Leita í fréttum mbl.is

Astra Zeneca

lygaþvælan úr ESB er afsönnuð.

Jón Magnússon lögmaður ritar svo:

"

Niðurstöður eru komnar úr klínískum prófunum á bóluefninu frá Astra Zeneca í Bandaríkjunum. En bóluefnið er kennt við háskólann í Oxford í Stóra-Bretlandi, þar sem það var fundið upp

Í frétt Wall Street Journal í gærkvöldi kemur fram að klínískum prófunum sé nú lokið þar vestanhafs og að bóluefni AstraZeneca sé öruggt. Það er talið 80 prósent verndandi fyrir 65 ára og eldri, en sá aldurshópur í klínísku prófununum vestanhafs var mun stærri en þegar efnið var prófað austanhafs. Fær bóluefnið einkunnina 100 prósent í því að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar og sjúkrahúsinnlagnir hjá fólki á öllum aldri og kynþáttum

Engin vandamál með blóðtappa komu fram í prófunum. Hefur bandaríska ríkisstjórnin þegar pantað 300 milljón skammta af bóluefninu og þar af mun varnarmálaráðuneytið fá 200 milljón skammta. Um það bil 32.500 manns sem eru 18 ára og eldri tóku þátt í prófinu og var fimmtungur þeirra eldri en 65 ára

Framleiðandinn AstraZeneca segist muni halda áfram að rýna í niðurstöðurnar og ætlar að sækja um markaðsleyfi fyrir bóluefnið í Bandaríkjunum. En Donald J. Trump forseti lét Bandaríkin veita 1,2 milljarði dala til þróunar þess er hann setti Ljóshraðaáætlun sína til þróunar, framleiðslu og dreifingar bóluefna gegn kínversku Wuhanveirunni á laggirnar í mars 2020. Hátt í 20 milljarðar dala voru settir í áætlunina og hóf hinn fámenni en velmannaði vinnuhópur sem að áætluninni stóð, þegar greiðslur úr þeim poka af peningum í mars 2020. Þremur vikum síðar tók hinn litli vinnuhópur Borisar Johnsons til starfa við sama verk, austan Atlantsála í Bretlandi

En þá var hið helsjúka Evrópusamband, sem lífshættulegt er heilsu manna, ekki einu sinni vaknað í málinu og drattaðist það síðan síðast allra í veröldinni af stað í þessum málum. Varla hefur eins viðurstyggilegt og lífshættulegt fyrirbæri og Evrópusambandið skriðið um á evrópskri jörð á friðartímum, síðan að Adolf Hitler kanslari Þýskalands undirbjó sig þar síðast. Evrukreppan sem hófst 2008 var 10 ára hryllingur þjóðpyntinga og varir enn; Flóttamannamisfóstrið 2014 er enn að rústa Evrópu; Og núna síðast er það massadauði íbúanna vegna misþyrminga Evrópusambandsins á sjúkdómavörnum í löndum sambandsins. Tugir og aftur tugir þúsunda manna munu láta lífið af völdum Evrópusambandsins á þessu ári

Fáir nema vesælir og veiklunda menn og vitsmunaskertir einfeldningar leggja lag sitt við Evrópusambandið."

Hvað kostar þetta samsæri Frakka og Þjóðverja  mörg mannslíf? Ekki bara þarlendis heldur hérlendis? 

Hér  liggja bólusetningar niðri af ástæðulausu. Af lygaþvælunni um Astra Zeneca.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er maðurinn fullur? Eða er þetta heilabilun sem lagast ekki þó af honum renni?

Vagn (IP-tala skráð) 23.3.2021 kl. 15:31

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Kerran er akkúrat aðilinn til að spyrja um efnanotkun.

Halldór Jónsson, 23.3.2021 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband