Leita í fréttum mbl.is

Sigraði lýðræðið?

eða skrílræðis Semu Erlu og hennar fremur fáu fylgismanna?

Er kominn nýr Hæstiréttur ofar Alþingi sem getur veitt ótakmarkað dvalarleyfi á Íslandi sem kallast endurupptaka?
 
Heitir Kærunefnd útlendingamála?
 
Eftirfarandi viðtal er við dánumanninn Magnús Davið Norðdahl, eiðsvarinn lögmann,  sem aðspurður vissi ekkert um hvar fjölskyldan héldi sig. Hann var hinsvegar fljótur að hringja í fjölskylduna þegar tíðindin um úrskurðinn sem hann segir vera um eilífðar aðsetur á Íslandi, bárust.
 
"Kærunefnd útlendingamála hefur fallist á endurupptökubeiðni egypsku fjölskyldunnar sem fjallað hefur verið um í fréttum síðustu daga. Vísa átti fjölskyldunni úr landi 16. september, en hún hefur verið í felum síðan þá. Þau fá nú dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eftir að kærunefndin féllst á sjónarmið fjölskyldunnar.(Sic!)
 

„Þau geta komið úr felum - þetta mál er unnið. Krakkarnir geta farið aftur í skólann. Þetta eru gríðarlega góð tíðindi og nú heldur lífið áfram hjá þeim,“ segir Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar.

„Þetta er mikill sigur fyrir fjölskylduna og ekki síður mikill sigur fyrir íslenskt samfélag að mínum dómi, og þann samtakamátt sem oft verður til hér. Fjölskyldan kann öllum þeim sem veitti henni stuðning í þessu máli miklar, miklar þakkir,“ segir Magnús.

Telur hann að þrýstingur frá íslensku samfélagi, þar sem brottvísun fjölskyldunnar var harðlega mótmælt, hafi haft áhrif?

„Við búum í lýðræðisríki og það er eðlilegt að þegar almenningur tekur sig saman og sýnir samtakamátt með þessum hætti að það hafi áhrif. Ég tel að sá þrýstingur hafi skipt máli, já,“ segir Magnús.

Hann segir það hafa verið örþrifaráð hjá fjölskyldunni að fara í felur.

„Á þessu hefur maður fullan skilning. Þetta myndu foreldrar í þessari sömu stöðu gera, en ég trúði því að þetta mál myndi blessast og það hefur gerst hér í dag. Við erum ákaflega ánægð með það,“ segir Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar."

Var þetta sigur lýðræðisins? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta æsðsta stjórnsýslustig er þannig skipað:

Nefndin er þannig skipuð:

Aðalmenn

    • Dr. Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður, tilnefndur af dómsmálaráðherra,

    • Anna Tryggvadóttir, varaformaður, tilnefnd af dómsmálaráðherra,

    • Árni Helgason hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af dómsmálaráðherra,

    • Gunnar Páll Baldvinsson, lögfræðingur, tilnefndur af dómsmálaráðherra,

    • Daníel Isebarn Ágústsson, lögfræðingur, tilnefndur af Mannréttindaskrifstofu Íslands, 

    • Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögfræðingur, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands,

    • Bjarnveig Eiríksdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af Mannréttindastofnun Háskóla Íslands.

    Varamenn

      • Ívar Örn Ívarsson lögfræðingur, tilnefndur af dómsmálaráðherra,

      • Ívar Már Ottason, lögfræðingur, tilnefndur af dómsmálaráðherra,

      • Laufey Helga Guðmundsdóttir lögfræðingur, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands, 

      • Katrín Oddsdóttir, doktorsnemi í lýðræðislegri stjórnarskrárgerð, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands,

      • Hilmar Magnússon hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Mannréttindastofnun Háskóla Íslands.

      Kærunefnd útlendingamála er til húsa að Skúlagötu 17, 101 Reykjavík. Símanúmer hennar er 510 0510 og netfang postur@knu.is. Sjá vef nefndarinnar www.knu.is. 

       

      Halldór Jónsson, 24.9.2020 kl. 21:52

      2 identicon

      Í hvað er ÍSLAND að breytast og hverjir réðu ferðinni?

      Hvað um innflutning á "menguðum" slátruðum dýrum víðsvegar frá austur og vestur Evrópu. Er ALLT orðið leyfilegt varðandi FÁMENNI okkar ÍSLENDINGA. Duga engin LANDSLÖG lengur?

      Vandamálin blasa við í EVRÓPU og á NORÐURLÖNDUM, sem ráða EKKERT við sín eigin VANDAMÁL. Eru VANDAMÁL esb sinna, sem við tilheyrum EKKI, líka ráðandi á ÍSLANDI? Þarf að gera þennan hóp "útlægan" frá ALÞINGI og rekstri Reykjavíkurborgar?

      Það vantar ÞJÓÐARLEIÐTOGA, sem berst fyrir heillagt Landið OKKAR og ALLA sameign ÍSLENDINGA.

      Lýðræðið tapaði kæri HALLDÓR!

      GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 25.9.2020 kl. 11:46

      3 Smámynd: Halldór Jónsson

      Er Egyptinn eftirlýstur í heimalandi sínu eða ekki? Börnin eru það örugglega ekki. En hver flýði hingað?

      Vill einhver svara því?

      Halldór Jónsson, 25.9.2020 kl. 12:34

      4 Smámynd: Halldór Jónsson

      Nei, greinilega vill enginn tjá sig um þennan mann sem heldur börnunum fyrir framan sig sem gíslum til að fela sjálfan sig og muslimska bræðaralagið sem hann tilheyrir. Af hverju spyrjum við ekki egypsk yforvöld um hans feril?

      Halldór Jónsson, 26.9.2020 kl. 01:16

      5 identicon

      Erum við bundinn af ESBsinnum í BRUSSEL? Hver er kostnaðurinn af Aðalmönnum og Varamönnum og tilkostnaði við hælisleitendur á ÍSLANDI?  Er komið að "FULL STOP"?  

      DANIR senda liðið úr landi, sem brotið hafa af sér. 

      ÍSLAND er í hamförum vegna Plágunar eins og Alheimur. Atvinnu uppbygging og rekstur fyrirtækja ásamt ferðaiðnaði er í ólestri og uppgjöf.

      RUV herjar á SJÁVARÚTVEGINN og ESB sinnar herja á BÆNDUR með taumlausum innflutningi, sem við getum FRAMLEITT ÓMENGAÐ sjálfir. Tugir þúsunda ÍSLENDINGA vinna með BÆNDUM og sjávarútvegi. Við viljum vera SJÁLFBÆRIR í "ÖLLU".

      GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 26.9.2020 kl. 22:53

      6 identicon

      Nei, þetta var ekki sigur fyrir neitt lýðræði.

      Þetta var hins vegar sigur samkenndar og mennsku, sem er nokkuð sem þú virðist gersneyddur. 

      Jon Thorvaldsson (IP-tala skráð) 27.9.2020 kl. 12:33

      Bæta við athugasemd

      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

      Höfundur

      Halldór Jónsson
      Halldór Jónsson

      verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

      -ekki góður í neinu af þessu-

      Heimsóknir

      Flettingar

      • Í dag (19.4.): 3
      • Sl. sólarhring: 7
      • Sl. viku: 59
      • Frá upphafi: 3418162

      Annað

      • Innlit í dag: 3
      • Innlit sl. viku: 55
      • Gestir í dag: 3
      • IP-tölur í dag: 3

      Uppfært á 3 mín. fresti.
      Skýringar

      Eldri færslur

      Innskráning

      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

      Hafðu samband