Leita í fréttum mbl.is

Gatar formaðurinn?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu.

Formaður Viðreisnar sem hefur 5 þingmenn á Alþingi er í viðtali hjá Pétri á útvarpi Sögu þar sem farið er vítt og breitt fyrir stjórnmálasviðið.

Það eru ekki mikil líkindi til að þessi örflokkur verði mikið spurður ráða á næsta kjörtímabili.

ÞorgerðurkatrínEn ég lagði á mig að hlusta á viðtalið.

Ég er undrandi yfir því hversu stefnumál flokksin eru óskýr og þokukennd.

Stundum finnst mér hreinlega að flokkurinn skilji málin ekki sjálfur. Hvernig á ég þá sem óbreyttur kjósandi að skilja um hvað er verið að tala.

Það sem ég náði að festa mér í minni er þetta:

 

 

Hún er spurð útí stefnu flokks síns ef hann ætti aðild að ríkisstjórnarmyndun.

Formaðurinn sagðist styðja við að skattar hækkuðu ekki og ekki yrði ráðist í mikil ný útgjöld.Hann nefnir eins og í framhjáhlaupi að upptaka nýs gjaldmiðils myndi lækka vaxtakostnað landsmanna en er ekki látin skýra það frekar hvernig.

Hún gerir ekki ráð fyrir að koma Íslandi í ESB. Hún sér fram á vaxtahækkanir á seinni tíma kjörtímabilsins skv. spám bankanna.

Hún vill selja Íslandsbanka en að ríkið eigi áfram kjölfestuhlut í Landsbanka.   Tilgang þessa  útskýrir hún ekki nánar.

 Hún vill styðja við samkomulag á vinnumarkaði til stöðugleika og fyrirsjáanleika..Hún vill auka hagvöxt. Hún styður því virkjanir í því skyni .

Ég heyrði kannski ekki ekki allt viðtalið nægilega vel en mér fannst hún ekki vera spurð að því sem mestu máli skipti, hvernig upptaka nýs gjaldmiðils myndi leiða til lækkaðs vaxtastigs almennings . Né heldur er hún spurð um það hvernig þessi gjaldmiðilsskipti myndu fara fram.

Á hvaða gengi til dæmis yrði sparifé landsmanna verða skipt í nýjan gjaldmiðil og hvernig yrðu vextir á sparifé og húsnæðisskuldir reiknaðir?

Viðreisn lofar ekki að lækka skatta né heldur að fara í stórfelldan niðurskurð. Þess í stað á upptaka nýs gjaldmiðils að auðvelda rekstur ríkissjóðs. En hvernig er ósagt látið.

Viðreisn gerir sér ljóst að hún getur ekki fengið inngöngu í Evrópusambandið í gegn en hún mun halda áfram að tala fyrir því.

Þessar spurningar eru samt svo þýðingarmiklar að nauðsynlegt sýnist  að fá frekar útskýringar á þessum tæknilegu smáatriðum sem eru engin smámál í framkvæmd.

Það er varla  viðunandi að stjórnmálamenn slái fram svona stefnumálum án þess að verða krafðir um nánari skýringar.

Án slíkra skýringa er hætt við að menn geti ekki mótað sér afstöðu í kosningum. Fallandi fylgi Viðreisnar bendir til  þess að forystumönnum hafi ekki tekist til þessa að  sannfæra kjósendur um skýra sýn flokksins á þessa stefnu

Formaðurinn er spurður um meirihlutasamstarf í Reykjavík í ljósi komandi kosninga í sveitarstjórnum.Hún tekur fram að Reykjavíkurborg hafi betra hlutfall eigna og skulda en önnur sveitarfélög þar sem Sjálfstæðismenn stjórna.

Þorgerður sagði að flokkurinn hefði valið fremur að starfa með núverandi meirihluta heldur en að ganga til liðs við margklofinn Sjálfstæðisflokk.

Það er ekki skortur á íbúðum í Reykjavík.Hún er ánægð með þennan meirihluta í heildina tekið en útilokar ekki aðra möguleika. En henni hugnast ekki að semja við margklofinn Sjálfstæðisflokk og er ánægð með framgöngu Pavels og Þórdísar Lóu.

Hún hvetur til Covid19 bólusetninga en ekki þvingaðra og dóttir sína 18 ára hvatti hún til þess..

 

Þegar maður lítur yfir viðtalið saknar maður þess að Viðreisn sem flokkur geti skýrt hvernig Ísland taki upp annan gjaldmiðil.

Hvernig fer það fram er ekki útskýrt heldur aðeins sett fram sem eitthvað stefnumál til síðari tíma.

Flokkurinn virðist skilja það að þetta mál komist hreinlega ekkert fram með fylgi kjósenda. Það taki því ekki að reyna að útskýra það nánar sem það er auðvitað illskilgreinanlegt ef menn hugsa málið til enda.

Á því gatar formaðurinn og flokkurinn allur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fallandi fylgi Viðreisnar (upp um 1,6%), niður í 5 þingmenn (úr fjórum),  bendir til  þess að einhver sé að rugla. Viðreisn er einn þeirra þriggja flokka sem bætti við sig bæði í fylgi og þingmannafjölda en Sjálfstæðisflokkurinn missti 0,8% af sínu fylgi og hélt sama þingmannafjölda. Sjálfstæðisflokkurinn stóð sig mjög svipað og Píratar í því að tapa fylgi en halda sama þingmannafjölda.

Að kenna litla, en stækkandi, Sjálfstæðisflokknum Viðreisn um fáfræði sína er frekar aumt, jafnvel þó um tuttugustu aldar Sjálfstæðismann í ruglinu sé að ræða.

Vagn (IP-tala skráð) 30.10.2021 kl. 15:26

2 Smámynd: Hörður Þormar

Þorgerður Katrín var eitt sinn varaformaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Eitthvað hlýtur hún að hafa til brunns að bera. 

Eða hvað?

Hörður Þormar, 30.10.2021 kl. 18:02

3 identicon

Sæll Halldór,

Ekki er ég sammála þessum bólusetningar -fasisma hennar Þorgerðar Katrínar með, "..að fyrirtæki fái að ráða hvort þau mismuni fólki eftir því hvort það hafi verið bólusett eða ekki"  
Hvernig er það vilja ekki öll þessi fyrirtæki er hafa styrkt hana Þorgerði Katrínu ekki einnig skrifa undir, að þau taki á sig alla fjárhagslega ábyrgð fyrir öllum aukaverkunum, alvarlegum aukaverkunum og dauðsföllum eftir þessar svokölluðu bólusetningar???
KV.
No description available.

MUST SEE "24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots; EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)

COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH

COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)

COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)

Sjá einnig hérna:

https:/1000covidstories.com

vaxpain.us

https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html

https://www.vaxlonghaulers.com/

https://mypatriotsnetwork.com/patriot/wtf-over-1000-pages-of-horrifying-pictures-stories-facts-about-covid-vaccines/

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.10.2021 kl. 21:15

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Jæja Kerra. ruglaðsit ég á tölunni, Maður fylgist ekki alveg með þessu liði enda skiptir ekki höfuðmáli hversu margir þessir vitleysingar í Viðreisn eru með henniÞorgerði sem hefur engin áhrif hvort eð er.

Halldór Jónsson, 31.10.2021 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband