Leita í fréttum mbl.is

Guđmundur Árnason frá Viđborđi

Gudmundur Árnason frá Viđborđismíđađi bústađ í portinu bak viđ verslun Ben.S.Ţór.á Laugavegi 7 einhvern tímann í stríđinu.Í portinu seldi Landgrćđslu seldi Landgrćđslusjóđur lengi jólatré og fékk ég stundum vinnu í nokkra daga viđ ţađ.

En ţessi Guđmundur Árnason smíđađi hús ţarna og notađi eitthvađ af rekaviđ frá Viđborđi í Hornafirđi, ţađan sem hann rakti ćttir. VB var höggiđ í einn ţakásinn.Hann bjó sjálfur einhvern tíma í  húsinu sem var klćtt ađ utan međ töfra-og tískuefninu Asbest sem gat ekki brunniđ ađ sagt var. Húsiđ brann samt ágćtlega einhverjum fjörtíu árum seinna 1978 og hafđi ţá vel dugađ.

En fađir minn keypti ţađ sem sagt af Guđmundi og var ţađ flutt austur í Haukadal innan viđ Geysi ţar sem fjölskyldan á sínar ljúfustu minningar í sambýli viđ Hákonar-bústađ og Sveins-bústađ sem stóđu ţar líka.En Hákon föđurbróđir fékk  leyfi fyrir tveimur bústöđum ţarna í stríđsbyrjun í stríđsbyrjun.Ţar voru hverir og hitaveita lögđ í húsin, reist gufubađ og sundlaugar grafnar framrćsluskurđ fyrir Svein  B. Valfells sprengdi Árni Odssson verkstjóri í Steypustöđinni međ dýnamiti og ţótti ţađ makalaust .

Í Hákonar bústađ átti gefandi Haukadals til Skógrćktar Ríkisins ađ búa ţegar hann kćmi til Íslands í heimsókn.En Kristian Kirk  vann viđ gerđ Reykjavíkurhafnar og í Haukadal stendur súlnabergsdrangur međ koparplötu sem á stendur ađ mig minnir:

" Á 26.ríkisstjórnarár lX

Kristjáns konungs 

keypti danskur Íslandsvinur

direktör cand polyt

Kristian Kirk   

hiđ forna höfuđból

Haukadal

Girti

grćddi

hefti 

sandfok

endurbyggđi kirkju

og gaf Skógrćkt Ríkisins jörđina

 

En Kristian taugabilađist ţegar Ţjóđverjar hernámu Danmörku og framdi sjálfsmorđ og kom aldrei í Haukadal. Í ţeim bústađ bjuggum viđ oft vinnumenn í Skógrćktinni á ţeim árum.

Um nokkurra ára skeiđ fóru útskrifađir kennaraskólanemar međ skólastjórnaum Brodda Jóhannessyni austur í Haukdal og á Ţingvöll ađ planta i sjálfbođavinnu. Ungt fólk sem ég kannađist viđ allt lífiđ ţegar ţađ komst til áhrifa.Ţađ var oft kátt á kvöldin og söng og spilađi fallega og stelpurnar voru berbrjósta í gróđursetningunnni í fjallshlíđinni.

Viđ strákar frá Einari Sćm máluđum kirkjuna seinna grćna međ rauđu ţaki. En hún var hvít áđur međ rauđu ţaki.

Hákon var sagđur ekki viss um hvernig sveitamennirnir tćkju litarvalinu svo hann sagđi viđ ţá fyrstu sem komu eittghvađ svona: " Hann Bróđursonur minn valdi ţennan lit, ég held ađ hann geti veriđ eitthvađ litblindur strákurinn. Ţessir fyrstu menn sögđu: Nú hún er bara falleg svona.

Viđ ţá nćstu sagđi Hákon víst: "Finnst ykkur ekki bara góđur liturinn hjá mér?"  Og grćn er hún enn í dag.  

En Guđmundur ţessi Árnason frá Viđborđi var mikill ćvintýramađur,f.1892, sjálfbođaliđi í stóra stríđinu 1914-1918, hafđi veriđ í Bandaríska flughernum og var međ sjálfum Jimmy Doolittle,f.1896, á flugskóla, ţekkti Lindberg og fleira stórmenni.

Hann bjó hjá okkur á Hringbraut 65 um tíma í kjallaranum, var í einhverjum vandrćđum, líklega vegna drykkju, sem ég ekki skildi sem barn. Kannski veriđ túrakall. "Meiri lćtin eru ţetta alltaf niđur á  Balkan man ég ađ hann sagđi viđ matborđiđ útaf einhverju í útvarpinu".Ţađ hefur veriđ eftir seinna stríđíđ líklega úr ţví ađ ég man ţađ.

Talađi útlensku ţegar hann var í ţví minnir mig pabbi segja. My name is;: svo komu nöfn á mörgum tungumálum, m.a.Thor Hamlet.

En  ég man ađ mér ţótti mađurinn höfđinglegur í hátt og framkomu. Eitthvađ "Military Air" leynir sér yfirleitt ekki.Og smiđur vara hann góđur.Hann smíđađi annađ hús á sama stađ eftir pabba hús sem ég man ađ var klćtt svörtum pappa.Ekki man ég hvert ţađ fór. 

Svo hvarf ţetta allt úr minningunni og Guđmundur ţessi líka ţangađ til ađ ég datt ofan á hann í kvöld.

En ég gúgglađi gćjann upp úr  ţurru og ţá kom ţessi síđa úr Tímanum  frá 13. júlí 1961 og ţá var kallinn sprelllifandi. Pabbi sagđi einhvern tímann ađ ţessi Guđmundur hefđi marga fjöruna sopiđ. Búiđ á Waldorf Astoria sem rithöfundurinn Thor Hamlet, setiđ í fangelsi á Kúbu, veriđ í S-Ameríku í byltingum   og fleira og fleira sem ég man ekki. Og víst of seint ađ spyrja Pabba eđa Guđmund.

Í viđtalinu kemur fram ađ Guđmundur hafđi háar hugmyndir um framleiđslu úr biksteini á Viđborđi, sá fyrir möguleika á rafmagnssölu til Bretlands frá virkjun fyrir austan og fleiri framfaramálum. Fannst leitt ađ vera orđinn of gamall til ađ framkvćma ţetta. En hann sótti um styrk til Alţingis fyrir stríđ til ađ gera ţakskífur úr biksteini.

 

Pabbi hans Guđmundar hefđi veriđ í flottum  Offísérabúningum amerískum af stráknum í réttunum, jafnvel Class A uniforms, fannst synd ađ nota ekki svona gott tau.

En ég veit ekkert meira um ţennan furđulega mann.

Veit einhver lesandi meira um ţennan heimsborgara og landshornasirkil, Guđmund Árnason frá Viđborđi sem sjálfsagt sagđi ekki allt sem hann vissi? 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418139

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband