Leita í fréttum mbl.is

Kínversk kennslustund

 hlotnaðist mér einn dag fyrir margt löngu.

Ég var þá strandaður í 2 vikur í Hong Kong þar sem ég var þar sem farþegi hjá Cargolux sem kom ekki í nokkurn tíma á Kai-Tak. Ég fékk því nægan tíma til að slæpast og horfa á mannlífið þarna sem er fjölskrúðugt. Allt frá margmilljóna fólki til nakinna vesalinga sem lágu undir dagblöðum um nætur.

Enn daginn fór ég út að versla. Fór í fallega búð og fór að skoða myndavélar. Kaupmaður gaf mér strax konjakk og varð ég fljótt kenndur og kaupafús. Hann sýndi mér myndavél sem mér leist á og keypti en þegar ég koma á hótelið var það allt önnur vél en ég hélt að ég væri að kaupa. Ég fór því daginn eftir í búðina og vildi skipta.

Nei vinur minn segir þá kaupmaður, þú gerðir vitleysuna og lést mig plata þig.Ég græddi en þú tapaðir. Ég vil því engin frekari viðskipti við þig þar sem ég er í plús en þú í mínus.

Hann horfði svo á mig og sá auðvitað að ég var fúll. Á ég ekki að segja þér svolítið frá okkar kerfi af því að ég sé að þú ert ókunnugur hér. 

Hér er mannfjöldinn slíkur að hver einstök viðskipti skipta máli. Þú annaðhvort græðir eða tapar. Ef ég græði þá er ég ánægður en þú fúll. Þá er okkar sambandi lokið og ég hef ekkert frekar að tala við þig.Vil bara fá næsta viðskiptavin til að fást við.

Hér byrja ég á því að bjóða þér einhvern smáhlut sem er augsýnilega undirverðlagður.Þú kaupir hann og ég gef þér billegt  konjakk. Þú ert búinn að fá traust á mér.

Nú sýni eg þér annan hlut sem er yfirverðlagður eins og myndavélin sem þú keyptir í gær.  Nú græddi ég en þú tapaðir. Viðskiptum lokið  þar sem ég er í plús. Vesgú næsti.

Skilurðu lögmálið vinur. Nú skaltu bara fara eitthvað annað, hér er ekkert að sækja fyrir þig.

Ég fór og prófaði kerfið í annarri búð Kaupmaður þar baðaði öllum öngum þegar ég keypti fyrsta hlutinn og fór svo út.

Ég er þakklátur þessum kennara mínum í asískum fræðum, Mér finnst ég skilja að lögmál fjöldans og þröngbýlisins eru allt önnur en hjá okkur hér á klakanum og fámenninu.

Kínverska efnahagslífið sem er stjarnfræðilega stærra en okkar leiðir af sér að allt önnur lögmá gilda þar en hér.

Kínverski kommúnistaflokkurinn stjórnar því öllu með her-og dómsvaldi. Gagnrýndu Xi og þú ert á leiðinni í 18 ára fangelsi. Flokksnefndir eru settar upp í  stórfyrirtækjunum sem ráða til jafns við eigendur.

Halda menn virkilega að Íslendingar eigi erindi í að eiga banka með þessum mönnum?

Ég held að mörg hugtök  sem við hossum hér sem góð skiljist bara ekki í hinum asíska huga. Heiðarleiki, orðheldni,eru hugtök sem eru framandi í þeim hugarheimi. Vegna aðstæðna sem við þekkjum ekki vegna þess hversu okkar aðstæður eru allt aðrar. Okkar líf er allt annað en þröngbýlið í Asíu skapar.

Því er því fáránlegt að halda að við verðum þátttakendur í einhverju belti og braut kínverska kommúnistaflokksins. Hann hefur allt önnur markmið en við höldum og skiljum. 

Kínversk kennslustund  varð mér dýrmætt veganesti og er enn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hefur þú eitthvað frétt af Nubó?! Var hann ekki gerður út af Kínastjórn??

Sigurður I B Guðmundsson, 27.1.2021 kl. 05:26

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

þessi var góður! Þótt gerðir engin góð kaup stendur reynslan sem þú býrð að og getur miðlað öðrum eftir.-Auk smá kikk af konjakinu sem blekkti þig ríkan ltla stund.

Helga Kristjánsdóttir, 27.1.2021 kl. 12:44

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Nú ligg ég heldur betur í því. Ég á rafknúið reiðhjól sem er kínverskt að uppruna og léttbifhjól með vespulagi 125 cc af gerðinni Honda PCX, sem er framleitt á Tævan.

Tævan og Hong Kong eiga það sameiginlegt að Tævan var áður hluti af Kína þótt það njóti sjálfstæðis nú. 

Og þegar þú varst að versla í Hong Kong var það bresk nýlenda. 

Og til að toppa allt hefur konan mín ekið í meira en sex ár á Suzuki Alto sem er indverskur bíll. Hann var ódýrasti bíllinn á íslenska markaðnum 2014 og hefur reynst alveg einstaklega vel sem ódýrustu og bestu kaupin. Á það samt að baki að honum hefur verið ekið bæði inn á Brúaröræfi alla leið inn undir Brúarjökul og um jeppaslóðir yfir í eyðifjörðinn Loðmundarfjörð. 

Ómar Ragnarsson, 27.1.2021 kl. 12:59

4 identicon

Kennslustund frá USA og þér kæri Halldór um viðskipti við Kínverja, varðandi "belti og braut" er fámenni ÍSLENDINGA nauðsynleg. Árlegar flensusprautur og dauða plágur ásamt fjárfestingum um víðan völl er ógn við fámenni okkar.

Setjum tafarlaus landslög um "FULL STOP" á alla landasölu á ÍSLANDI, eyjum og annesjum. Ekki einn fermetri til sölu af veiðiám, fossum og virkjunum. Önnur lög gilda um húseignir í Reykjavík?

Ríkið skal tryggja bændum góð verð fyrir jarðir og veiðiár, en ekki erlendir fjárfestar.

Fyrir fáum dögum var maður á skyrtubol í viðtali á sjónvarpinu, sem var eins og eftirmynd "höfðingjanna" í sillicone valley í Californiu. Hann hafði ofur hugmyndir varðandi ÍSLAND, að mig minnir varðandi gróðurhús ofl. Hann var skýrmæltur og gáfulegur. Hefur einhver staðfestar fréttir um gang mála? 

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 27.1.2021 kl. 15:52

5 identicon

"Hver ber ábyrgð á lífi og dauða",spyr hæstaréttar lögmaðurinn Jón Magnússon, er hann skrifar um Covid pláguna í Morgunblaðinu 26.jan 2021. Jón vitnar í Morgan skipsstjóra á Karabiska hafinu er hann tók við stjórn sjóræninga skipsins, sem hann stjórnaði og spurði menn sína hvort þeir vildu stutt líf og skemmtilegt eða langt líf og leiðinlegt í hlekkjum. Áhöfnin valdi frekar stutt líf og skemmtilegt.

Jón vitnaði líka í forseta USA Ronald Regan; "Helsta skylda ríkisins er að vernda borgarana, en ekki stjórna lífi þeirra".  Ég er sammála Jóni og Regan

Við kjósum menn til Alþingis, sem virða rétt kjósenda og réttlæti. Veljum Leiðtoga og þjóðernissinna, sem sinna þörfum ÍSLENDINGA. Gerum allt sjálfir án tilsagnar frá getulausum Alþjóðasinnum og Glóbalistum, sem kosta fámenni Íslendinga miljarða í kostnað. 

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 27.1.2021 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3418190

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband