? 

 

Hvað þolir COVID af Celsius-gráðum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þvottur í korter yfir 56 gráðum drepur megnið af covid, góð sápa drepur einnig og þess vegna er mælt með sprittun og þvotti handa frekar en suðu fyrir aðra en tuskubrúður. Og sauna drepur covid á húð nái húðin þeim hita, en þá fær maður blöðrur og brunasár, venjulegur þvottur með sápu og sprittun er þægilegra og ekki eins skaðlegt heilsu.

Kaffi má vera við suðumark ef þú tekur litla sopa og nærð að kæla þá fljótt með munnvatni. Kaffi sem er nógu heitt og nógu lengi í munni til að drepa covid fer mjög illa með annað í munninum. Betra er að nota grímu og þeir sem eru sótthræddastir geta einnig tannburstað og skolað vel.

Og ekki drekka klór og sápur, ráðleggingar móður þinnar eru enn í fullu gildi. Það sem drepur covid getur einnig drepið þig eða skaðað ef það er ekki rétt notað.

Vagn (IP-tala skráð) 13.8.2020 kl. 19:10

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Eftir því sem mer synist er fita það eina sem drepur þennan vágest. Lysi ætti að vera gott ef við notum það eins og spritt ? Getgáta-- en ef bakterian leysist upp í fitu er lysi algjörlega skothelt.

Erla Magna Alexandersdóttir, 13.8.2020 kl. 20:08

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Vagn skrifar núuna skynsamlega.

Margir hafa trú á lýsi, ég veit ekki hvað Vagn segir um það?

Halldór Jónsson, 13.8.2020 kl. 23:10

4 identicon

Eiturefni í smurolíu drepa sennilega vírusinn en lýsi gerir það ekki. Best er að drekka ekki smurolíu og bera hana ekki á sig. Lýsi veldur vírusnum sennilega ekkert meiri skaða en þér. Vírusinn leysist ekki upp í fitu og hluti af vírusnum er fita. Að sápa eða spritta þá fitu af honum drepur hann. Og feitt fólk smitast jafnt og veikist ekkert minna en grannir.

Vagn (IP-tala skráð) 14.8.2020 kl. 05:22

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Skarplega athugað Vagn.

Hvernig skyldi hydrochloroquine í blóðinu virka á hann?

Eða Pre-Cold úr þorskinum?

Halldór Jónsson, 14.8.2020 kl. 13:32

6 identicon

Hydrochloroquine var talið lofa góðu í upphafi, þegar það hafði verið prófað á einhverjum 25 einstaklingum. En eftir að það var notað á þúsundir sást ekki neinn merkjanlegur munur á þeim sem fengu það og hinum. Hydrochloroquine er ekki hættulaust mönnum en virðist ekki gera covid í mönnum neitt.

Pre-Cold getur mögulega veitt einhverja vernd. Það er samt ekki sannað og hefur ekki verið prófað. Hass, Dökkt súkkulaði, Hvannarót eða Kelloggs cornflakes gæti verið eins gagnlegt en það hefir einnig ekki sannast og ekki verið prófað. En nú er heitast og gróðavænlegast í heilsuvörum, náttúrulækningum og fæðubótarefnum að tengja vöruna við baráttuna gegn covid, krabbi, skalli og stinningarvandamál koma þar á eftir.

Um 200 mismunandi hópar eru sagðir vinna þróun bóluefnis gegn COVID-19. Enn fleiri eru að prófa hin ýmsu efni, lyf og lyfjablöndur. Það mun sennilega fljótt fréttast þegar einhver finnur eitthvað sem virkar. Og það verður ekki frá bloggurum með hæpið grunnskólapróf eða facebook áhrifavaldi sem hefur unnið sér það eitt til frægðar að líta vel út eftir brjóstastækkunina og fitusogið.

Vagn (IP-tala skráð) 14.8.2020 kl. 16:51

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Drepst covid-veiran þar sem heitast er í lofti áður en hún snertir mannlega húð? Opnaði Tv.akkurat þegar veðurfréttum var sjónvarpað í kvöld.þá var hitinn mjög mikill á Íberíuskaga og einnig í austur fylkjum Bandaríkjnna.  

Helga Kristjánsdóttir, 16.8.2020 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418191

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband