Leita í fréttum mbl.is

Stjórnarskrábulliđ enn

Björn Bjarnason gefur glöggt yfirlit yfir stöđu stjórnarskrárbullsins sem fjörtíuţúsund fífl og veggjakrotarar  halda ađ sé hćgt ađ keyra í gegn einn tveir og bíngó.

Ţau virđast ekki vita hvađa leiđ stjórnarskrárfumvarp ţurfi ađ fara. Ef til vill halda ţeir ađ undirskrift ţeirra á plagg Katrínar Oddsdóttur sé nóg til ţess ađ tillaga svonefnds stjórnlagaráđs sem búiđ er ađ dćma ónothćft af Feneyjanefnd og Hćstarétti sé nćgileg til ţess ađ sú ritsmíđ taki gildi sem ný stjórnarskrá lýđveldisins Íslands.

Ţvílík fífl segi ég nú bara.

Björn skrifar:

"Katrín Jakobsdóttir forsćtisráđherra hefur á kjörtímabilinu beitt sér fyrir samstarfi formanna allra flokka um áfangaskiptar breytingar á stjórnarskránni. Ţetta samstarf formannanna er nú í uppnámi.

Í dag (20. október) verđa undirskriftir um nýja stjórnarskrá afhentar forsćtisráđherra.

Ţennan dag fyrir átta árum var lögđ fyrir ţjóđina spurning um hvort leggja ćtti tillögur stjórnarlagaráđs til grundvallar frumvarpi ađ nýrri stjórnarskrá.

Ţađ gerđi alţingi međ frumvarpi sem sent var Feneyjanefndinni, sérfrćđinganefnd Evrópuráđsins um stjórnarskrármál. Nefndin dćmdi frumvarpiđ úr leik 11. febrúar 2013 og síđan hafnađi alţingi frumvarpinu.

Fanar

Í međförum fréttastofu ríkisútvarpsins hefur inntak atkvćđagreiđslunnar 20. október 2012 breyst. Ţetta sagđi til dćmis í hádegisfréttum 19. október:

„Međ nýju stjórnarskránni er átt viđ frumvarp stjórnlagaráđs til stjórnskipunarlaga sem samţykkt var í ţjóđaratkvćđagreiđslu fyrir átta árum upp á dag á morgun.“ Í Kastljósi ađ kvöldi 19. október sagđi stjórnandi „ţetta [frumvarpiđ] var samţykkt í ţjóđaratkvćđagreiđslu“ og spurđi hvort ţingiđ ţyrfti ţví ekki ađ fara ađ ţví.

Ađ fréttastofan fari hvađ eftir annađ rangt međ eđli atkvćđagreiđslunnar fyrir átta árum er sjálfstćtt rannsóknarefni. Ţátttakan í atkvćđagreiđslunni var drćm, og niđurstađan var ađeins ráđgefandi fyrir alţingi en ekki bindandi. Alţingi hefur ţegar fullnćgt ţví sem um var beđiđ af ţeim sem greiddu atkvćđi 20. október 2012

Katrín Jakobsdóttir forsćtisráđherra hefur á kjörtímabilinu beitt sér fyrir samstarfi formanna allra flokka um áfangaskiptar breytingar á stjórnarskránni. Ţetta samstarf formannanna er nú í uppnámi.

Föstudaginn 16. október lögđu ţingmenn Pírata og Samfylkingar auk tveggja ţingmanna utan flokka fram ţingfrumvarp međ tillögum stjórnlagaráđs. Ţar birtist tillaga um breytingar á stjórnarskránni frá formönnum tveggja flokka.

Í dag skrifar Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir, formađur Viđreisnar, grein í Fréttablađiđ ţar sem hún segir sig frá frekara samstarfi um breytingar á stjórnarskránni. Hún vill ţó ekki kannast viđ eigin ábyrgđ heldur kastar henni á herđar Katrínar Jakobsdóttur forsćtisráđherra eins og ţessi orđ sýna:

„Ég er sammála Katrínu Jakobsdóttur ţegar hún segir ađ Alţingi skuldi ţjóđinni löngu tímabćrar breytingar á stjórnarskrá. En hún er verkstjóri ţingmeirihlutans. Ţađ er á hennar ábyrgđ ađ leggja fram tillögur í samrćmi en ekki ósamrćmi viđ traustar vísbendingar um meirihlutavilja ţjóđarinnar.“

Ţetta er ódýr leiđ frá vandasömu verki, Ţorgerđur Katrín er ţingmađur eins og Katrín Jakobsdóttir. Forsćtisráđherra eđa ţingmeirihlutinn ber enga lögbundna skyldu í ţessu efni.

Píratar, Samfylking og Viđreisn nota tímamótin núna til ađ slíta samstarfi flokka um stjórnarskrárbreytingar. Forsendurnar fyrir verklagi forsćtisráđherra eru ţar međ brostnar. Stjórnarskrárklukkan hefur veriđ fćrđ átta ár til baka"

Í gildi er stjórnarskrá lýđeldisins Íslands frá 1944. Ţar eru ákvćđi um ţađ hvernig megi breyta henni.Til ţess ţarf breytingin ađ fara í gegn um 2 ţing međ kosningum á milli og samţykki 2/3 ţingmanna ţarf í báđum tilvikum til ţess ađ ţjóđin fái ţessa nýju stjórnarskrá. Veggjakrot og djöfulgangur á RÚV breyta ţar engu um. 

Ţau halda kannski ađ ţađ ríki almenn ánćgja međ mođsuđuna sem fyrir liggur sem var samin af vinstrisinnum 2012. Ég hef lesiđ hana og er sammála Feneyjanefndinni ađ ţetta sé ónýtt plagg og ekki standast lágmarkskröfur sem gerđar eru til Gagnfrćđaskólastíla hvađ orđalag og hugsun varđar. Ţví kemur svona delluplagg ekki til greina ađ nota sem stjórnarskrá frekar en flest annađ sem frá Ţorvaldi Gylfasyni og Pétri Gunnlaugssyni á síbyljuútvarpinu Sögu kemur á hinu pólitíska sviđi.Ég hygg ađ ţjóđin vćri fljót ađ kveđa upp slíkan dóm ef hún vćri spurđ.

Ég kem ekki auga á nauđsyn ţess ađ ógilda núverandi stjórnarskrá og taka upp ţetta endemis plagg ţeirra Ţorvaldar.Mér finnst margt annađ vera mun meira ađkallandi heldur en ţetta.

Ég minni á ađ yfir áttatíuţúsund manns skrifuđu undir áskorun á Borgarstjórn Reykjavíkur  um ađ láta Reykjavíkurflugvöll í friđi.

Dagur B. Eggertsson og hans vinstra fólk gaf nákvćmlega ekkert fyrir ţessar undirskriftir og heldur ótrauđur áfram eyđileggingarstarfi sínu  á Reykjavíkurflugvelli og öllu sem honum tengdist. 

Halda menn ađ  eitthvađ meira mark sé tekiđ á ţessum helmingi minni lista Katrínar Oddsdóttur?

Skiljanlega fer  ţađ í taugarnar á fólki ađ kvótaeigendur geti fengiđ ađ greiđa tíkall fyrir helming kótans en leigja restina út fyrir tvöhundruđkall! En breytir einhver stjórnarskrá ţessari stađreynd? Er ţetta ekki einfalt mál fyrir Alţingi?

Hćttum ţessu stjórnarskrárbulli og snúum okkur ađ meira ađkallandi hlutum. 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418163

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband