Leita í fréttum mbl.is

Hannes Hólmsteinn .Gissurarson

er orðinn fastur dálkahöfundur í virtu riti Íhaldsmanna í Evrópu, The Conservative.

Mér finnst þetta mikill heiður fyrir Ísland og dr. Hannes sjálfan. Það er mikil frjósemi andans að geta framleitt svona mikið af lærðum texta.

Ég fór á síðuna og rakst þar á grein hans um Edmund Burke MP(f.1729) sem Hannes lítur á sem einskonar andlegan föður  íhaldsstefnunnar.

Þar tilfærir hann orð Burke sjálfs sem segir:

"There ought to be a system of manners in every nation which a well-formed mind would be disposed to relish.

To make us love our country, our country ought to be lovely."

Eiga þessi orð Burke ekki erindi til okkar Íslendinga sem eru með tvo stjórnmálaflokka andsetna af því að við getum ekki haldið úti sjálfstæðu Íslandi heldur þurfum að framselja sjálfstæði og fullveldi okkar dásamlegs lands til Evrópska tollabandalagsins? 

Ég óska okkur og dr.Hannesi Hómsteini til hamingju með þennan heiður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvort er það íslensku krónunni eða okkur sjálfum að kenna?

Ég held að það sé ekki við Dani að sakast.

Halldór Jónsson, 17.1.2021 kl. 14:28

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er hann Hannes ekki yfirlýstur stuðningsmaður

samkynhneigðra/gaypride-göngufólks?

Telur þú þig vera í sama liði og hann?

=Í gaypride-liðinu? Y/N?

Jón Þórhallsson, 17.1.2021 kl. 15:14

3 identicon

Hannes Hólmsteinn bar af öðrum viðmælendum í sjónvarpinu hér áður fyrr og í dag skrifar hann fyrir The Conservative. Flottur karlinn, sem fylgir ÍSLANDI í einu og öllu.

Ég hef ekkert álit á Alþjóða draumum um "ekki neitt", sem kosta fámenni okkar miljarða í kostnað. Við eigum fullkomið ómengað land og fiskimið, sem gerir okkur eftirsótt frá öllum heimshornum. 

Hannes Hólmsteinn og Einar Kárason gætu selt afurðir okkar og ómengaða framleiðslu með viðtölum á FOX og BBC ásamt ofurmyndum frá fjöru til fjalla varðandi Orkuna,heita vatnið, Bændur, Gróðurhús og allan Sjávarútveg. Þessa kynningu og viðtöl er hægt að veita frá ÍSLANDI með ofurárangri. 

Föðurlandssinnar verða að stýra landinu okkar til áframhaldandi fullveldis og sjálfstæðis. Við getum þetta allt sjálfir án afskifta við glóbalista og alþjóðadrauma.  

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 17.1.2021 kl. 16:22

4 identicon

Fastur dálkahöfundur í einu nýjasta riti Íhaldsmanna í Evrópu, The Conservative. Fjögurra ára snepill sem fáir þekkja og enn færri telja virtan. Áróðurspési með sína tilbúnu óvini sem allir eru illir og gera allt rangt og hetjur sem eru guðum líkastir. Um Hannes mætti segja að hann væri að moka skurði eða flaka fisk ef klíkuskapur réði ekki öllum hans frama. Af flestum, jafnvel hægrimönnum, talinn frekar ómerkilegur pappír og lítill fræðimaður. Frægastur fyrir ritstuld og vinskap við Davíð Oddsson sem hann þreytist seint á að lofsyngja.

Vagn (IP-tala skráð) 17.1.2021 kl. 18:19

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Stutt í kærleikinn að vanda hjá Kerrunni.

Halldór Jónsson, 17.1.2021 kl. 19:02

6 Smámynd: Halldór Jónsson

https://theconservative.online/article/david-oddsson-icelands-most-successful-politician

Það er rétt hjá Kerrunni að Hannes hefur verið dyggur stuðningsmaður Davíðs Oddssonar enda er nokkuð augljóst að sá maður hefur haft meira vit en flestir aðrir sem að stjórnmálum hafa komið.

Menn beri hann saman við skítlegt eðli ýmissa annarra.

Halldór Jónsson, 18.1.2021 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband