Leita í fréttum mbl.is

Hver orti?

"Hin gömlu kynni gleymast ei

 er glóir vín á skál.."

Var ţađ Árni Pálsson eđa Ágúst H. Bjarnason?

En textinn birtist víst fyrt í Iđunni sem Ágúst gaf út en ţađ var eitthvađ á reiki međ höfundinn ađ ţýđingunni á textanum hans  Roberts Burns.

Hver veit best hver orti ţýđinguna? 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Árni Pálsson, snarađi a íslensku, er sagt ef ţu spyrđ google 

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 31.12.2020 kl. 00:00

2 identicon

Sćll Halldór!

Ég sé ađ hugurinn
ber ţig hálfa leiđ ađ ţessu sinni, -
og er ţađ vel!

Vonandi tekur ţú mark á Árnastofnun:

Hin gömlu kynni

Fyrsta ljóđlína:Hin gömlu kynni gleymast ei

Höfundur:Robert Burns

Viđm.ártal:≈ 1925

1.

Hin gömlu kynni gleymast ei
enn glóir vín á skál.
Hin gömlu kynni gleymast ei
né gömul tryggđarmál.
Ó, góđa, góđa, gamla tíđ
međ gull í mund.
Nú fyllum báđir bikarinn
og blessum liđna stund.

2.

Viđ leiddumst fyrr um laut og hól,
er lóan söng í mó.
En draumar svifu, söngur hvarf
úr Silfrastađar skóg.

3.

Viđ óđum saman straum og streng
og stóđumst bylgjufall.
En seinna hafrót mćđu og meins
á millum okkar svall.

4.

Ţótt sortnađ hafi sól og lund,
ég syng und laufgum hlyn
og rétti mund um hafiđ hálft
og heilsa gömlum vin.

Áriđ 1936 bćtti hann einu  erindi  viđ kvćđiđ um sjálfan sig, einskonar svanasöng,löngu fyrir andlátiđ, en ţó kannske hinu síđasta,sem hann orti:

Seiđir moldin svört og köld.
— Sigrinum allir hrósa.
— Bak viđ hennar hlífiskjöld.
hníga
ég öld af öld. —
— Í moldinni glitrar gulliđ rauđa og ljósa.

  Gleđilegt ár!

 

Húsari. (IP-tala skráđ) 31.12.2020 kl. 00:17

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Allt í einu mundi ég eftir vasasöngbók sem ég á og er prentuđ 1942 í Félagsprentsmiđjunni (gengt gamlabíói)texta höfundur er prentađur vinstra megin og ţar gefur ađ líta Burns-Á.P. og hćgra megin brezkt lag.-Utgefandi ritar formála og getur ţess ađ mikil eftirspurn sé eftir henni og ţessi se fjórđa prentunin.En ég veit ekki hversu margar eru i hverri ţeirra.

Helga Kristjánsdóttir, 31.12.2020 kl. 01:58

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Árni Pálsson var mikill snillingur og ţessi ţýđing er algert  meistaraverk. Heill sé honum.

Halldór Jónsson, 31.12.2020 kl. 04:32

5 identicon

Sćll Halldór.

Hafa skal ţađ sem sannara reynist!

Prófessor Árni orti kvćđiđ Sigling.

Fer ekki á milli mála ađ ţar á sú viđbót heima
sem ég áđur fćrđi upp á Hin gömlu kynni gleymast ei;
bragfrćđin óbrigđul um ţađ ţó ekki vćri annađ nefnt
og ólýsanleg forheimskun er ţađ mönnum ađ
lenda í slíkum hafvillum!!

Svo vill ţó til ađ Sigling er ort 1906
ađ undanskildu ţví erindi sem lenti í
óvćntri skógarferđ á degi ţessum en
ţađ er ort 1936.

Um ţetta atriđi er Steingrímur J. Ţorsteinsson
einna ólygnastur!

          Sigling.

Sólin skein á seglin ţönd.
– Sigrinum fáir hrósa. –
Dró ég knörr af dimmri strönd,
í draumi sá ég undralönd.
Í djúpinu glitrar gulliđ rauđa og ljósa.

Suđar aldan sölt og köld.
– Sigrinum fáir hrósa. –
Sá ég bjartan sólarskjöld
síga bak viđ ţokutjöld.
Í djúpinu glitrar gulliđ rauđa og ljósa.

Sigli ég áfram, sigli ég enn.
– Sigrinum fáir hrósa. –
Til eru höppin tvenn og ţrenn,
taka mun ég lending senn.
Í djúpinu glitrar gulliđ rauđa og ljósa.

Seiđir moldin svört og köld.
– Sigrinum allir hrósa. –
Bak viđ hennar hlífiskjöld
hníga sá ég öld af öld.
Í moldinni glitrar gulliđ rauđa og ljósa.

Húsari. (IP-tala skráđ) 31.12.2020 kl. 15:29

6 Smámynd: Ţorsteinn Siglaugsson

Ţađ var Árni Pálsson sem ţýddi. Annars er skemmtileg saga af honum ţegar hann sat á bekk í Köben og Svíi kom og settist hjá honum. Svíinnn spurđi: "Er ni en svenskare?" og Árni svarađi ađ bragđi: "Nej, jeg er et menneske".

Ţorsteinn Siglaugsson, 1.1.2021 kl. 23:31

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband