Leita í fréttum mbl.is

Rörtöng í gangverkið

fleygði vírusinn í gær. Trump er með hana.

Veiran er þannig að grípa inn í gagnverk heimsmálanna með áhrifamiklum hætti sem hvergi sést fyrir endann á hverju breyti.

Vinni veiran varanlegan skaða á Trump er erfitt sjá framhaldið í stjórnmálum heimsins.Nema að hann hafi hvort sem er verið búinn að tapa 3. nóv. 

En nær sem að kallið kemur kaupir sér enginn frí segir séra Hallgrímur.

Bullustjórnmálin halda áfram á Íslandi. Það sáu menn með umræðunum á Alþingi í gær. Meira fé í Borgarlínu,hælisleitendur, útblástursvarnir og endurheimt votlendis, fjölgun innflytjenda þar til að þjóðinni hefur verið skipt út fyrir múslima og blámenn. Eitt rekur sig á annars horn eins og graðpening hendir vorn og mann bókstaflega verkjar í höfuðið að hlusta á suma ræðumennina. Maður bara huggar sig við að þeir hafa ekki enn komist til áhrifa og þakkar fyrir þá sem virðast með fullu raunhæfu viti. Sem allir eru í ríkisstjórninni en færri utan hennar.

Það er svart útlit nema að heimsbyggðinni takist að ná tökum á drepsóttinni áður en sú næsta ríður yfir. Þarnæsta vandamálið er stjórnlaus offjölgun mannkynsins. Ef ekki tekst að stöðva hana þá hefur mannkynið ekkert séð ennþá af vandamálum.

En til skamms tíma eru forsetakosningar í USA eftir 4 vikur. Rörtöngin sem nú lenti í gagnverkinu mun hafa mikil áhrif á okkar líf hvernig sem þær nú fara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Ný frétt: Trump fluttur á herspítala! Klárlega verða engir kosningafundir fyrst Trump er líklega alvarlega veikur orðinn, spurning um áhrif á endurkjörsmöguleika - Pence tekur strax yfir ef Trump deyr, kosningum yrði ekki frestað!

Skv. frétt ég sá í gærkveldi, er Trump sagður fluttur á herspítala!
Skv. vefsíðu Financial Times, er fréttin 11 mínútna gömul er ég tek eftir henni!
Engar skýringar voru gefnar: Trump is moved to military medical centre in Maryland.

As of this afternoon the president remains fatigued, but in good spirits, -- Dr Conley wrote.

Hmm, en af hverju er hann snarlega fluttur á spítala?
Þetta minnir mig á er Boris Johnson var fyrst fluttur á spítala!
--Slíkt er einfaldlega ekki gert af ástæðulausu.

Trump hlýtur að vera kominn með verulegan hita!
Annars get ég ekki ímyndað mér þetta gert!

Það þíðir ekki hann sé endilega fara að deygja, sé í bráðri hættu.
--En það líklega þíði, veikindin séu - veruleg.

    • Man enn eftir Boris-Johnson, fyrst leitast við að viðhalda jákvæðri mynd, hann væri svo hress - væri að heilsa fólki, en það umtal hætti er hann var fluttur á gjörgæslu.

    Trump er greinilega ekki að taka kófið myldilega - fyrst hann er kominn á spítala.
    Á þessum punkti þó ekki enn unnt að fullyrða hann stefni í að verða eins veikur og Boris!

      • Ef Trump verður alvarlega veikur, sem enn ekki er ljóst hann sé á þessum punkti ég skrifa þetta - þá að sjálfsögðu stækkar pólit. jarðskjálftinn í Bandaríkjunum.

      • Það getur jafnvel verið -- Pence taki við sem staðgengill, strax þessa helgi.

      --------------------Fyrir neðan færslan ég vann fyrr sama dag!

      Trump sagði sjálfur frá þessu með sínum dæmigerða hætti:

      Donald J. Trump@realDonaldTrump

      Tonight,@FLOTUS and I tested positive for COVID-19. We will begin our quarantine and recovery process immediately. We will get through this TOGETHER!

      4:54 am · 2 Oct 2020

      Nokkru á undan, nefndi hann að einn helsti kosninga-ráðgjafi hans, hefði greinst með kófið.

      Donald J. Trump@realDonaldTrump

      Hope Hicks, who has been working so hard without even taking a small break, has just tested positive for Covid 19. Terrible! The First Lady and I are waiting for our test results. In the meantime, we will begin our quarantine process!

      2:44 am · 2 Oct 2020

      Virðast sterkar líkur að kófið hafi borist frá Hope yfir til Trumps og Melaniu.

      Opinberi læknir Hvíta-hússins:

      The President and First Lady are both well at this time, and they plan to remain home at the White House during their convalescence, -- Rest assured I expect the President to continue carrying out his duties without disruption while recovering,

      Engin sérstök ástæða að efa að Trump sé ekki endilega mikið veikur akkúrat núna.
      Hinn bóginn enginn vafi að fyrir mann á hans aldri, er kófið mjög hættulegt.
      --Ekki gleyma því, að Boris Johnson varð alvarlega veikur töluvert yngri maður.

      Hope Hicks var í starfslyði Trumps - er kappræðan við Joe Biden fór fram.
      Fyrir utan Trump og Melaniu, er augljós hætta á að - fröken Hicks geti hafa borið kófið í fleiri af nánustu samstarfsmönnum Trumps!
      --Spurning því, hvort það berast frekari fréttir nk. daga, af útbreiðslu kófsins innan Hvíta-hússins; en veruleg útbreiðsla þess þar - gæti truflað verulega stjórnun landsins.

      Trump kom með sína eigin skýringu hvaðan kófið barst til þeirra:

      It is very, very hard when you are with people from the military or from law enforcement and they come over to you and they want to hug you and they want to kiss you . . . You get close and things happen,...

      Ég sel þá skýringu ekki dýrar!

      Presidential debate: President Trump, Joe Biden to speak on COVID-19,  economy - Deseret News

      Biden er 77 ára - Trump er 74 ára! Kófið er hættulegt aldurshópnum yfir 65.

      Aðspurður á fundinum með Biden, hvort hættulegt væri fyrir Trump að halda fjölmenna kosningafundi -- svaraði Trump um daginn eftirfarandi:

      We’ve had no negative effect, and we’ve had, 35 to 40,000 people at some of these rallies,
      --Síðan gerði hann grín að Biden, fyrir þær litlu samkundur sem hann héldi.
      Túlkaði það þannig, að enginn nennti að mæta þegar Biden væri að tala!

        • En nú verður maður að velta því upp - hvort hann var að taka of mikla áhættu!
          En það virðist langsamlega líklegast, að í kringum undirbúning kosninga-funda, er aðstoðarmenn hans fara náttúrulega fyrir Trump - taka þannig stærri áhættu.
          Að Hope Hicks hafi líklega lent í því óláni, að einhver þeirra hún þurfti að vinna með afar nýlega í tengslum við undirbúning kosninga-funds; hafi borið kófið til hennar.
          --Síðan auðvitað, ber hún smitið yfir til Trumps og Melaníu.

        • En Trump er kringum 7% að meðaltali undir Biden skv. meðaltali kannana.
          Það sé því afar mikill þrýstingur á hann, að fara út til að hitta kjósendur.
          Við núverandi aðstæður - sé líklega engin leið til að útiloka að það sé áhætta.
          --Að halda fjölmenna kosninga-fundi, hafi verið -gambl- sem Trump hafi nú tapað.

        Á þessum punkti er auðvitað afar lítið hægt að segja!

          • Ef Trump verður alvarlega veikur - er þátttöku hans í kosningabaráttunni lokið.
            Ekkert algerlega víst að hann verði alvarlega veikur.

          • Trump er klárlega innan áhættu-aldurs-markanna.

          • Síðan er auðvitað möguleikinn að Pence verði snarlega að taka við.
            Hann tekur við sem staðgengill, ef Trump verður of veikur til að gegna embættinu.

            • En ef Trump deyr, tekur hann formlega yfir, Pence ætti þá rétt á 2-kjörtímabilum.
              En þar um gildir, að ef varaforseti tekur við - innan við hálfu ári fyrir lok kjörtímabils -- einungis 32 dagar til kosninga, kjörtímabilinu lýkur við lok febrúar 2021.

            • Líklega verða engar frekari kappræður - forseta-efna.
              En ef Trump yrði alvarlega veikur, þá tekur þetta sjúkdómsferli það langan tíma.
              Að við erum líklega að tala um vikur - áður en ljóst verður hversu alvarlegt þetta verður, síðan hvort hann hefur það af.

            Líklega vitum við svarið þó fyrir kjördag! Enginn möguleiki þó að breyta kjör-seðlum!
            Þó ég sé afar langt frá að vera stuðningsmaður Trumps - óska ég honum góðs bata!

            Ef Pence yrði veikur einnig og gæti ekki tekið strax yfir sem forseti!
            Skilst mér að Nancy Pelosi -- mundi vera næst á eftir í goggunar-röðinni!
            Það væri virkilega áhugavert - twist - ef fröken Pelosi yrði forseti Bandaríkjanna í einhverjar vikur!
            --Hún hefði öll völd forseta!

             

            Niðurstaða

            Fréttir af veikindum Trumps og Melaínu eru það nýjar að fréttir eru afar óljósar. Svo nýbúin að greinast, sé engan veginn ljóst enn - með hvaða hætti sjúkdómurinn muni hegða sér. Trump sé hinn bóginn innan áhættu-aldurs, og gæti því veikst alvarlega. Er þíddi Pence yrði að taka við til bráðabirgða - ef Trump hefði það ekki af, mundi Pence snarlega vera látinn sverja embættiseið; og mundi þá klára það litla er eftir væri af kosningabaráttunni.
            Ef Pence einnig yrði veikur með þeim hætti, hann gæti ekki stjórnað -- hef ég heyrt að næst á eftir honum í goggunar-röð sé engin önnur en, Nanci Pelosi.

              • Ef það gerðist, mundi það einhvern veginn fullkomna þann skrítna farsa sem forsetatíð Trumps hefur verið.

              Halldór Jónsson, 3.10.2020 kl. 10:17

              2 Smámynd: Halldór Jónsson

              Þetta er innkot frá Einari Birni

              Halldór Jónsson, 3.10.2020 kl. 10:17

              Bæta við athugasemd

              Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

              Höfundur

              Halldór Jónsson
              Halldór Jónsson

              verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

              -ekki góður í neinu af þessu-

              Heimsóknir

              Flettingar

              • Í dag (18.4.): 0
              • Sl. sólarhring: 8
              • Sl. viku: 57
              • Frá upphafi: 0

              Annað

              • Innlit í dag: 0
              • Innlit sl. viku: 51
              • Gestir í dag: 0
              • IP-tölur í dag: 0

              Uppfært á 3 mín. fresti.
              Skýringar

              Eldri færslur

              Innskráning

              Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

              Hafðu samband