Leita í fréttum mbl.is

Háskalegar hugmyndir

eru uppi fyrir skattgreiðendur um Kolefnisniðurdælingu í Straumsvík.Allt til að lækka CO2 í andrúmsloftinu úr 0.03!

Allir vita að mannkynið myndi svelta í hel ef ekki væri fyrir brennslu jarðefnaeldsneytis. Baráttan gegn þí er í besta falli algerlega óraunhæf nema að samrunaferlið náist beislað. Mannkynið getur ekki setið uppi orkulaust án olíu og gass.Allt annað er ábyrgðarlaus áróður hvað sem hin fjörtíuþúsund fífl sögðu í París. 

Þar á að skapa 600 ríksstörf með tugmilljarða kostnaði við að dæla niður kolefni uppleystu í vatni í mörgum Gullfossamælikvörðum til aað þjóna Grétu Thunberg og sértrúarhópum.

Skúli Jóhannsson  verkfræðingur tekur þetta til athugunar í Morgunblaðinu í dag:

 

skulico2

 

"Árið 2021 er útblástur kolefnis í orkutengdri starfsemi á heimsvísu talinn verða 35 gígatonn/ári, aðallega vegna raforkuframleiðslu.

Í Morgunblaðsgreininni „Coda Terminal – Ísland frumkvöðull í kolefnisförgun á stórum skala“ eftir Bjarna Bjarnason og Eddu Sif Pind Aradóttur 26.4. 2021 fjalla þau um einn þátt í lausn þessa vandamáls, sem felst í að flytja affallskolefni til Íslands frá iðnaðarkjörnum Vesturlanda og farga með því að dæla því niður í berggrunn við Straumsvík og láta steingerast þar í holrými í íslensku gosbasalti.

Í þeim tilgangi hefur fyrirtækjasamstæðan Orkuveita Reykjavíkur / ON Orka náttúrunnar / Carbfix stofnað hið nýja fyrirtæki Coda Terminal.

Loftslagsmarkmið

 

Bjarni og Edda Sif segja:„Loftslagsmarkmið munu ekki nást nema með kolefnisföngun og -förgun á gríðarstórum skala. Áætlanir gera ráð fyrir að farga þurfi um 120 milljörðum tonna af koldíoxíði (CO2) á heimsvísu til ársins 2060 með niðurdælingu í berglög.“ Þetta gerir að meðaltali á næstu 40 árum um 3 gígatonn/ári eða 3.000 megatonn/ári, sem er aðeins 0,086% af heimslosun CO2 í orkutengdum iðnaði. Ekki kemur fram í greininni hvaðan upplýsingar um þetta hlutfall kemur eða hvort þetta er prívatskoðun Bjarna og Eddu Sifjar.

Carbfix

Fyrirtækið Carbfix áformar að farga við Straumsvík 3 megatonnum/ ári af CO2. Mér er ekki ljóst hverjir eru eigendur Carbfix í dag, en af því sem maður heyrir þá streyma viljugir fjárfestar inn. Ekki er heldur vitað hvort þeir hér á landi, sem eru yfirleitt á móti afskiptum erlendra fjárfesta af íslenskum orkumálum, muni láta til sín taka á næstunni til að stöðva „þennan ósóma“. Vonandi ekki. Einhvers staðar í gögnum Carbfix sá ég að það þyrfti 25 rúmmeta af vatni á móti hverju tonni af CO2 til að mixa „sodastream“-blöndunina fyrir niðurdælingu. Þetta gæti þá þýtt að niðurdælingin þyrfti að vera 2,4 m3/sek. sem væri þá í gangi allt árið. Ég veit ekki hvað hver niðurdælingarhola afkastar en segjum sem svo að afköstin séu 20 lítrar/sek., þá þyrfti 119 borholur og hver borhola að vera 500 metra djúp að sögn, sem eru skaplegar og viðráðanlegar aðstæður. Vafalaust væri hægt að auka niðurdælinguna með dælum og þá mundi nauðsynlegum borholum fækka. Samkvæmt hugmyndum Bjarna og Eddu Sifjar er niðurdælingarþörfin á heimsskala 3.000 megatonn CO2/ári eða 1.000 sinnum meiri en áform Coda Terminal. Þetta þýðir niðurdælingu upp á 2.400 m3/sek. sem er 24 sinnum meðalrennsli Gullfoss (100 m3/sek.) eða 42 sinnum meira en áformuð niðurdæling við Straumsvík. Ég nefni þetta hér því rætt er um rennsli Gullfoss í títtnefndri grein.

Kostnaðaráætlun

Kostnaðaráætlun Carbfix hefur bara verið birt sem ein tala, 35 milljarðar íslenskra króna eða 270 milljónir bandaríkjadollara (MUSD), og er það, að því er mér skilst, einungis fyrir aðstöðu á landi við Straumsvík. Fróðlegt væri að fá að sjá nákvæmari sundurliðun, t.d. hvort borkostnaður er þar inni í myndinni og hvað gert er ráð fyrir mörgum niðurdælingarholum. Með 6% reiknivöxtum og með kostnaði fyrir rekstur og viðhald sem nemur 5% af stofnkostnaði á ári má áætla að kostnaður verði 35 MUSD/ ári. Með förgun upp á 3 CO2- megatonn/ári mundi það þýða 12 USD/CO2-tonn. Þetta er þó of þröngt sjónarhorn og er nauðsynlegt að taka einnig flutning erlendis frá inn í myndina. Ég hef skoðað þetta aðeins og borið saman við skip sem flytja vökvagert náttúrulegt gas, en ekki eitt einasta skip til reglulegra flutninga á CO2 hefur enn verið smíðað í heiminum. Nokkrar forsendur um skip sem gætu komið til greina og hafa verið hönnuð:

- Flutningsgeta hvers skips 30.000 CO2-tonn.

- Fjöldi skipa 3.

- Siglingaleið 3.000 km (önnur leiðin) dæmi Rvk

– Rotterdam 2.700 km.

- Hvert skip siglir fullhlaðið til Straumsvíkur, en með tóma CO2- geyma til baka.

- CO2 kemur frá verksmiðju erlendis t.d. á flutningabíl, afhent í vökvagerðarstöð í grennd við skipshlið í gasástandi á þrýstingi = 100 bar og hitastigi = útihiti.

- CO2-farmur í skipi verði í vökvaástandi á þrýstingi = 7 bar og hitastigi = –50°C. Miðað við þessar forsendur hefur flutningskostnaður verið áætlaður 18 USD/CO2-tonn. Samtals má því áætla flutnings- og vinnslukostnað í Straumsvík 12+18= 30 USD/CO2-tonn.

Kolefnisverð

Verð á ETS-kolefnismarkaði í Evrópu er sýnt á meðfylgjandi mynd í USD. Verðið hefur verið breytilegt gegnum tíðina en hagstætt upp á síðkastið og farið stöðugt hækkandi á undanförnum mánuðum. Þegar verð á markaði er hærra en lárétta línan, hvor sem á við í hverju tilviki, þá er hagnaður af starfseminni, annars tap.

Niðurstaða

Í ljósi þess að grunnrannsóknir eru komnar vel á veg og lofa góðu ætti ekki að vera fyrirstaða fyrir því að halda áfram fullnaðarhönnun og jafnvel hefja framkvæmdir sem fyrst vegna innanlandsmarkaðar fyrir kolefnisföngun og -förgun."

Þarna ætla tveir embættismenn að skuldbinda þjóðina í sína prívat  grilluföngun fyrir hundruð milljarða kostnað. Án nokkurs vísindalegs grunns nema blindrar trúar á nauðsyn kolefniseyðingar sem mannkynið blæs út í sífellu og verður að gera ef það ætlar að lifa af.

Það eru háskalegar hugmyndir á ferð ef skriffinar kerfisins eru látnir ganga sjálfala á skattökrum framtíðarinnar.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband