Leita í fréttum mbl.is

RógKolla

skrifar óvenjulega rætinn leiðara í ESB-málgagnið í dag.

Þar beitir hún allri orðkyngi sinni til að rakka niður allt sem fyrirtækinu Samherja tengist. Hin vandaði stjórnmálamaður Kristján Þór Júlíusson fær hin hraklegustu orð og hún segir hann vera ómerkilega fjarstýrt fyrirbrigði á snærum Samherja. 

Kolla skrifar:

"Húsbóndahollusta getur tekið á sig ýmsar myndir, ekki alltaf fallegar. Þetta opinberast skýrt í framgöngu svonefndrar skæruliðadeildar Samherja. Þar hefur verið unnið af ákafa og ástríðu í þeim tilgangi að grafa undan þeim sem hafa vakið athygli á hugsanlegum brotum fyrirtækisins. Markmiðið er ekki einungis að gera þessa einstaklinga marklausa, heldur er einnig reynt að lama sjálfstraust þeirra og jafnvel vekja hjá þeim ótta og kvíða. Furðuleg myndbönd sem beinst hafa gegn fréttamanninum Helga Seljan eru dæmi um þetta. Þar verður ekki annað séð en að um beinar ofsóknir sé að ræða.

Þótt skæruliðadeildin hafi í störfum sínum haft að meginreglu að tilgangurinn helgi meðalið þá hefur hún ekki náð þeim árangri sem vonir hennar hafa eflaust staðið til. Helgi Seljan hefur aldrei notið meiri virðingar sem fréttamaður en einmitt nú. Sá einstaklingur sem verst hefur farið út úr þessum dómsdagslátum Samherjamanna er einn af þeirra eigin mönnum. Samherjaráðherrann Kristján Þór Júlíusson hrökklast nú úr stjórnmálum, gjörsamlega rúinn trausti, einfaldlega vegna þess að almenningur hefur sett samasemmerki milli hans og hins illa þokkaða fyrirtækis Samherja. Vissulega dapurlegur endir á stjórnmálaferli, en sennilega óhjákvæmilegur.

 

Skæruliðadeild Samherja hefur unnið af ákafa en virðist um leið hafa vikið frá sér öllum hugsunum um hvað sé siðlegt, rétt og sanngjarnt. Það er alls ekki góð leið til að lifa lífinu, jafnvel þótt feitur launatékki bíði manns um hver mánaðamót. Sumt er einfaldlega siðlaust og engin laun, hversu há sem þau eru, fá því breytt. Auk þess er alls ekkert merkilegt að eiga mikla peninga. Um það mætti reyndar skrifa langt mál – en verður ekki gert hér.

Skæruliðadeildin hefur stundað ljótan leik en einnig opinberað ótrúlega vitleysislegan hugsunarhátt. Dæmi um það eru hugmyndir um að hafa afskipti af formannskosningu í Blaðamannafélagi Íslands með því að hafa samband við ritstjóra einkarekinna fjölmiðla og fá þá til að vara sitt fólk við að kjósa starfsmann RÚV. Þessi hugmynd lýsir fullkomnu skilningsleysi á fjölmiðlum og starfi þeirra. Ritstjóri sem færi að tilkynna blaðamönnum sínum hvern þeir ættu að kjósa í kosningu myndi samstundis gjaldfella sjálfan sig svo illilega að þeir myndu aldrei geta metið hann nokkurs eftir það. Ekki var mikið gáfulegra hjá skæruliðadeildinni að hafa fyrir því að fletta upp í pappírum til að athuga hvort verðlaunarithöfundur hér í bæ ætti ekki örugglega dýran bíl svo hægt væri að nota það gegn honum og skammast um leið yfir því að hann hefði svo lengi sem elstu menn muna verið á listamannalaunum. Því miður fyrir skæruliðadeildina kom í ljós að rithöfundurinn er ekki gefinn fyrir íburð. Það hefðu ýmsir getað sagt skæruliðunum, hefðu þeir haft vit á að spyrja. Sumu þarf ekki að fletta upp. Lítið sem ekkert hefur heyrst frá hinni vinnusömu skæruliðadeild síðustu daga. Stundum þegir fólk vegna þess að það skammast sín. Ekki eru nokkrar líkur á að það eigi við hér"

Þeir sem hafa verið samflokksmenn Kristjáns Þórs Júlíussonar skipstjóra í áratugi vita að vandaðri mann og ærukærari er erfitt að finna í stjórnmálum. Þessi skrif eru því langt fyrir neðan það sem sæmilegt getur talist og lýsa engum betur en innræti Kolbrúnar.

Kolbrún virðist telja að enginn megi hafa skoðun á hvorki Helga Seljan, frambjóðendum til formanns í Blaðamannafélgainu nema að fá fyrst leyfi hjá málgagninu hennar.

Vinnubrögð Helga Seljan í fréttaumfjöllun hafa iðullega vakið spurningar um hvað sé sæmilegt og hvað ekki og hefur hann oftlega vakið upp spurningar því tengdu. En að allar efasemdir flokkist undir ofsóknir eru fáránlegar. Menn eiga að mega hafa skoðanir á Helga Seljan sem öðrum og jafnvel Kolbrúnu Bergþórsdóttur líka.

Samherji er langt frá því hafinn upp yfir gagnrýni þó glæsileiki og þjóðhagkvæmni fyrirtækisins sé ótvíræð. Kvótakerfið hefur auðvitað gert þann ævintýralega vöxt mögulegan enda myndu fáir kaup skip eins og Vilhelm Þorsteinsson út á aflaheimildir til skamms tíma. En að miðbær Selfoss gangi nú undir nafninu litla Namibía vegna ættartengsla við Samherja  er heimatilbúinn rógur hjá Fréttablaðinu sem menn geta glott yfir einu sinni eða svo. Ljónagryfjan gæti líka komið til greina ef ætti að uppnefna eitthvað sem lengi hefur nú loðað við gárunga á Selfossi.

Málgagn ESB í Íslandi hefur varla vaxið mikið á áliti við þessi soraskrif Kolbrúnar Bergþórsdóttur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór; sem endranær, sem og aðrir gestir þínir.

Halldór.

Jú; víst er stór annmarki á Kobrúnu Bergþórsdóttur bókmennta jöfri, sem er ESB fylgispektin en, ................ hvað segirðu um stimamýkt Guaðlaugs Þórs Þórðarsonar t.d., gagnvart Evrópusambandinu og NATÓ, Verkfræðingur góður ?

Í hverju málinu á fætur öðru; bugta Guðlaugur Þór og samráðherrar hans sjer fyrir hverju því paragraffi, sem frá skriffinnunum í Brussel (og Berlín) koma.

Má til; að senda þjer þennar ritling Gunnars Smára Egilssonar (sem: ekki ennþá, hefur fengist til að nema Bifvjelavirkjunina, reyndar) sem fram kemur á Miðju Sigurjóns, bróður Gunnars Smára :

 

''Krúnudjásn Samherjastjórnarinnar

Af Ritstjórn Þann 27. maí 2021

Gunnar Smári skrifar:

Þetta verður kannski krúnudjásn Samherjastjórnarinnar; Samherji kaupir Íslandsbanka og Þorsteinn Már verður formaður bankaráðs eins og í Hruninu, þegar hann keyrði Glitni í þrot með félögum sínum, forvera Íslandsbanka, svo skuldirnar hvolfdust yfir almenning.

Samherji á kaupverðið á bók, geymir á henni alla peninginn sem Samherjastjórnin gaf honum með lækkun veiðigjalda. Svona virkar íslenska kerfið. Almenningur gefur Samherja pening svo Samherji geti keypt banka af almenningi. Samherji græðir rosalega. Almenningur tapar öllu.''

Það skyldi þó ekki vera; að Sósíalistinn (af öllum) hafi eitthvað til síns máls Halldór, eða hvað ?

Eða; hvers eigum við að gjalda, í hinu pólitíska stórviðri, sem geysar hjerlendis / og fer bara versnandi, Halldór minn ?

Framganga; svokallaðrar ríkisstjórnar landins, í flestum málaflokka er með þeim býznum, að vart verður við unað, öllu lengur.

Kannski; við ættum að leita liðsinnis Grænlendinga og Færeyinga, til þess að endurstilla Barómetin !

Með beztu kveðjum; sem jafnan, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.5.2021 kl. 10:41

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sjálfum þér líkur sem jafnan, ágæti vopnabróðir að fornu og nýju;

Óskar Helgi Helgason.

En óskaplega er ennþá í okkar samfélagi grunnt á auðmýktinni í garð þeirra sem fengu forgjöfina frá kvótasmiðjunni.

Forgjöfinni sem þessi vesæla þjóð virðist aldrei fá nóg af að 

borga af með mannlífi og reisn brothættra byggða.

Hvaðan kom þetta hundseðli í kynstofninn?

Árni Gunnarsson, 27.5.2021 kl. 12:38

3 identicon

Sælir; á ný.

Árni.

Þakka þjer fyrir; drengilegar undirtektirnar, gamli góði fjelagi - sem og þitt innlegg hjer, hjá Halldóri Verkfræðingi.

Með; sömu kveðjum, sem öðrum og fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.5.2021 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband