Leita í fréttum mbl.is

Armeníumórall Tyrkja

finnst mér yfirdrifinn og óþarfur.

 

Björn Bjarnason fjallar um þetta mál og móral Tyrkja,

"Undrun vekur hve stjórnvöld í Tyrklandi samtímans taka því illa þegar alls þessa er minnst. Reiði þeirra vegna þess sannast enn nú þegar Joe Biden, fyrstur Bandaríkjaforseta, vottar Armenum formlega samúð af virðingu fyrir þeim sem týndu lífi undir ógnarstjórn Ottómana og áréttar þann ásetning að koma í veg fyrir að slík grimmdarverk verði nokkru sinni framin að nýju. Forsetinn sagði þetta ekki gert til að varpa sök á einhvern heldur til að tryggja að það sem gerðist yrði aldrei endurtekið.

Tyrknesk stjórnvöld tóku þessum orðum mjög illa og höfnuðu með öllu fullyrðingum um þjóðarmorð. Tyrkir þyrftu ekki að læra neitt af neinum um eigin fortíð. Pólitísk tækifærismennska grefur mest undan friði og réttlæti, sagði Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, á Twitter.

Á sínum tíma notaði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti orðið „þjóðarmorð“ um aðförina að Armenum án þess að það drægi dilk á eftir sér. Barack Obama gaf til kynna að hann mundi sem forseti stíga skref til Armena með viðurkenningu á þjóðarmorðinu sem hann gerði þó ekki. Joe Biden var varaforseti Obama og óttuðust margir Armenar í Bandaríkjunum að Biden segði eitt í kosningabaráttu um hlutskipti Armena en annað í Hvíta húsinu. Gleði þeirra er því einlæg þegar þeir fagna orðum Bandaríkjaforseta nú og telja langþráðu marki náð.

Að Biden stígi þetta skref nú er áfall fyrir Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, endurspeglar minna vægi hans í Washington en áður var. Þótt Erdogan reyni að blása þetta upp sem árás á alla Tyrki staðfestir ákvörðunin nú dvínandi áhrif Erdogans sjálfs og skömm á framgöngu hans innan NATO og annars staðar.

Tillaga um að alþingi viðurkenni þjóðarmorð á Armenum árin 1915–1917 og virði minningu fórnarlamba þessa glæps gegn mannkyni hefur verið flutt á nokkrum þingum, síðast 2019-2020 án þess að hljóta afgreiðslu. Að málið falli dautt hér en njóti stuðnings meðal æ fleiri nágrannaþinga verður sífellt undarlegra."

Á ég að hafa móral yfir því hvernig Gizur fór með Sturlu á Örlygsstöðum? Eða hverng Flosi fór að Njáli?

Erdogan ber enga ábyrgð á einhverjum gömlum atburðum.

Af hverju segir hann ekki bara "Sorry Stína?" 

Er ekki einhver Armeníumórall Tyrkja út úr kortinu því allir málsaðilar  eru löngu dauðir eins og þeir Pílatus og Kristur eru líka? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll 

Brennan á Flugumýri og bardagar til forna er ekki hægt að bera saman við útrýmingarbúðir nasista og Gúlagið eða Armenadrápin. Raunar var útrýmingarherferð Tyrkja beint gegn fleirum. Hundruðum þúsunda Svartahafs-Grikkja var bókstalega útrýmt. 

Tveir fyrrum strætisvagnabílstjórar eru við völd í heiminum. Það bendir allt til þess að það sé ekki heppilegur undirbúningur undir landsstjórnina.

EINAR S HALFDANARSON (IP-tala skráð) 25.4.2021 kl. 21:28

2 identicon

Og svo getum við beðið Breta og Íra afsökunar á því að hafa farið þar um lönd ránshendi, nauðgað öllum sem ekki náðu að flýja og hneppt þá í þrældóm sem við drápum ekki. Þurfa ekki afkomendur þessara þjófa, nauðgara, þrælahaldara og morðingja að viðurkenna eðli sinna forfeðra og breyta sínum námsbókum í samræmi við það sem raunverulega átti sér stað?

Og er þá ekki réttast að fordómafullar karlrembur með óbeit á mannréttindum, eins og þú og margir af þínum hetjum, verði felldir af stalli eins og stytturnar af þrælahöldurunum og fordæmdar í sögubókum framtíðarinnar? Og hvað ætlið þið í Sjálfstæðisflokknum að segja um þá stríðsglæpamenn og fylgjendur Hitlers sem fundu öruggt skjól og frama innan flokksins eftir hrun Nasismans? Ráða þeir enn umræðunni og hvað þið megið segja?

Það er auðvelt að segja að einhver annar eigi bara að segja "sorry Stína".

Vagn (IP-tala skráð) 26.4.2021 kl. 00:05

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Kæri nafni. Ég ber ekki ábyrgð á þér, þú berð ekki ábyrgð á mér. Um þetta einfalda uppgjör tel ég að við séum sammála um. Baskamorðin vestur á fjörðum, forðum daga voru heldur ekki runnin undan rifjum vorum, en þau eru hluti af arfleið okkar. 

 Að neita syndaregisteri forfeðranna er ekki gott. 

 Tyrkir myrtu tugþúsundir Armena í skjóli fyrra heimsstríðs. Þjóðarmorð og ekkert annað. 

 Nútímatyrkinn Erdogan, siðspillti einræðisherrann með Múhameð í farteskinu, er ekki þess umkominn að neita staðreyndum, frekar en annað fylgifé spámannsins.

Halldór Egill Guðnason, 26.4.2021 kl. 01:24

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Kerran er engri lík.

Hvað eiga Þjóðverjar í dag að gera til að bæta fyrir Ausswitch, Hitler, Göbbels og Göring? Eiga þeir að gráta á hverjum degi upphátt á öllum rásum? Borga daglega? Sérstaklega frændur þessara kalla. Hvað með Kemal Ataturk? Eða Erdogan sjálfur. Skuldar hann eitthvað? 

Nú er það Sjálfstæðisflokkurinn sem er í skuld vegna gamalla nasista.Ekki gamlir kommar vegna Stalíns og hans verka?

Ég held að eigi að gera ráðstafanir til þess að Kerran verði stoppuð upp í fyllingu tímans sem illfygli aldarinnar við hlið Mao formanns, Stalins og Hitlers.

Halldór Jónsson, 26.4.2021 kl. 13:07

5 identicon

Tyrkir eru greinilega ekki einir um að vera ofur viðkvæmir og með móral yfir fortíðinni.

Vagn (IP-tala skráð) 26.4.2021 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband