3.5.2021 | 10:26
Fullveldisframsal
er eina pólitíska baráttumál Viðreisnar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
Það er að vísu til annar flokkur með sömu tuggu og heitir Samfylking og hefur annan formann sem heitir Logi Már.
Þessir einsmáls flokkar eru einfaldir að allri gerð. Bara að ganga í Evrópusambandið og Taka upp Evru og gera Íslendinga herskylda í Evrópuhernum væntanlega mun leysa öll vandamál íslenskra skriffinna sem margir þrá að fá þá skattfrjáls laun í Brussel sem frelsun frá íslenskum ömurleika og skattpíningu.
En Evrópusambandið hefur aldrei getað skilað uppgjöri frá stofnun, slíkur er skipulagsvandinn í þessu mislukkaða klofna fáræðis sæluríki Þjóðverja og Frakka og tollabandalagi 27 þjóða gegn öllum heiminum.
Verslunarfrelsi hefur ávallt verið hornsteinn íslensks efnahagslífs sem vandséð er að vilji láta múra sig inni í tollum.
Þorgerður þessi skrifar níðgrein um Morgunblaðið í Morgunblaðið í dag, okkur lesendum til lítillar ánægju. Æskilegt væri að Evrópusinnar héldu sig við málgagn ESB sem er Fréttablaðið með leiðindaskrif sín og létu okkur venjulegt fólk og fullveldissinna í friði.Því aldrei mun þjóðin kjósa þessa flokka til ráða, svo mikið er víst.
En klausa Þorgerðar er svona:
Þegar ég kom austur fyrir sanda í hópi kvenna sem ætla að ganga á Hvannadalshnjúk til að bæta aðbúnað fólks með krabbamein rakst ég á leiðara í föstudagsmogga um tillögur Viðreisnar um aukið evrópskt samstarf. Þær eru sem kunnugt er settar fram til að styrkja stjórn peningamála, auka stöðugleika fyrir almenning og auðvelda atvinnulífinu að hlaupa hraðar.
Við lesturinn kom mér helst í hug að ritstjórarnir hefðu ekki séð til sólar í langan tíma. Ekkert var fjallað um kjarnaefni tillagnanna heldur voru rangtúlkanir og afbakanir endurteknar sem virðast orðnar að hugmyndafræði blaðsins og Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálum.
Tillögur Viðreisnar eru tvær og fela í sér nýja nálgun í ljósi nýrra aðstæðna. Við þurfum að skapa meiri verðmæti í þjóðarbúinu og endurreisa fjárhag ríkissjóðs. Í því langtímaverkefni þarf að nýta betur evrópskt samstarf.
Stöðugleiki
Fyrri tillagan er meira aðkallandi. Í henni felst að fara af fullum þunga í viðræður við ráðherraráð Evrópusambandsins um samstarf í gjaldeyrismálum og gagnkvæmar gengisvarnir. Á síðasta ári jukust skuldir ríkissjóðs um 45 milljarða vegna gengisbreytinga. Þá hefur ríkissjóður þegar tekið erlend lán upp á tugi milljarða með tilheyrandi gengisáhættu.
Hugmyndin er að nota krónuna enn um sinn en leita eftir svipuðu stöðugleikasamstarfi og Danir hafa gert. Þeir eru ekki aðilar að evrópska myntbandalaginu.
Prófessorarnir Guðmundur Magnússon og Stefán Már Stefánsson settu fyrst fram hugmynd af þessu tagi fyrir tveimur áratugum. Fyrir þrettán árum benti Björn Bjarnason á þann möguleika að Ísland myndi sækja um aðild að myntbandalaginu og færði skýr lagaleg rök fyrir því.
Við í Viðreisn teljum rétt að taka varfærnara skref í byrjun.
Tvær leiðir
Við teljum brýnt að gera þetta núna vegna þess að það eru tvær leiðir til að taka á þeim vanda sem blasir við.
Önnur leiðin er sú sem við leggjum til. Með henni tryggjum við langþráðan stöðugleika og lægri vexti líkt og helstu nágrannaþjóðir okkar njóta svo fólk á Íslandi hætti að margborga íbúðirnar sínar.
Stöðugur gjaldmiðill er forsenda þess að unnt sé að beita ríkissjóði eins og ríkisstjórnin hefur gert án þess að stórhækka skatta og opna á heimildir til fjármagnshafta.
Hin leiðin er sú sem ríkisstjórnin hefur kynnt í fjármálaáætlun sinni. Þar er gert ráð fyrir um fimmtíu milljarða skattahækkun á næsta kjörtímabili. Kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins er sem sagt fimmtíu milljarða skattahækkun. Meginástæðan er óstöðug króna og of lítill hagvöxtur. Þessi tala mun hækka verulega ef fram heldur sem horfir; að verðbólga aukist og vextir hækki.
Hvað skýrir þögn Morgunblaðsins?
Til viðbótar þessum boðuðu skattahækkunum hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt fram frumvarp til að treysta krónuna. Lausnin er að gefa Seðlabankanum ótakmarkað vald til þess að setja á viðamikil gjaldeyrishöft án lýðræðislegrar umræðu. Allir vita af skaðsemi hafta fyrir atvinnulífið.
Jafnframt hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt fram frumvarp um skerðingu á lífeyrisréttindum sem knýr niður ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða. Lífeyrisþegar borga brúsann. Skattahækkanir, höft og skerðing lífeyrisréttinda. Morgunblaðið hefur ekki vikið einu orði að þessum efnahagsráðstöfunum Sjálfstæðisflokksins því blaðið veit að þær ganga ekki upp.
Ritstjórarnir ræða ekki kjarnann í tillögum Viðreisnar. Ástæðan er einföld. Geri þeir það verða þeir að bera saman leið Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar. Frekar vilja þeir hafa asklok fyrir himin.
Þjóðin ráði en ekki Moggi og fylgitungl hans
Seinni tillaga Viðreisnar snýst um að þjóðin fái að ákveða næsta skref. Hvort það eigi að byrja viðræður um fulla aðild að ESB. Það kallar á vandaðan undirbúning sem tekur tíma.
Rannsókn fræðimanna við Háskóla Íslands sýnir að þorri fólks telur sig ekki hafa næga vitneskju til að taka upplýsta ákvörðun um aðild Íslands að ESB. Það þarf að taka alvarlega. Því leggjum við til að hefja ferlið með því að kalla til sérfræðinga sem meta þýðingu fjölþjóðasamvinnu fyrir Ísland í framtíðinni.
Hvernig við getum örvað viðskipti, bætt efnahag og tryggt betur framgang markmiða Íslands í loftslagsmálum, en ekki síður styrkt fullveldi landsins eins og við gerðum með fullri aðild að Atlantshafsbandalaginu, EFTA, Sameinuðu þjóðunum og Norðurlandasamstarfi.
Við höfum ekki tekið ný skref í alþjóðasamvinnu í þrjátíu ár en heimurinn hefur breyst. Grundvallaratriðið er að þjóðin ráði för.
Ég hefði talið að harðir andstæðingar Evrópusamvinnunnar myndu fagna því að fá tækifæri til að fá þjóðina í lið með sér. Viðreisn hvorki ætlar né getur ráðið málalyktum. Við erum aftur á móti reiðubúin til að vera í forystu fyrir málefnalegri umræðu.
Ritstjórar Morgunblaðsins eru á móti eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Það má ekki ræða áskoranir nýs tíma og það má alls ekki færa valdið í svo veigamiklu máli til fólksins í landinu. Þar ráða aðrir hagsmunir för.
Framtíðin liggur ekki í ákvörðunum sem teknar eru í lokuðum bakherbergjum á grundvelli sleggjudóma og fyrirmæla ritstjóra Morgunblaðsins. Lýðræðið er einfaldlega sterkara en svo."
Margt í þessu skrifi rekur sig á annars horn. Stöðugleiki hefur yfirleitt verið ávísun á kyrrstöðu í íslenskri hagsögu.Þegar engin þensla er er yfirleitt lítið að gerast. Öfgarnar fara svo oft í hina áttina með verðbólgu og þenslu.Verðbólga í Evru-umhverfi myndi reynast erfitt viðfangs þar sem þjóðin gæti ekki prentað fleiri Evrur. Þensla í EVRU-umhverfi yrði ávísun á atvinnuleysi og stjórnleysi.Margvitað er að íslenskt efnahagslíf er í allt öðrum takti en það er í Evrópu. Þensla og uppgangur hérlendis er ekki ávísun á velsæld á meginlandi gömlu Evrópu.
Fullyrðing Þorgerðar um að hún þurfi aðeins að skýra Evrópuhugsjónina betur út fyrir þjóðinni sem sé svo heimsk að hún hafi aldrei skilið kenningarnar er auðvitað út í bláinn. Það eina sem þjóðin ekki skilur er það hvernig margt af þessu góða fólki flykkir sér um þá vanmetahugsun að þjóðin geti ekki ráðið fyrir sér heilli heldur sé betur sett undir erlendu valdi eins og var á fyrri tíð kónganna gömlu og einokunarverslunarinnar sem Þorgerður er í raun að tala um að endurreisa.
Líklega væri gott að greiða atkvæði um þetta Evrópubull sem blasir við hverjum manni að er gersamlega dauðadæmt í þjóðarvitundinni. En líkast til myndu þessir Evruspekingar eins og Þorgerður bara halda áfram tuðinu og fimbulfambinu. Eins og að erfiðleikar hins sjúka Evrópusambands blasi ekki við hverjum sem sjá vill?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 3417960
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.