Leita í fréttum mbl.is

Xi er kjaftfor

í meira lagi. Hann hótar kjarnorkustríði við USA ef þeir ætla að skipta sér af vörnum Formósu Chang Kai Chek. Kínverjar vilja endilega komast yfir eyjuna aftur og sjálfsagt er þar margt girnilegt til að hramsa fyrir þjófa og bófa.

Hvað fólkið þar vill heyrist ekki mikið?

Frekar en í Hong Kong?

 

Xi hótar USA kjarnorkustríði við ef þeir ætla að verja Taívan.

Þurfa þeir í Peking að ekki spá í hvor þjóðin gæti drepið hærri prósentu af þjóð hins, USA eða Kína, með nýjustu græjum? Eru ekki fleiri á flatareiningu í Kína? 

Stæði slíkur útreikningur fyrir Xi og hans klíku?

Eða hugsar hann eins og Hitler að Þýskaland væri einskis virði án sín og megi því tortímast? 

Einar Björn Bjarnason veltir þessu fyrir sér:

" Mér virðist ef maður ber saman nýlegar tilraunir Kína - við tækni-tilraunir Bandaríkjanna. Að Bandaríkin séu enn með umtalsvert geim-tækni-forskot á Kína.
Tilrauna-flug Kína nýlega, virðist hafa verið á einhvers konar - ómannaðri geimskutlu. 
Að hafa hana ómannaða, hafi gert Kína fært að -- hanna inn styrk, svo unnt sé að taka óvenju þröngar beygjur á MAC 5 - skv. því er virðist hafa sést á radar.
--Það sé líklega útilokað að það faratæki geti verið mannað, vegna þess hve miðflótta afl mundi verða mikið innan-borðs í slíku faratæki, langt umfram þ.s. mannlegur líkami geti líklega þolað.

Á sama tíma séu Bandaríkin líklega nálægt því að taka í notkun ofurhraðskreiða Supersonic Ramjet flaug eða SRAM flaug, er væri ný kynslóð stýriflauga Bandaríkjahers.
Er hefðu færni til flugs í lofthjúp á bilinu MAC 5 - MAC 10.

Ég hugsa að slík stýriflaug sé mun hættulegra vopn.
En lítil geimskutla sem einungis geti svifið í átt að skotmarki."

 Svo er stórmennið sléttgreidda í Norður Kóreu að blanda sér í svona mál sem maður skilur nú varla til hvers þegar landið sveltur og er efnahagslega  eins og kerti sem hægt er að slökkva á með smáblæstri

Bandaríkin eru máttugri en maður gerir sér ljóst daglega til að framleiða og finna upp allt mögulegt. En Xi er kjaftfor í besta lagi.

Liggur ekki von manankyns í því að Xi sé  meiri í kjaftinum en tökkunum. Og hann virðist langt frá því að vera alvitlaus ef maður horfir til þess hvernig hann getur haft algera stjórn á landi sínu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Von mannkynsins byggist á því að þið þarna sem þykist vera íhaldsmenn, en höfðu þegar ykkur var lofað Fé án hirðis, takið ykkur taki, og taki slag Trumps við Nýfrjálshyggjuna, þeirra helstefnu sem ekki aðeins kom almannaeigum og almannaþjónustu í hendur Örfárra (auðs, auðmann, auðfyrirtækja), heldur líka flutti framleiðslu Vesturlanda til fátækari landa þar sem ekki þurfti að hyggja að lágmarkslaunum, aðbúnaði, öryggi, umhverfisvernd.

Og það var þá sem Kína bauð fram krafta sína, sultarlaun, engar kröfur, komið til mín, og við sjáum um framleiðslu heimsins, þið, það er auðurinn fáið arðinn, við fáum hinn efnahagslega styrk framleiðslunnar.

Hvernig heldur þú í eina mínútu Halldór, að Bandaríkin hafi eitthvað forskot á Kína, þegar vinir þínir í Nýfrjálshyggjunni hafa flutt alla grunnframleiðslu þangað??

Þú sem verkfræðingur ættir að vita að það er í grunninum sem allt annað byggist á, á honum er lokaútfærsla vörunnar þróuð og hönnuð, þar hafa Kínverjar virkilega fjárfest í ungu fólki sem hefur sömu menntun og þekkingu og ungmenni Vesturlanda.

Nema diffinn eru hin sögulegu svik, sem þú feisar ekki ennþá, að grunntæknin er í dag í Kína, jú jú, pínupons í Taiwan líka, en kjarninn er framleiddur hjá kommunum þar.

Eina spurningin er, og svarið við henni er ekki þér og þínum að þakka Halldór, ykkur sem afneitið kjarna þess að vera íhaldsmaður, sjálfsagt ennþá undir álögum glampa græðginnar um Fé án hirðis, heldur, kom Trump í tíma??

Náði hann að bjarga Vesturlöndum úr heljargreipum frjálshyggjunnar áður en það var orðið og seint??

Var ekkert eftir fyrir glóbalið að flytja til Kína??

Trump reyndi þó.

Hvað eruð þið að gera??, er ekki Gulli og stelpubörnin ykkar gúrú??

Einn angi þeirra arma sem liggja til Xi.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 26.10.2021 kl. 13:42

2 identicon

Einar Björn hefur ekki hundsvit á málinu og kann greinilega ekki að afla sér upplýsinga.

SRAM, stendur fyrir “Short Range Attack Missile” en ekki "Supersonic Ramjet" og drægið er aðeins rúmir 200 km.

"Litla geimskutlan" var hypersonic eldflaug ætluð til að bera kjarnorkusprengjur. En bæði Kínverjar og Rússar virðast vera fetinu framar í þróun vopna sem ferðast á ofurhraða og engar varnir bíta á.

https://www.airforcemag.com/the-u-s-is-playing-catch-up-on-hypersonics-heres-how/

https://www.science.org/content/article/national-pride-stake-russia-china-united-states-race-build-hypersonic-weapons

Vagn (IP-tala skráð) 26.10.2021 kl. 15:26

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar kommi

Ég nenni ekki einu sinni að biðja þig að útskýra muninn á nýfrjálshyggju og frjálshyggju þar sem  veit að þú getur það ekki.

Kerran kemur á óvart með að lesa skammstafanir .

Halldór Jónsson, 27.10.2021 kl. 11:49

4 Smámynd: Ómar Geirsson

He he Halldór.

Ekki hef ég tölu á hve oft ég hef samviskusamlega útskýrt fyrir þér þann að orðið "Ný" er viðbót við eitthvað sem var fyrir en er komið aftur.

Þegar Gunnar Smári fer til dæmis að gera út á ný mið, verður þá til dæmis aftur hægrimaður, þá verður hann Nýhægri maður, ekkert flókið við það.

Þetta viðskeyti er nauðsynlegt því þínir menn jörðuðu frjálshyggjuna á sínum tíma, annað hvort innlimuðu þið leifarnar af henni líkt og íhaldsflokkurinn gerði þegar hann skipti um nafn og kallaði sig Sjálfstæðisflokk, þar sem núverandi gúrúar eru Gulli og börnin, eða leyfðu hrakinu að lifa sem áhrifalausu úrhraki líkt og breskir íhaldsmenn gerðu.

Diffinn er líklegast enginn nema að þá kannski vissu menn ekki betur um að þeir ynnu fyrir þann í neðra, en það var alveg vitað þegar svertan á Wall Street ákvað að fjármagna um og uppúr 1970 beint úr gröfinni þann uppvakning sem kenndur var við frjálshyggju, og fékk viðskeytið Ný-, svo menn spyrðu síður hvaða erindi eiga uppvakningar meðal lifanda.

En til  hvers að segja þér þetta enn  einu  sinni Halldór??, menn í afneitun trúa því sem þeir vilja trúa.

Og rífast við afleiðingarnar líkt og þú gerir í þessum pistli þínum, sem og mörgum þar á undan.

Eins og þú, bráðskarpur maðurinn viti ekki úr hvaða ranni hugmyndafræði Evrópusambandsins um hið frjálsa flæði kemur, eða að skattleggja orkunotkun kemur.

Ef Trump hefði ekki komið þá hefði þú ásamt mörgum öðrum góðum íhaldsmönnum verið fyrir löngu farnir að skoða ætternisstapa, í algjöri uppgjöf gagnvart skrímslinu sem þið óluð og misstu tökin á.

Tump, hann vissi sínu viti.

Kveðja að austan.

Ps.  Kerran er ólíkindatól, en það eru lítil hjól undir henni þegar hún hjólar í sómamenn, ef hún væri lifandi en ekki rafeind, þá er öruggt að hún hefur verið götustrákur í mjög mörgum fyrri lífum.

Ómar Geirsson, 27.10.2021 kl. 17:23

5 identicon

Sæll Halldór,

Hérna útþenslu- og ógnarstefna NATO hefur engin takmörk, en svona heldur þetta áfram, nú og við styðjum þetta án þess að gagnrýna, hvað þá einu sinni spyrja, ekki satt?
KV.

May be an image of 3 people, people standing and text that says 'LONDON LONDRES NATO LONDON LONDRES ΟΤΑΝ LONDON TATO AN ON 70 1949-2019 70 1949-2019 If you don't like what I post, just ignore it like you ignore government corruption.'
If China wages total war with Vietnam, the Philippines, and Malaysia over  the South China Sea dispute, should Indonesia as a non-claimant declare war  against China or not ? - Quora
 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 27.10.2021 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418198

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband