Leita í fréttum mbl.is

Til hvers er þingflokkur Sjálfstæðisflokksins?

í rikisstjórn?

"

Við feng­um þetta ný­lega form­lega staðfest,“ seg­ir Lísa Björk Óskars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Nath­an & Ol­sen, um þá stöðu að vör­un­ar Cocoa Puffs og Lucky Charms séu ekki leng­ur í boði fyr­ir ís­lensk­an markað.

Lísa seg­ir að síðasta send­ing hafi borist í mars og þeir pakk­ar hafi verið fram­leidd­ir fyr­ir mörg­um mánuðum. Síðan þá hafi upp­skrift­in breyst og nátt­úru­legu litar­efni bætt við hana sem ekki sam­ræm­ist Evr­ópu­lög­gjöf sem gild­ir á Evr­ópska efna­hags­svæðinu. Því verður ekki hægt að flytja vör­urn­ar inn leng­ur og síðasta send­ing­in hef­ur þegar borist til lands­ins.

Cocoa Puffs og Lucky Charms er fram­leitt af fyr­ir­tæk­inu Gener­al Mills og hef­ur ekki verið í boði í Evr­ópu held­ur verið sér­pakkað fyr­ir ís­lensk­an markað í fjölda ára. Lísa er ekki bjart­sýn á að það verði hægt að fram­leiða sér­stak­lega eft­ir gömlu upp­skrift­inni fyr­ir ís­lenska markaðinn enda bæði flókið og dýrt.

„Þetta er voða leiðin­legt fyr­ir okk­ur og ís­lenska neyt­end­ur. Þetta er búið að vera í boði á land­inu í tugi ára. Meðan þessi nýja upp­skrift er fram­leidd þá er lítið hægt að gera. Þetta kem­ur ekki aft­ur nema þetta breyt­ist – það er ekk­ert fyr­ir­sjá­an­legt í þeim efn­um eins og staðan er núna,“ seg­ir Lísa í sam­tali við mbl.is.

Nath­an & Ol­sen von­ast til að geta skaffað nýj­ar vör­ur frá fram­leiðand­an­um sem upp­fylla Evr­ópu­lög­gjöf og geti að ein­hverju leyti komið í stað var­anna vin­sælu."

Til hvers er þessi þingflokkur Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn Íslands?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður er það svo, kæri Halldór, að svo er sem ég hef margoft sagt, að flokkur Bjarna Benediktssonar ymgri, er helsti valdaflokkur ESB sinna hér á landi.

Gamla, góða Sjálfstæðisflokknum okkar hefur verið rænt frá okkur.  Það er harmur okkar.

Flokkur Bjarna Benediktssonar fylgir uppskriftum Brussel í þaula og bíður þess eins að Viðreisn takist að ná nægu ESB sinna fylgi frá Samfylkingunni og mynda því næst með Viðreisn og Pírötum fyrstu hreinu ESB stjórnina.  Mundu þessi varúðarorð mín:  

Takist þeim það, þá yrði það hrein skelfing.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.4.2021 kl. 16:08

2 identicon

Ekki til þess að aðstoða General Mills við að nota ódýrara, en örlítið meira heilsuspillandi, bannað litarefni í sínar framleiðsluvörur. Jafnvel þó einhver heildsali mundi græða á því og gráti nú krókódílstárum.

Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms fást í Evrópu og eru framleidd í Evrópu, en án bönnuðu efnanna. Sennilega þá dýrari og skila heildsalanum minni hagnaði.

Vagn (IP-tala skráð) 2.4.2021 kl. 18:01

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ákaflega líklegt að þessi þingflokkur taki kókópuffs málið upp sem meiriháttar mannréttindamál um leið og hann er tekinn að fangelsa fólk fyrir að hætta sér heim til föðurlandsins. Svei attan!

Þorsteinn Siglaugsson, 2.4.2021 kl. 20:52

4 identicon

Til allrar lukku er hætt að flytja þennan óþvera inn sem er lucky charms

Alfreð Dan Þórarinsson (IP-tala skráð) 2.4.2021 kl. 22:09

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Bæði Cocoa Puffs og Lucky Charms fást í Evrópu og eru framleidd í Evrópu, en án bönnuðu efnanna. Sennilega þá dýrari og skila heildsalanum minni hagnaði.

Vagn (IP-tala skráð) 2.4.2021 kl. 18:01

Hvað er þá að ef þetta er rétt?

Halldór Jónsson, 3.4.2021 kl. 03:36

6 identicon

2...skila heildsalanum minni hagnaði." Gæti verið það sem er að. Hann er í samkeppni og getur því ekki hækkað verðið mikið. Hans hagnaður er mestur fái hann að flytja inn þaðan sem ekki þarf að fara að einhverjum hollustureglum og eiturefnabanni sem gera vöruna dýrari í innkaupum. Og hann metur stöðuna þannig að sennilega geti hann fengið almenning í lið með sér að þrýsta á stjórnvöld, í það minnsta andstæðinga ESB. Því innræktun gegnum aldirnar hefur gert það að verkum að ekki skortir hálfvita á þessu skeri.

Vagn (IP-tala skráð) 3.4.2021 kl. 06:22

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Er hægt að fá nathan og Olsen til að skýra málið?

Halldór Jónsson, 3.4.2021 kl. 10:22

8 identicon

Gamlir Sjálfstæðismenn "berja stríðsdrumbur" yfir breytingum og minnkandi "föðurlandsást", sem Símon Pétur minnist á hér að ofanverðu.

Er Samfylkingarmaðurinn brosmildi kominn til starfa hjá utanríkisráðherra varðandi samvinnu okkar við hið ágæta Grænland?

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 3.4.2021 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband